Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 20 . mál.


20. Frumvarp til laga



um hópuppsagnir.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



1. gr.


    Ákvæði 1.–4. gr. eiga við um uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum af ástæðum sem ekki tengjast hverjum einstökum þeirra þegar fjöldi starfsmanna, sem sagt er upp á 30 daga tímabili, er:
    að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa fleiri en 20 og færri en 100 starfsmenn í vinnu,
    að minnsta kosti 10% starfsmanna í fyrirtækjum sem venjulega hafa hið minnsta 100 starfsmenn, en færri en 300 starfsmenn í vinnu,
    að minnsta kosti 30 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 300 starfsmenn eða fleiri í vinnu.

2. gr.


    Áformi atvinnurekandi uppsagnir skv. 1. gr. skal hann hafa samráð við trúnaðarmann starfsmanna eða annan fulltrúa sem þeir hafa til þess valið svo fljótt sem auðið er.
     Með samráðinu skal stefnt að því að ná samkomulagi til að komast hjá uppsögnum að svo miklu leyti sem mögulegt er og draga úr afleiðingum þeirra.
     Trúnaðarmenn eða aðrir fulltrúar starfsmanna skulu eiga rétt á að fá allar upplýsingar frá atvinnurekanda, sem máli skipta, um fyrirhugaðar uppsagnir. Tilgreina skal skriflega ástæður uppsagna, fjölda starfsmanna sem til stendur að segja upp, hve margir eru að jafnaði í vinnu og á hvaða tímabili uppsagnirnar eiga að taka gildi.
     Atvinnurekandi skal senda afrit af öllum skriflegum upplýsingum, sem um getur í 3. mgr., til stjórnar vinnumiðlunar í umdæminu. Sé vinnumiðlun ekki fyrir hendi í sveitarfélaginu skulu gögn send viðkomandi sveitarstjórn.

3. gr.


    Áformi atvinnurekandi að höfðu samráði skv. 2. gr. hópuppsagnir starfsmanna skal hann tilkynna skriflega þær uppsagnir sem fyrirhugaðar eru til stjórnar vinnumiðlunar í umdæminu.
     Í tilkynningu þessari skulu koma fram allar upplýsingar, sem máli skipta, um fyrirhugaðar hópuppsagnir, svo og um samráð það við fulltrúa starfsmanna sem kveðið er á um í 2. gr., einkum ástæður uppsagnanna, hve mörgum starfsmönnum stendur til að segja upp, hve margir starfsmenn eru að jafnaði í vinnu og á hvaða tímabili uppsagnirnar eiga að taka gildi.
     Atvinnurekendur skulu koma afriti af tilkynningunni, sem kveðið er á um í 1. mgr., til fulltrúa starfsmanna.
     Fulltrúar starfsmanna geta komið á framfæri öllum athugasemdum, sem þeir hafa fram að færa, við stjórn vinnumiðlunar í umdæminu.

4. gr.


    Uppsagnir samkvæmt ákvæðum 1.–3. gr. taka fyrst gildi 30 dögum eftir að tilkynning um fyrirhugaðar uppsagnir berst stjórn vinnumiðlunar í umdæminu.
    Frestinn, sem kveðið er á um í 1. mgr., skal stjórn vinnumiðlunar nota til að leita lausnar á þeim vanda sem fyrirhugaðar uppsagnir munu valda.
     Fulltrúar starfsmanna og atvinnurekandi eða fulltrúar hans skulu gæta þagnarskyldu varðandi upplýsingar sem gefnar eru samkvæmt ákvæðum þessara laga.

5. gr.


    Ákvæði 1.–4. gr. gilda ekki um:
    uppsagnir sem koma til framkvæmda samkvæmt ráðningarsamningum sem gerðir eru til ákveðins tíma eða vegna sérstakra verkefna nema slíkar uppsagnir eigi sér stað áður en þeir samningar renna út eða verkefni lýkur,
    áhafnir skipa,
    starfsmenn sem missa vinnu sína þegar starfsemi fyrirtækis stöðvast vegna dómsúrskurðar.
     Uppsagnarfrestur starfsmanna samkvæmt lögum, kjarasamningum eða ráðningarsamningum breytist ekki þrátt fyrir ákvæði laga þessara.

