Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Fundi er fram haldið og hefst nú utandagskrárumræða eins og áður hafði verið tilkynnt. Hún fer fram að beiðni hv. 6. þm. Vestf. og fjallar um vinnubrögð heilbrigðisráðherra við afgreiðslu á tilboðum í byggingarframkvæmdir við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Þessi umræða fer fram eftir fyrri mgr. 50. gr. þingskapa sem þýðir hálftíma umræða.