Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:31:14 (4006)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Það þing sem samþykkir hækkun til varnarmála upp á 5 millj. en hafnar að láta 5 millj. til rannsókna á hrygningu og klaki þorsks er að mínu viti á villigötum. Ég tel að við höfum meiri þörf fyrir doktor að störfum í frjóum fiskum en geldfiskum og segi því já.