6. gr.


    Leiði ráðgerður samdráttur eða aðrar ráðgerðar breytingar í fyrirtæki til uppsagnar fjögurra eða fleiri starfsmanna er atvinnurekanda skylt að tilkynna uppsagnir til vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins og viðkomandi verkalýðsfélags með tveggja mánaða fyrirvara.

7. gr.


    Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði öðlast gildi að því er Ísland varðar.
    Jafnframt fellur úr gildi 55. gr. laga nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o.fl.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er lagt fyrir Alþingi vegna fullgildingar samnings um aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði. Með samþykkt frumvarpsins eru lögfestar reglur sem settar eru fram í tilskipun Evrópubandalagsins nr. 75/129/EEC um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um hópuppsagnir. Samkvæmt 6. gr. tilskipunarinnar og með vísan til samnings um Evrópskt efnahagssvæði skulu aðildarríkin setja nauðsynleg lög og stjórnvaldsfyrirmæli til að hrinda markmiðum hennar í framkvæmd.
     Frumvarpið er samið af nefnd sem félagsmálaráðherra skipaði til að undirbúa aðild Íslands að frjálsum atvinnu- og búseturétti á Evrópsku efnahagssvæði. Nefndinni var einnig falið að fjalla um þann þátt félagsmála sem snertir samtök aðila vinnumarkaðarins. Í nefndina voru skipuð:
    Frá félagsmálaráðuneyti:
     Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri, formaður, Gylfi Kristinsson deildarstjóri og     Þórhildur Líndal deildarstjóri.
     Frá Alþýðusambandi Íslands:
     Ari Skúlason hagfræðingur og Lára V. Júlíusdóttir framkvæmdastjóri.
     Frá Vinnuveitendasambandi Íslands:
     Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur og Kristján Jóhannsson hagfræðingur.
     Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk nefndarinnar að koma með tillögur um það hvernig tryggt verði í framkvæmd að Ísland uppfylli þær reglur sem gilda munu á sviði félags- og vinnumála á Evrópska efnahagssvæðinu á sama tíma og tryggt verði að aðilar vinnumarkaðarins geti fylgst með atvinnuþátttöku útlendinga hér á landi og að íslenskum kjarasamningum og íslenskum lögum sé framfylgt. Nefndin varð sammála um að eðlilegast væri að efni tilskipunarinnar væri í sérlögum, enda ekki ótvírætt í hvaða lögum þessi nýju ákvæði ættu annars heima.
     Frumvarpið felur í sér að tekið er á þeim vandamálum sem fylgja hópuppsögnum sem næst vettvangi og að sveitarfélögin eða vinnumiðlanir þeirra, þar sem þær starfa, annist þessi verkefni. Þar sem sveitarfélag er með fleiri en 500 íbúa verður það að jafnaði stjórn vinnumiðlunar sem annast þetta verkefni. En þar sem íbúar eru færri en 500 verður þetta verkefni sveitarstjórnar eða þess aðila sem hún ákveður að fela slík verkefni eins og t.d. þeim sem annast atvinnuleysisskráningu í sveitarfélaginu. Þetta frumvarp leggur fyrst og fremst áherslu á að sveitarstjórn bregðist við vanda í atvinnumálum í sínu sveitarfélagi eins og hún telur best gert hverju sinni.
     Hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins breytist ekki með þessum lögum. Hlutverk hennar er fyrst og fremst að hafa heildarsýn yfir stöðu og þróun atvinnumála í landinu. Eitt af verkefnunum verður eftir sem áður að taka við tilkynningum um uppsagnir og meta atvinnuástandið og þróun þess út frá þessum upplýsingum sem öðrum, sbr. 6. gr. frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í greininni er skilgreint hvað átt sé við með orðinu hópuppsagnir. Hugtakið er skilgreint með sama hætti og í tilskipun Evrópubandalagsins um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um hópuppsagnir nr. 75/129/EBE. Tekið skal fram að í kjarasamningum geta aðilar vinnumarkaðarins samið um betri rétt en veittur er skv. 1. mgr. þessarar greinar.

