Tómas Ingi Olrich
:
Virðulegi forseti. Nefnd sú sem ráðherra skipaði til að leita leiða til að ná fram hagræðingu og sparnaði í rekstri Kristnesspítala hefur lagt til að rekstur spítalans verði lagður undir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og telur það vænlegustu leiðina til þess að nálgast markmið fjárlagafrv. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er reiðubúið til að taka við rekstri Kristnesspítala. Ef svo fer að sá sparnaður sem að er stefnt í fjárlagafrv. næst ekki allur treysti ég hæstv. heilbrrh. til þess að beita sér fyrir því að Fjórðungssjúkrahúsinu verði veitt fjárhagslegt svigrúm til að taka við rekstri Kristnesspítala með þeim hætti að ekki verði dregið úr þjónustu og starfsemi Kristnesspítala tryggð. Því greiði ég atkvæði gegn þessari tillögu.