Fjármálaráðstafanir á sviði dóms- og kirkjumálaráðuneytis

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 14:10:09 (3963)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti telur ekki ástæðu til þess að gefa slíka yfirlýsingu. Það liggur svo beint við samkvæmt þingsköpum hver það er sem stjórnar þinghaldi og þarf ekki að svara slíkri spurningu. Þegar menn taka til máls um gæslu þingskapa þá á að snúa athugasemdum að forseta og gerðum hans varðandi framvæmd þingskapa.