Vilhjálmur Egilsson
:
Virðulegi forseti. Lykilatriðið í þessum skattalagabreytingum er að ná inn tekjum til þess að bæta upp tekjumissi sveitarfélaganna vegna þess að það er verið að fella niður aðstöðugjald. Þær hugmyndir sem hafa komið fram frá stjórnarandstæðingum í staðinn fyrir þá leið sem valin hefur verið hefur í fyrsta lagi verið svona u.þ.b. 4,5% hækkun á almennri tekjuskattsprósentu, 20% hækkun á hátekjuskatti, sem kom hér fram í gær í tillögum Alþb., 20% vaxtaskattur. Menn tala um að það frv. sem hér er verið að greiða atkvæði um sé stríðsyfirlýsing. Ég vil segja það að þær tillögur sem hafa komið til þess að bæta frv. eru heimsstyrjaldaryfirlýsing. Ég segi já.