Ferill 14. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 14 . mál.
14. Frumvarp til laga
um neytendalán.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
I. KAFLI
Gildissvið og hugtök laganna.
1. gr.
Lög þessi taka til lánssamninga sem gerðir eru við lántakanda í atvinnuskyni af hálfu verslana, framleiðenda og þjónustuaðila.2. gr.
Eftirtaldir lánssamningar eru undanþegnir lögum þessum:
a . Lánssamningar sem gilda skemmri tíma en þrjá mánuði.
b . Lánssamningar sem fela í sér endurgreiðslur án vaxta og kostnaðar.
c . Leigusamningar, nema eignarleigusamningar, sbr. lög nr. 19/1989.
d . Lánssamningar að lægri fjárhæð en 15.000 kr.
e . Lánssamningar sem tryggðir eru með veði í fasteign.
f . Lánssamningar í formi yfirdráttarheimildar af tékkareikningi.
g . Lánssamningar sem eru gerðir í því skyni að kaupa eða viðhalda fasteignum eða til þess að reisa, endurnýja eða endurbæta byggingu.
3. gr.
Þrátt fyrir undanþágu skv. f-lið 2. gr. og um er að ræða samkomulag milli lánastofnunar eða fjármálastofnunar og lántakanda um lánveitingu í formi heimildar til fyrirframúttektar af tékkareikningi, þó ekki greiðslukortareikningi, skulu lántakanda veittar eftirtaldar upplýs
a . Hvaða takmörk eru á lánsupphæðinni sé um slíkt að ræða.
b . Hverjir eru ársvextir og hvaða gjöld falla á lánið frá þeim tíma er gengið er frá samningnum, svo og við hvaða skilyrði megi breyta þeim.
Þessar upplýsingar skulu staðfestar skriflega.
c . Lántakanda skal tilkynnt um allar breytingar á ársvöxtum eða viðeigandi gjöldum sem verða á samningstímanum.
4. gr.
Merking orða í lögum þessum er sem hér segir:
a . Neytandi er einstaklingur, lögaðili eða hópur slíkra aðila sem kaupir vöru eða þjónustu gegn endurgreiðslu, enda séu kaupin ekki gerð í atvinnuskyni.
b . Lántakandi er einstaklingur, lögaðili eða hópur slíkra aðila sem tekur lán.
c . Lánveitandi er einstaklingur, lögaðili eða hópur slíkra aðila sem veitir lán.
d . Lánssamningur er samningur þar sem lánveitandi veitir eða lofar að veita lántakanda lán í formi greiðslufrests eða svipaðrar fjárhagslegrar fyrirgreiðslu og lántakandi lofar að greiða samkvæmt ákvæðum samningsins.
e . Heildarlántökukostnaður lántakanda er allur kostnaður sem hlýst af töku lánsins og lántakanda ber að greiða, þar með taldar vaxtagreiðslur.
f . Árleg hlutfallstala kostnaðar er heildarlántökukostnaður sem hlýst af gerð lánssamnings, lýst sem árlegri prósentu af upphæð láns þess sem veitt er og reiknuð út í samræmi við 10.–12. gr.
g . Eignarréttarfyrirvari er þegar við kaup á vöru er samið um að lánveitandi geti tekið vöruna til sín ef neytandi stendur ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum.
II. KAFLI
Upplýsingaskylda lánveitenda.
5. gr.
Lánssamningur skal gerður skriflega og fela í sér upplýsingar þær sem tilgreindar eru í 6. og 8. gr. Lántakandi skal fá í hendur eintak af lánssamningnum.
6. gr.
Við gerð lánssamnings skal lánveitandi gefa lántakanda upplýsingar um:
1 . Höfuðstól, þ.e. lánsfjárhæð án nokkurs kostnaðar.
2 . Fjárhæð útborgunar.
3 . Árlega nafnvexti.
4 . Lántökukostnað í krónum, reiknaðan út skv. 7. gr.
5 . Árlega hlutfallstölu kostnaðar, þ.e. heildarlántökukostnað, lýst sem árlegri prósentu af upphæð höfuðstólsins og reiknaðri út skv. 10.–12. gr.
6 . Heildarupphæð þá sem greiða skal, þ.e. samtölu höfuðstóls, vaxta og lánskostnaðar.
7 . Fjölda einstakra greiðslna, fjárhæð þeirra og gjalddaga.
8 . Gildistíma lánssamnings og skilyrði uppsagnar hans.
Ef breyta má lánskostnaði, afborgunum eða öðrum atriðum lánskjara á samningstímanum skal lánveitandi greina lántakanda frá því við hvaða aðstæður breytingarnar geta orðið. Ef ekki er unnt að reikna út árlega hlutfallstölu kostnaðar skal lánveitandi þess í stað skýra lán
Útreikningur á lántökukostnaði.
7. gr.
Lántökukostnaður felur í sér allan kostnað af láninu, þar með talda vexti og önnur gjöld sem lántakandi skal greiða af því, með þeim undantekningum sem greinir í 2. mgr. Þegar reiknuð er út árleg hlutfallstala lánskostnaðar skal ekki tekið tillit til eftirfarandi kostnaðar
1 . Kostnaðar vegna vanskila.
