Halldór Ásgrímsson
:
Virðulegur forseti. Það er góðra gjalda vert að mál þetta verði til athugunar við afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir árið 1993. Ég vil vekja á því athygli að það var lögð á það mikil áhersla af stjórnarmeirihlutanum að afgreiða það mál út úr nefnd, það bíður nú hér 2. umr. og okkur var tilkynnt að ekki stæði til að fara þar út í frekari breytingar. Við erum þeirrar skoðunar að margt annað þurfi frekari athugunar við og ég tel að með þessu sé hæstv. fjmrh. að fullyrða það, sem er út af fyrir sig ánægjulegt, að lánsfjárlög muni þá bíða afgreiðslu þar til á næsta ári. Ég tel ekki öruggt að þetta mál verði tekið til umfjöllunar þar og treysti því ekki og segi því já við þessa atkvæðagreiðslu.