Fjármálaráðstafanir á sviði dóms- og kirkjumálaráðuneytis

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 14:06:27 (3960)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Andsvörum er lokið. Áður en lengra er haldið vill forseti tilkynna að sú utandagskrárumræða sem hv. 6. þm. Vestf. hafði óskað eftir sl. laugardag og gat þá ekki farið fram mun fara fram síðar í dag. Umræðan fer fram að ósk hv. 6. Vestf. og er um vinnubrögð heilbrrh. við afgreiðslu tilboða í fimmta áfanga Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði. Mun hún standa í hálftíma og fer fram að loknum atkvæðagreiðslum síðar í dag.