2 . Kostnaðar sem lántakandi greiðir við kaup á lausafé eða þjónustu, hvort heldur kaupin fara fram gegn staðgreiðslu eða samkvæmt lánssamningi.
3 . Kostnaðar vegna yfirfærslu fjár.
4 . Kostnaðar vegna viðskiptareiknings sem ætlað er að taka við afborgunum af láninu að undanskildum kostnaði við innheimtu endurgreiðslna, hvort heldur um er að ræða stað
5 . Félagsgjalda er rekja má til samninga sem ekki tengjast lánssamningnum, jafnvel þótt þau hafi áhrif á lánsskilmála.
6 . Kostnaðar vegna trygginga eða ábyrgða nema þær eigi að tryggja lánveitanda endurgreiðslu lánsins.
Ákvæði 3.–4. tölul. 1. mgr. eiga því aðeins við að lántakandi hafi hæfilegt valfrelsi um það með hvaða hætti yfirfærsla fjárins eða endurgreiðslan fari fram, svo og að kostnaður sé ekki óeðlilega hár.
8. gr.
Þegar samningur er gerður skal lánveitandi gefa lántakanda upplýsingar um kostnað þann sem frá er greint í 2.–6. tölul. 1. mgr. 7. gr. og jafnframt tilgreina hvenær slíkur kostnaður fell
Breytilegur lántökukostnaður.
9. gr.
Þó að í lögum þessum sé kveðið á um að lántakandi skuli fá upplýsingar um vexti eða fjár
Ákvæði 1. mgr. gildir á sama hátt um aðra liði lánskostnaðar en vexti. Lánveitandi skal tilkynna lántakanda allar breytingar sem verða á árlegum nafnvöxtum eða öðrum kostnaðar
Útreikningur árlegrar hlutfallstölu kostnaðar.
10. gr.
Árleg hlutfallstala kostnaðar er heildarlántökukostnaður við lánssamning, lýst sem árlegri prósentu af upphæð láns þess sem veitt er. Árleg hlutfallstala kostnaðar skal reiknuð út sam
11. gr.
Árleg hlutfallstala kostnaðar skal reiknuð út á þeim tíma sem lánssamningur er gerður. Við útreikning árlegrar hlutfallstölu skal gengið út frá því að lánssamningur gildi umsaminn tíma og að lánveitandi og lántakandi standi við skuldbindingar sínar samkvæmt skilmálum samningsins.
12. gr.
Ef lánssamningur heimilar breytingu á vaxtagjöldum eða öðrum gjöldum sem teljast hluti árlegrar hlutfallstölu kostnaðar en ekki er unnt að meta hverju nemi á þeim tíma sem útreikn
Þegar reiknuð er út árleg hlutfallstala kostnaðar skal gera ráð fyrir eftirfarandi:
1 . Ef engin hámarksupphæð er tilgreind í lánssamningi skal hámarksupphæð láns, sem veitt er, teljast 150.000 kr.
2 . Ef ekki er tilgreindur ákveðinn lánstími og ekki er unnt að ráða hann af samningi skal lánstími talinn eitt ár.
3 . Ef í samningi er kveðið á um fleiri en einn greiðsludag skal inna af hendi endurgreiðslu á þeim tíma sem samningur kveður fyrst á um.
Auglýsingar.
13. gr.
Í auglýsingum um lán og lánafyrirgreiðslu skal gefa upp vexti, lántökukostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar.
III. KAFLI
Vanræksla á upplýsingaskyldu.
14. gr.
Séu ekki veittar upplýsingar um lántökukostnað sem greinir í 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. skal lántakandi greiða höfuðstól og ársvexti af honum sem samsvara vöxtum af almennum skulda
Ef lántökukostnaður er tilgreindur í samræmi við 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. er lánveitanda eigi heimilt að krefjast frekari lántökukostnaðar. Sé árleg hlutfallstala kostnaðar, sem um getur í 5. tölul. 1. mgr. 6. gr., of lágt reiknuð getur lánveitandi ekki krafist hærri lántökukostnaðar.
Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda ekki ef lánveitandi getur sannað að lántakanda hefði mátt vera ljóst hver lántökukostnaðurinn átti að vera. Ef ákvæði 1. eða 2. mgr. leiða til lækkunar eftir
15. gr.
Hafi lánveitandi ekki veitt þær upplýsingar sem fyrir er mælt í 6. gr., sbr. 5. gr., getur hann ekki krafist greiðslu kostnaðar sem annars félli á lántakanda vegna vanskila.
IV. KAFLI
Greiðsla fyrir gjalddaga.
16. gr.
Lántakanda skal heimilt að standa skil á skuldbindingum sínum samkvæmt lánssamningi fyrir þann tíma sem settur er í samningnum. Getur lántakandi þá krafist lækkunar lánskostn
17. gr.
Lánveitandi getur krafist greiðslu fyrir gjalddaga ef ákvæði þar að lútandi eru í samningn
1 . Ef vanskilatíminn er orðinn lengri en mánuður og fjárhæðin er hærri en 10% heildarskuldarinnar.
