Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil biðja menn að hafa allan vara fyrir sér á þessum tölum um vistunarmat sem kynntar hafa verið því ég lít á að þær séu bráðabirgðatölur vegna þess að það liggur t.d. ekki fyrir hvort vistunarmat hafi líka farið fram á þeim hjúkrunarsjúklingum sem liggja inni á stofnunum sem ekki eru við þeirra hæfi. En ég tek fram að vistunarmatið sem fyrir liggur héðan úr Reykjavík virðist benda til þess að þörfin fyrir hjúkrunarrými í Reykjavík séu 157 og það er um það bil helmingi lægri tala heldur en menn hafa haldið fram í umræðunum til þessa. Ef það er rétt tala, og við skulum enn hafa allan fyrirvara um hana, þá ætti með því að taka Eir í notkun og með því að nýta þau hjúkrunarrúm sem hægt er að hafa í rekstri hér á Reykjavíkursvæðinu en ekki eru í rekstri, þar með að vera fullnægt allri þörf fyrir hjúkrunarvistun í Reykjavík. En ég bið menn enn að taka þessar tölur með fullri varúð vegna þess að við höfum ekki fengið endanleg svör frá matsaðilum um það t.d. hvort þeir hafi metið einnig þá hjúkrunarsjúklinga sem eru inni á stofnunum sem ekki eru við þeirra hæfi.
Í öðru lagi vil ég aðeins taka fram í þessu sambandi að það hefur þó tekist á þessu sumri í fyrsta skipti að sinna allri þörf fyrir heimahjúkrun í Reykjavík og allri þörf fyrir hvíldarinnlagnir. Það hefur ekki gerst áður um margra ára skeið. En við megum ekki gleyma hinni hliðinni á því máli að aðstoðar heimahjúkrunar njóta margir hjúkrunarsjúklingar sem eru svo þungir sjúklingar að þeir ættu ekki að vera í heimahúsum heldur annars staðar.