Ferill 19. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 19 . mál.


19. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 92/1986, um Kjaradóm, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



1. gr.

    Við 6. gr. laga nr. 92/1986, um Kjaradóm, með síðari breytingum, bætast tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:
    Enn fremur skal Kjaradómur við úrlausn mála taka tillit til stöðu og þróunar kjaramála á vinnumarkaði, svo og efnahagslegrar stöðu þjóðarbúsins og afkomuhorfa þess.
    Telji Kjaradómur ástæðu til að gera sérstakar breytingar á kjörum einstakra embættismanna eða hópa skal þess gætt að það valdi sem minnstri röskun á vinnumarkaði.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Kjaradómur skal svo fljótt sem verða má, og eigi síðar en 31. júlí 1992, kveða upp nýja úrskurði á grundvelli þessara laga.
    Gildistaka hinna nýju úrskurða skal miðast við 1. ágúst 1992.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Um frumvarp þetta, sem lagt er fyrir Alþingi skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar, vísast að öðru leyti til meðfylgjandi fylgiskjals.



Fylgiskjal.


BRÁÐABIRGÐALÖG


um breyting á lögum um Kjaradóm nr. 92/1986


með síðari breytingum.



Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Fjármálaráðherra hefur tjáð mér, að brýna nauðsyn beri til að breyta nú þegar lögum um Kjaradóm nr. 92/1986 með síðari breytingum vegna tveggja úrskurða sem Kjaradómur kvað upp hinn 26. júní sl. Nauðsynlegt sé að breyta þeim laga- og efnisreglum, sem niðurstöður Kjaradóms hvíla á, þannig að þær taki mið af stöðu og afkomuhorfum þjóðarbúsins og almennum launabreytingum í kjarasamningum annarra launþega í landinu. Á þessu ári hafi tekist að treysta stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar. Ein mikilvægasta forsenda þessa stöðugleika felist í kjarasamningum við þorra launafólks um hóflegar launahækkanir. Afar brýnt sé að varðveita þennan stöðugleika og þá samstöðu, sem náðst hafi til að mæta þeim áföllum, sem þjóðarbúið hafi orðið fyrir. Niðurstöður Kjaradóms frá 26. júní sl. tefli þessum árangri í mikla tvísýnu. Staðfesting þessa komi m.a. fram í yfirlýsingum aðila á vinnumarkaði.
                      Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið:


1. gr.


    Við 6. gr. laga nr. 92/1986 um Kjaradóm með síðari breytingum bætast tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:
    Enn fremur skal Kjaradómur við úrlausn mála taka tillit til stöðu og þróunar kjaramála á vinnumarkaði, svo og efnahagslegrar stöðu þjóðarbúsins og afkomuhorfa þess.
    Telji Kjaradómur ástæðu til að gera sérstakar breytingar á kjörum einstakra embættismanna eða hópa skal þess gætt að það valdi sem minnstri röskun á vinnumarkaði.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Ákvæði til bráðabirgða.


    Kjaradómur skal svo fljótt sem verða má, og eigi síðar en 31. júlí 1992, kveða upp nýja úrskurði á grundvelli þessara laga.
    Gildistaka hinna nýju úrskurða skal miðast við 1. ágúst 1992.


Gjört á Akranesi, 3. júlí 1992.


Vigdís Finnbogadóttir.


(L. S.)


________________

Friðrik Sophusson.