2 . Ef vanskilatíminn er orðinn lengri en mánuður og fjárhæðin er hærri en 5% heildarskuldarinnar og fleiri en ein afborgun eru fallnar í gjalddaga.
3 . Lántakandi er í vanskilum með greiðslur vegna annarra skuldbindinga við lánveitanda.
4 . Trygging fyrir greiðslu hefur minnkað verulega.
5 . Ef lántakandi sýnir með athöfn sinni að hann ætlar að komast undan að greiða skuld sína, t.d. með undanskoti eigna.
6 . Ef um kaup með eignarréttarfyrirvara er að ræða og lántakandi fer svo illa með hlutinn að það veldur því að trygging fyrir greiðslu minnkar.
18. gr.
Nú hyggst lánveitandi fá greitt fyrir fram skv. 1.–3. tölul. 17. gr. og skal þá segja samningnum upp með fjögurra vikna fyrirvara. Skal uppsögnin tilkynnt í ábyrgðarbréfi eða á ann
19. gr.
Þegar greitt er fyrir gjalddaga, sbr. 16.–18. gr., skal tekið tillit til eftirfarandi atriða þegar skuldin er reiknuð út:
1 . Lántakandi skal greiða vexti og kostnað fram að greiðsludegi.
2 . Lánveitandi getur ekki krafist bóta vegna greiðslu fyrir gjalddaga. Ef lánsvextir eru miðaðir við allt lánstímabilið samkvæmt samningnum getur lánveitandi haldið eftir hluta vaxtanna ef skilyrði eru fyrir því í samningnum.
3 . Ef greiðsla fyrir gjalddaga fer fram á öðrum degi en gjalddaga skal vaxtatímabil og kostnaðartímabil miðast við næsta gjalddaga þar á eftir.
V. KAFLI
Framsal kröfuréttinda.
20. gr.
Ef lánveitandi framselur kröfu til þriðja aðila getur lántakandi haldið uppi sömu mótbár
Lántakandi getur við greiðslu haldið uppi sömu mótbárum við framsalshafa og lánveit
Þetta á þó ekki við ef lántakandi innir greiðslu af hendi til lánveitanda og vissi að lánveit
Ef lántakandi á kröfu á hendur lánveitanda, sem jafnframt er seljandi, vegna kaupa, t.d. vegna galla, er framsalshafi meðábyrgur lánveitanda þar til uppgjör hefur farið fram. Lán
21. gr.
Lánveitanda er ekki heimilt að taka við víxli eða annarri skuldaviðurkenningu af lántak
VI. KAFLI
Kaup með eignarréttarfyrirvara.
22. gr.
Eignarréttarfyrirvari á aðeins við:
a . ef um hann er samið fyrir fram og eigi síðar en við afhendingu vöru til lántakanda,
b . ef verð vöru er a.m.k. 20.000 kr.,
c . ef greiðsla við afhendingu vöru er a.m.k. 30% af staðgreiðsluverði hennar.
Eignarréttarfyrirvari má aldrei vera til tryggingar öðrum skuldum lántakanda við lánveit
VII. KAFLI
Endurheimt eignarréttar.
23. gr.
Lánveitandi getur endurheimt hlut á grundvelli kaupsamnings með atbeina sýslumanns ef kaupsamningurinn uppfyllir eftirtalin skilyrði:
1 . Kaupsamningurinn skal vera undirritaður af lántakanda og honum hefur verið afhent eintak af samningnum.
2 . Kaupsamningurinn verður að kveða á um eignarréttarfyrirvara. Þrátt fyrir samþykki lántakanda er ekki heimilt að endurheimta hlut ef hann er undanþeginn aðför að lögum.
24. gr.
Nú greiðir lántakandi skuld eftir gjalddaga með dráttarvöxtum og áföllnum kostnaði áður en hlutur hefur verið endurheimtur. Getur lánveitandi þá hvorki gjaldfellt skuldina og endur
Útreikningur eftirstöðva.
25. gr.
Við útreikning eftirstöðva skuldar er lánveitandi vill endurheimta söluhlut samkvæmt kaupsamningi með eignarréttarfyrirvara skal taka tillit til eftirfarandi atriða:
1 . Frádráttar vaxta frá þeim degi er hlutur er endurheimtur ef lánsvextir miðast við allt tímabilið.
2 . Ef hlutur er endurheimtur á öðrum degi en gjalddaga skal vaxta- og kostnaðartímabil miðast við næsta gjalddaga á eftir.
Útreikningur andvirðis söluhlutar.
26. gr.
Þegar söluhlutur er endurheimtur skal andvirði hans renna til kaupanda við uppgjör milli aðila. Andvirði söluhlutar er sú fjárhæð sem unnt er að fá fyrir hlutinn við sölu hans á almenn
27. gr.
Ef andvirði söluhlutar er meira en seljandi getur krafist skv. 25. gr. getur lánveitandi ekki tekið söluhlut nema því aðeins að hann greiði lántakanda mismuninn um leið.
28. gr.
Ef andvirði söluhlutar er minna en seljandi getur krafist skv. 25. gr. getur lánveitandi ekki krafist mismunarins nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi, svo sem ef lántakandi hefur ekki umgengist eða varðveitt hlutinn á viðeigandi hátt eða reynir á einhvern hátt að torvelda eða hindra endurheimt hans.
