Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er ekki mjög traustvekjandi málflutningur, hæstv. viðskrh., að segja að mjög brýnt sé að fella niður aðstöðugjaldið sem tekjustofn hjá sveitarfélögum en það megi alls ekki fella niður jafngildi aðstöðugjaldsins sem tekjustofns hjá ríkinu. Þá eru tíndar til alls konar ástæður og ráðherra segir hér mjög virðulegur á svip kl. 3 um nótt að minni hagsmunir verði að víkja fyrir hinum stærri. Hjá sveitarfélögunum var þetta alveg sjálfsagt og um það vorum við allir sammála. Það gengur því ekki upp, hæstv. ráðherra, í alvarlegri og málefnalegri umræðu um þetta mál að reyna að verja þetta með þessum hætti.
Mér fannst hæstv. ráðherra viðurkenna að það væri auðvitað algert stílbrot að vera með þetta svona. Kannski treystir ráðherrann því að þetta verði fellt fyrir dómstólum og þess vegna þurfi hann ekki að standa í þessu stríði við fjmrn. Hann muni fá þessa jöfnun samkeppnisskilyrðanna í gegnum skattkerfið af því að Vinnuveitendasambandið muni vinna málið fyrir dómstólunum. Ég get út fyrir sig skilið það. Það eru takmörk fyrir því hvað menn geta tekið margar lotur við ríkisstjórnarborðið rétt fyrir jólin. Og af því að ég veit að hæstv. viðskrh. er klókur maður, þá hefur hann kannski séð þá leið að það væri betra að láta Vinnuveitendasambandið vinna þetta mál fyrir sig fyrir dómstólum.
En auðvitað er það veikleikamerki að fjmrn. hefur ekki treyst sér til þess að fá formlegt álit frá ríkislögmanni eða einhverjum öðrum utan ráðuneytisins til þess að styrkja málflutning sinn í málinu. Þar með verður að álykta sem svo að þessir tekjustofnar í fjárlagafrv. séu mjög óvissir og þess vegna er óskiljanlegt að ríkisstjórnarmeirihlutinn skuli ekki hafa viljað skoða þær ábendingar sem hafa komið frá minni hlutanum undanfarna daga um örugga tekjustofna sem engin óvissa er um.