29. gr.
Ef ákvæði 23. gr. er því til fyrirstöðu að söluhlutur verði endurheimtur getur lánveitandi krafist greiðslu mismunar ef aðstæður eru skv. 28. gr.
Ef söluhlutur finnst ekki hjá lántakanda við endurheimt getur lánveitandi með aðför hjá lántakanda tryggt greiðslu skuldarinnar skv. 18. gr.
30. gr.
Nú hafa fleiri en einn hlutur verið keyptir samkvæmt einum samningi og lánveitandi legg
Í fjórtán daga frá endurheimt hefur lántakandi rétt til að innleysa hina endurheimtu hluti til sín. Skal hann þá greiða fjárhæð þá sem inneign lánveitanda er hærri en verðmæti þeirra hluta sem eftir eru. Skal fjárhæðin reiknuð skv. 25. gr.
Lántakandi getur ekki leyst til sín hlut ef hann er úr safni eða samstæðu sem lánveitandi hefur einnig endurheimt frá lántakanda og aðskilnaðurinn hefur í för með sér verulega rýrnun á verðmæti hlutanna.
VIII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
31. gr.
Viðskiptaráðherra getur ákveðið að lög þessi taki ekki til tiltekinna tegunda lána sem veitt eru gegn lægra gjaldi en almennt gerist og standa almenningi ekki til boða.
32. gr.
Viðskiptaráðherra getur sett reglur um hvernig prenta skuli leiðbeiningar um réttarstöðu lántakanda á skriflega samninga og skjöl sem lögin taka til.
33. gr.
Viðskiptaráðherra getur breytt fjárhæðarmörkum lánssamninga sem lög þessi taka til eftir því sem verðlagsþróun gefur tilefni til.
IX. KAFLI
Refsiákvæði.
34. gr.
Brot gegn lögum þessum, reglugerðum eða reglum settum samkvæmt þeim skulu varða sektum nema þyngri refsing liggi við í öðrum lögum. Um meðferð slíkra mála skal fara að hætti opinberra mála. Gera má lögaðila fésekt fyrir brot á lögum þessum án tillits til þess hvort brot verður sannað á fyrirsvarsmann eða starfsmann lögaðila. Hafi fyrirsvarsmaður eða starfsmaður gerst sekur um brot á lögum þessum má einnig gera lögaðila sekt og sviptingu starfsréttinda.
35. gr.
Tilraun til og hlutdeild í brotum á lögum þessum eru refsiverð skv. III. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
36. gr.
Eigi má með samningi víkja frá ákvæðum laga þessara né reglugerða, sem settar kunna að verða samkvæmt lögunum, lántakanda í óhag.
37. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningur um Evrópska efnahagssvæðið að því er Ísland varðar.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
1. Inngangur.
Hér á landi eru ekki í gildi almenn lög um lánsviðskipti eða afborgunarkaup. Lögð hafa verið fram á Alþingi frumvörp til laga um afborgunarviðskipti en þau hafa ekki náð fram að ganga.
Með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu er gert ráð fyrir aðlögun íslenskrar lög
EB-tilskipanir varðandi neytendalán ásamt viðauka hafa verið hafðar til hliðsjónar við samningu frumvarpsins, tilskipanir ráðs Evrópubandalaganna nr. 87/102 EBE og nr. 90/88 EBE. Einnig hefur verið höfð hliðsjón af dönsku og sænsku frumvarpi um lánssamninga.
Tilgangurinn með EB-tilskipuninni um neytendalán er að samræma reglur í löggjöf hvers lands á sviði neytendalána, einkum reglur um hvaða upplýsingar neytendur skulu fá í tengsl
2. Meginatriði frumvarpsins.
Samkvæmt frumvarpinu nær það til lánssamninga sem gerðir eru við lántakanda af hálfu verslana, framleiðenda og þjónustuaðila með vissum undantekningum. Það nær til lána vegna kaupa á lausafé og þjónustu, svo og almennra neyslulána. Það tekur jafnt til lánssamninga sem einstaklingur gerir og lögaðili. Talið er mikilvægt að hér á landi eigi fyrirtæki rétt á upp
Í frumvarpinu er sérstakur kafli um endurheimt eignarréttar. Þar er gert ráð fyrir því að þegar vara er keypt með afborgunum og eignarréttarfyrirvara eigi lántakandi eða kaupandi rétt á því að leysa til sín hlut sem seljandi eða lánveitandi hefur endurheimt, að vissum skil
3. Efni tilskipunar.
Frumvarpið hefur þann tilgang að fullnægja skilyrðum EB-tilskipana nr. 87/102 EBE og nr. 90/88 EBE með íslenskri löggjöf. Meginatriði í tilskipun nr. 87/102 EBE er að neytandinn fái upplýsingar um lántökukostnað í prósentum samkvæmt árlegri hlutfallstölu kostnaðar. Útreikningur á árlegri hlutfallstölu samkvæmt tilskipuninni átti að gerast samkvæmt gildandi aðferðum í löggjöf hvers lands. Samkvæmt 5. gr. tilskipunarinnar nægði að tilgreina eða gefa upp að minnsta kosti heildarlánskostnað neytandans á meðan beðið væri eftir samþykkt að
Í tilskipuninni er gert ráð fyrir því að neytandinn hafi ætíð, í tengslum við lánssamning, upplýsingar um árlega hlutfallstölu í prósentum, þ.e. samanlagðan kostnað vegna lánsins, lýst sem árlegri prósentu sem reiknuð er út samkvæmt sérstakri stærðfræðilíkingu. Tilskipunin leiðir einnig að öðru leyti til samræmingar á kostnaðarliðum sem eiga að koma inn í útreikn
4. Gildissvið laganna.
Frumvarpið tekur til lánssamninga, sbr. 1. gr., sem gerðir eru við lántakanda í atvinnuskyni af hálfu verslana, framleiðenda og þjónustuaðila. Lánssamningur er skilgreindur sem samningur þar sem lánveitandi veitir eða lofar að veita lántakanda lán í formi greiðslufrests eða svipaðrar fjárhagslegrar fyrirgreiðslu og lántakandi lofar að greiða samkvæmt ákvæðum samningsins. Frumvarpið tekur til lánssamninga, hvort sem þeir eru gerðir við einstakling, lögaðila eða hóp slíkra aðila, sbr. 4. gr. Frumvarpið gildir um lánssamninga og skiptir ekki máli hvort lántakandi er að kaupa sér eitthvert lausafé með afborgunum eða hvort hann er að kaupa þjónustu.
Reglur frumvarpsins um framsal kröfuréttinda í V. kafla taka einungis til lánssamninga milli lánveitanda og lántakanda sem kaupir vöru eða þjónustu sem telja má óskylda starfi hans. Lánssamningar, sem gilda stuttan tíma, eru undanþegnir lögunum, sbr. 2. gr. Lánveit
5. Beiting laganna við sérstakar tegundir lánssamninga.
Samkvæmt 2. gr. tilskipunarinnar geta aðildarríkin undanþegið nokkrar tegundir lánssamninga. Samkvæmt henni þarf ekki að beita tilskipuninni um lánssamninga sem eru eink
Tilskipunin undanskilur einnig vaxta- og kostnaðarlaus lán. Reglunum um upplýsinga
Samkvæmt ákvæðum frumvarpsins getur viðskiptaráðherra ákveðið að tilteknar tegundir lána, sem veitt eru gegn lægra gjaldi en almennt gerist og standa almenningi ekki til boða, séu undanþegnar, en dæmi um lán, sem uppfylla þessi skilyrði, eru þau sem veitt eru öryrkjum og öðrum sem fá örorkubætur.
Samkvæmt tilskipuninni eru samningar um lán lægri en 200 ECU og hærri en 20.000 ECU undanþegnir. Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir því að lánssamningar, að lægri fjárhæð en 15.000 kr. sem er samsvarandi 200 ECU, séu undanþegnir, en ekki þótti ástæða til að undan
6. Upplýsingar um árlega hlutfallstölu kostnaðar í prósentum.
Það er meginatriði í tilskipun nr. 87/102 EBE og frumvarpinu að lántakandi skuli fá upplýsingar um árlega hlutfallstölu kostnaðar í prósentum í tengslum við samþykkt samnings.
Í íslenskum rétti hefur fram að þessu ekki verið í gildi krafa um að lántakandi skuli eiga rétt á slíkum upplýsingum. Tilgangurinn með ákvæði er skyldar lánveitanda til að upplýsa lántakanda um árlega hlutfallstölu er að gefa lántakanda færi á að meta hve mikill kostnaður fylgir láninu. Árleg hlutfallstala kostnaðar gefur upp samanlagt verð á því að taka að láni 100 kr. í eitt ár og greinir þannig frá kostnaðinum við lánið án tillits til fjárhæðar eða greiðsluskil
Upplýsingar um hlutfallstöluna gera lántakanda auðveldara að bera saman mismunandi lánstilboð og geta því komið að gagni í samkeppninni og jafnvel haft áhrif til lækkunar á lán
Um útreikning hlutfallstölunnar fer eftir stærðfræðilíkingu sem sett verður í reglugerð og er þá gert ráð fyrir að farið verði eftir samræmdum EES-reglum á hverjum tíma. Í frumvarp
7. Auglýsingar um lán og lánafyrirgreiðslu.
Samkvæmt frumvarpinu skulu upplýsingar um árlega hlutfallstölu kostnaðar ásamt upplýsingum um vexti og lántökukostnað koma fram í auglýsingum. Tilgangurinn með þessu ákvæði er að gefa lántakandanum færi á því, áður en hann ákveður að taka lán, að velta fyrir sér kostnaðinum við það og bera það að öðru leyti saman við önnur lánstilboð.
8. Upplýsingaskyldunni ekki fullnægt.
Í tilskipun nr. 87/102 EBE eru ekki neinar reglur um til hvers það leiðir ef lánveitandi lætur hjá líða að upplýsa lántakanda um árlega hlutfallstölu kostnaðar. Lög í hverju landi verða því að skera úr um það. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að þegar árleg hlutfallstala kostn
9. Eftirlit með lánveitanda.
Með 12. gr. tilskipunarinnar er aðildarríkjunum lögð sú skylda á herðar að hafa skipulagt opinbert eftirlit með lánveitendum. Í ákvæðinu er getið um þrenns konar skipulag sem aðild
Verðlagsstofnun getur t.d. vegna kvartana frá einstaklingum eða samtökum tekið mál til umfjöllunar. Hún getur einnig með tilmælum reynt að hafa áhrif á atvinnurekendur þannig að þeir hagi sér í samræmi við góða viðskiptahætti. Verðlagsstofnun getur farið fram á að verðlagsráð banni athafnir sem brjóta í bága við þetta. Hún gegnir ákveðnu hlutverki sem ráð
10. Endurheimt eignarréttar.
Samkvæmt tilskipun nr. 87/102 EBE skulu aðildarríki tryggja að þegar hlutir eru seldir með eignarréttarfyrirvara og lánveitandi eða seljandi tekur aftur hlut sem hann hefur selt eigi kaupandinn rétt á því að leysa til sín aftur endurheimtan hlut. Má lánveitandi eða seljandi ekki hagnast óeðlilega mikið á því.
Engar lögfestar reglur eru til um kaupsamninga með eignarréttarfyrirvara þó að slík við
Samkvæmt frumvarpinu getur lánveitandi endurheimt söluhlut með aðför ef kveðið er á um eignarréttarfyrirvara í kaupsamningnum. Ekki er heimilt að endurheimta hlut ef hann er undanþeginn aðför og skiptir þá ekki máli hvort lántakandi hefur samþykkt slíkt. Lántakandi á rétt á því í fjórtán daga að leysa hina endurheimtu hluti til sín aftur. Á seljanda eða lánveit
11. Efnahagslegar og stjórnarfarslegar afleiðingar.
Verðlagsstofnun mun sjá um að framfylgja lögum þessum. Í tengslum við gildistöku laganna er nauðsynlegt að upplýsa almenning og atvinnurekendur um efni þessara nýju reglna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að lögin taki gildi um leið og EES-samningurinn. Lánveitandi á m.a. frá þeim tíma að upplýsa lántakanda um árlega hlutfallstölu kostnaðar í tengslum við samþykkt. Því verður að kynna þessar reglur nú þegar. Er það mjög nauðsynlegt, t.d. þar sem útreikningur er flókinn og lánveitendur þurfa m.a. að verða sér úti um tölvuforrit til þess að fullnægja skyldum sínum samkvæmt lögunum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessu ákvæði er skýrt frá gildissviði laganna. Þau fjalla um lánssamninga sem gerðir eru við lántakanda af hálfu atvinnurekanda í atvinnuskyni. Ekki er skilyrði að lántakandi sé að gera lánssamninga í atvinnuskyni.
Hugtakið lánveitandi nær bæði yfir þann sem veitir lánið og þann sem hefur áunnið sér réttindi lánveitanda samkvæmt samningi nema eitthvað annað komi fram í lögunum.
Um 2. gr.
Í a- til g-liðum eru taldir upp lánssamningar sem frumvarpið tekur ekki til, jafnvel þótt þeir samsvari skilgreiningunni í 1. gr. frumvarpsins.
Um 3. gr.
Grein þessi svarar til 6. gr. tilskipunar nr. 87/102 EBE. Fjallar hún um upplýsingaskyldu lánveitanda þegar um lánveitingu í formi heimildar til fyrirframúttektar af tékkareikningi er að ræða.
Um 4. gr.
Í þessari grein er skýrð merking orða. Er hún í samræmi við 1. gr. tilskipunarinnar. Orðið lántakandi er þó víðtækara hér en í tilskipun, nær bæði yfir einstaklinga og lögaðila, en ekki einungis einstakling sem í viðskiptum kemur fram í augnamiði sem telja má óskylt starfi hans.
Um 5. gr.
Þetta ákvæði svarar til 4. gr. tilskipunar nr. 87/102 EBE. Það felur í sér skyldu lánveitanda til þess að gera skriflegan samning um lánið. Ekki er að finna neina reglu í íslenskum lögum sem kveður á um að lánssamningar skuli vera skriflegir. Það er hins vegar nauðsynlegt í fram
Um 6. gr.
Þetta ákvæði svarar til 4. gr. tilskipunar.
Lánveitandi er skyldugur til að gefa lántakanda ýmsar upplýsingar um það lán sem boðið er. Þær skulu látnar í té þegar samningurinn er gerður og koma fram í hinum skriflega samn
Upplýsingarnar, sem fram eiga að koma, eru í 1.–8. tölul. Samkvæmt 1. tölul. skal lántakandi fá upplýsingar um höfuðstól lánsins eða lánsfjárhæð. Samkvæmt 2. tölul. skal láta lán
Samkvæmt 5. tölul. er gert ráð fyrir því að látnar skuli í té upplýsingar um árlegan lántöku
Nánari reglur um útreikning á árlegum lántökukostnaði í prósentum koma fram í 10.–12. gr. frumvarpsins, sbr. skýringar við þær greinar.
Samkvæmt 6. tölul. skal lántakandi fá upplýsingar um heildarupphæð sem greiða skal samkvæmt samningnum. Loks skal lántakandi skv. 6. og 7. tölul. fá upplýsingar um fjölda einstakra greiðslna, fjárhæð þeirra og gjalddaga, enn fremur gildistíma lánssamnings og skil
Um 7. gr.
Þetta ákvæði svarar til a-liðar 1. gr. í tilskipun nr. 87/102 EBE. Í 1. mgr. er lántökukostn
Taka á tillit til trygginga sem eiga að gera endurgreiðslu lánsins öruggari en ella, t.d. líf
Um 8. gr.
Eins og segir í skýringum við 7. gr. á ekki að taka nánar tiltekinn lánskostnað með við út
Ef lánveitandi þekkir stærðir nefndra kostnaðarliða skal taka þær fram í samningnum. Ef hann veit ekki hve mikill kostnaðurinn er skal, að svo miklu leyti sem kleift er, láta í té vit
Í mörgum tilvikum er það háð upplýsingum frá þriðja aðila hvort lánveitandi getur gegnt upplýsingaskyldu sinni samkvæmt þessu ákvæði. Með tilliti til þess verður að telja það nægi
Um 9. gr.
Samkvæmt þessu ákvæði er gert ráð fyrir því að aðilar geti samið um breytilega vexti. Verður þá að tilgreina með hvaða hætti vextir séu breytilegir.
Samkvæmt 2. mgr. gildir þetta einnig um aðra kostnaðarliði en vexti. Sú skylda er lögð á lánveitanda að hann tilkynni lántakanda um slíkar breytingar.
Um 10. gr.
Þetta ákvæði svarar til a-liðar 1. gr. í tilskipun nr. 87/102 EBE. Í ákvæðinu felst skilgrein
Kveðið er á um það að hlutfallstalan skuli reiknuð út samkvæmt ákveðinni stærðfræðilík
Um 11. gr.
Þessi lagagrein svarar til 4. tölul. a-liðar 1. gr. í tilskipun nr. 87/102 EBE. Útreikningurinn á að fara fram þegar lánssamningur gengur í gildi. Ekki skal tekið tillit til breytinga sem verða kunna á samningnum né hugsanlegra vanefnda á samningi.
Um 12. gr.
Í greininni segir við hvað skuli miða útreikning árlegrar hlutfallstölu ef ekki er kveðið á um það í samningi. Þetta ákvæði svarar til 6. og 7. tölul. a-liðar 1. gr. í tilskipun. Ákvæðið skýrir sig sjálft.
Um 13. gr.
Þetta ákvæði er í samræmi við 3. gr. framangreindrar tilskipunar. Samkvæmt því er lögð ákveðin upplýsingaskylda á herðar lánveitanda í auglýsingum.
Um 14. gr.
Eins og fram kemur í almennum athugasemdum, 9. lið, felur framangreind tilskipun ekki í sér neinar reglur um það hvaða áhrif það hefur að lánveitandi fullnægi ekki upplýsinga
Í þessu ákvæði eru reglur um það hvað varðar lánssamninga með fastri lánsfjárhæð.
Meginreglan er sú að ekki sé hægt að krefja um frekari lántökukostnað í prósentum en samningurinn kveður á um. Ef ekki eru veittar upplýsingar um lántökukostnað á lántakandi að greiða höfuðstól og ársvexti sem samsvara vöxtum á almennum skuldabréfum.
Þessar reglur gilda ekki ef lánveitandi getur sannað að lántakanda hefði mátt vera ljóst hver lántökukostnaðurinn átti að vera.
Um 15. gr.
Tilgangur ákvæðisins er að fá lánveitanda til þess að fullnægja upplýsingaskyldunni. Meginreglan er sú að lánveitandi skuli bera afleiðingarnar af því ef hann fullnægir ekki þess
Um 16. gr.
Með þessu ákvæði er verið að fullnægja 8. gr. tilskipunar nr. 87/102 EBE. Er skýrt kveðið á um það að lántakandi eigi rétt á að standa skil á skuldbindingum sínum fyrir þann tíma sem ákveðinn er í samningi. Í því tilviki á lántakandi rétt á því að krefjast lækkunar á lánskostnaði og fer þá eftir þeim reglum sem fram koma í 19. gr.
Um 17. gr.
Í þessu ákvæði er að finna reglur um það hvenær lánveitandi getur krafist greiðslu fyrir gjalddaga. Skilyrði þess eru talin upp í 1.–36. tölul. og verða þau að koma fram í samningnum. Tryggir þetta mjög rétt lántakanda. Sjálfir töluliðirnir þarfnast ekki skýringa.
Um 18. gr.
Samkvæmt þessari grein verður lánveitandi að segja samningi upp með ákveðnum fyrir
Um 19. gr.
Í þessu ákvæði eru reglur um það til hvaða atriða skal tekið tillit við útreikning á skuld þegar greitt er fyrir gjalddaga. Koma reglurnar fram í þremur töluliðum og skýra sig sjálfar.
Um V. kafla.
Í kaflanum eru reglur sem vernda lántakanda við kröfuhafaskipti.
Um 20. gr.
Þetta ákvæði svarar til 9. gr. tilskipunar nr. 87/102 EBE. Ákvæðið tryggir að lántakandi geti borið fyrir sig gagnvart þriðja aðila hverja þá vörn sem honum var tiltæk gagnvart upp
Í skýringum við 9. og 10. gr. framangreindrar tilskipunar kemur fram að ákvæðið í 9. gr. hreyfir ekki við 10. gr. hvað varðar viðskiptabréfareglur. Lántakandi getur því þrátt fyrir 9. gr. misst rétt gagnvart þriðja manni ef hann skrifar undir viðskiptabréf.
Í 3. mgr. þessarar greinar kemur fram sú regla að þetta gildir einungis ef lántakandi er í góðri trú.
Samkvæmt 4. mgr. getur lántakandi öðlast rétt á hendur framsalshafa vegna kaupa þar til uppgjör vegna kaupanna hefur farið fram.
Um 21. gr.
Þetta svarar til 10. gr. í framangreindri tilskipun. Samkvæmt því ákvæði skulu aðildarríkin sjá til þess að neytendur njóti tilhlýðilegrar verndar varðandi viðskiptabréf. Er með þessu ákvæði í frumvarpinu verið að banna notkun viðskiptabréfa í viðskiptum við lántakendur. Lánveitanda er ekki heimilt að taka við slíkum bréfum sem orðuð eru í ákvæðinu.
Um 22. gr.
Í greininni eru talin upp þau skilyrði sem þurfa að vera til staðar við kaup með eignarrétt
Um VII. kafla.
Með ákvæðum í þessum kafla er verið að fullnægja 7. gr. framangreindrar tilskipunar. Samkvæmt henni verður að kveða á um skilyrði fyrir endurheimt eignarréttar. Einnig verður að tryggja samkvæmt tilskipuninni að endurheimt hafi eigi í för með sér neina ótilhlýðilega auðgun.
Um 23. gr.
Í greininni koma fram skilyrði fyrir að endurheimta hluti. Skal það gert með atbeina sýslu
Um 24. gr.
Með þessu ákvæði er lántakanda tryggður sá réttur að hann geti greitt skuld eftir gjalddaga en áður en hlutur hefur verið endurheimtur.
Um 25. gr.
Í þessu ákvæði felast reglur um útreikning eftirstöðva skuldar þegar lánveitandi vill end
Um 26. gr.
Í greininni er kveðið á um að andvirði söluhlutar skuli renna til kaupanda.
Um 27. gr.
Ákvæði um að lántakandi eigi rétt á mismun til þess að lánveitandi geti tekið söluhlut ef um það er að ræða.
Um 28. gr.
Þarna er gert ráð fyrir þeirri meginreglu að seljandi geti ekki krafist mismunar ef andvirði söluhlutar er minna en lánveitandi getur krafist.
Um 29. gr.
Þarna er gert ráð fyrir að lánveitandi geti krafist mismunar ef ákvæði 23. gr. er til fyrir
Um 30. gr.
Þetta ákvæði tryggir rétt lántakanda við endurheimt. Samkvæmt 1. mgr. getur hann valið að halda eftir t.d. einum hlut af mörgum gegn ákveðnum skilyrðum. Í 2. mgr. er lántakanda tryggður sá mikilvægi réttur að hann geti í vissan tíma leyst endurheimta hluti til sín aftur. Samkvæmt 3. mgr. á lántakandi ekki rétt á þessu ef hlutur er úr safni eða samstæðu og að
Um 31. gr.
Hér er ráðherra veitt almenn heimild til þess að undanþiggja frá lögunum tilteknar tegund
Um 32. gr.
Ákvæðið heimilar ráðherra að setja reglur um hvernig prenta eigi leiðbeiningar um réttar
Um 33. gr.
Ráðherra er þar veitt heimild til þess að breyta upphæðarmörkum í samningum sem lögin taka til.
Um 34. gr.
Gert er ráð fyrir sektarrefsingum samkvæmt frumvarpinu. Lögaðila má einnig gera sekt.
Um 35. gr.
Tilraun og hlutdeild einnig refsiverð.
Um 36. gr.
Samkvæmt ákvæðinu má ekki víkja frá lögunum lántakanda í óhag. Er það í samræmi við 14. gr. tilskipunar nr. 87/102 EBE.
Um 37. gr.
Lagt er til að lögin öðlist gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið að því er Ísland varðar.
Fylgiskjal I.
Drög að reglugerð um árlega hlutfallstölu kostnaðar.
(Tölvutækur texti ekki til.)
Fylgiskjal II.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um neytendalán.
Með frumvarpi þessu er ætlað að koma á þeirri reglu í flestum lánsviðskiptum að lánveit
Ekki verður séð að frumvarp þetta leiði af sér sérstakan kostnað fyrir ríkissjóð þar sem dómstólar munu verða að fjalla um allar afleiðingar af deilum um lánsviðskipti sem upp kunna að koma vegna laga þessara og framkvæmdarvaldið mun verða að hafa lítil afskipti þar af.