Um 2. gr.


    Í greininni er kveðið á um samráð atvinnurekenda við trúnaðarmann starfsmanna eða annan fulltrúa, sem þeir hafa til þess valið, vegna hugsanlegra hópuppsagna.
     Að öllu jöfnu er átt við trúnaðarmenn, svo sem sbr. lög nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur. Hins vegar getur verið um það að ræða að starfsmenn hafi kosið sérstakan fulltrúa til að sinna slíkum málum eða að engum trúnaðarmanni sé til að dreifa á viðkomandi vinnustað eða í viðkomandi starfsgrein. Aðalatriðið er að um sé að ræða starfsmann á viðkomandi vinnustað sem starfsmenn líta á sem sinn fulltrúa og að ekkert vafamál sé um við hvern eigi að hafa samráð á vinnustað. Þessi athugasemd á við aðrar greinar þessara laga þar sem þetta orðalag kemur fyrir.
     Á því skal vakin athygli að þetta ákvæði hefur þegar verið útfært í kjarasamningum milli helstu samtaka á vinnumarkaði. Þar er tekið fram að samráð skuli eiga sér stað áður en til uppsagna komi.
     Í 4. mgr. er kveðið á um að senda beri afrit af öllum skriflegum upplýsingum, sem um getur í 3. mgr., til stjórnar vinnumiðlunar í umdæminu eða til sveitarstjórnar ef engin vinnumiðlun er starfrækt í sveitarfélaginu. Hugtakið umdæmi er hér notað í stað sveitarfélaga til að halda því opnu að sveitarfélög geti sameinast um rekstur vinnumiðlunar. Þessi athugasemd á við síðari greinar þar sem fjallað er um vinnumiðlun í umdæminu að sveitastjórnir koma í þeirra stað þar sem t.d. ekki er skylt að reka vinnumiðlun eins og í sveitarfélögum með færri en 500 íbúa.

Um 3. gr.


    Þessi grein kveður á um hvernig beri að standa að því að senda tilkynningu um fyrirhugaðar hópuppsagnir til hlutaðeigandi stjórnvalds, þ.e. stjórnar vinnumiðlunar eða sveitarstjórnar. Þá er kveðið á um efnislegt innihald þessara tilkynninga og skyldu atvinnurekenda til að koma afriti af tilkynningunni til fulltrúa starfsmanna. Í niðurlagi greinarinnar er ábending um að fulltrúar starfsmanna geri sínar athugasemdir ef einhverjar eru og komi þeim á framfæri við hlutaðeigandi stjórnvald.

Um 4. gr.


    Fram kemur í greininni að uppsagnir, sem hafa verið tilkynntar samkvæmt lögunum, taki fyrst gildi 30 dögum eftir að tilkynning hefur borist hlutaðeigandi stjórnvaldi. Uppsagnarfrestur þeirra sem hafa t.d. styttri uppsagnarfrest breytist ekki, sbr. 5. gr. laganna.

Um 5. gr.


    Í greininni eru nefndar þær undantekningar sem eru frá lögunum. Í a-lið er t.d. átt við einstaklinga eða hópa sem ráðnir eru til reynslu eða með tímabundnum ráðningarsamningi. Í c-lið er fyrst og fremst átt við fyrirtæki sem hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta eða rekstur þess stöðvaður vegna ólögmætrar starfsemi.
     Í síðustu málsgrein er vakin athygli á að ákvæði laganna hafi ekki áhrif á uppsagnarfrest samkvæmt lögum nr. 19/1979, kjarasamningum eða ráðningarsamningum.

Um 6. gr.


    Í núgildandi löggjöf eru einungis að finna ákvæði um tilkynningu vegna uppsagna fjögurra eða fleiri starfsmanna, sbr. 55. gr. laga nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o.fl. Hér er lagt til að ákvæði þetta verði efnislega fellt inn í þessi lög. Þetta þýðir að hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins varðandi hópuppsagnir er að mestu leyti óbreytt. Ástæður þess að fella þetta ákvæði inn í þessi lög er bæði sú að hafa hliðstætt efni í sömu lögum og undirstrika það hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að hafa heildaryfirsýn í slíkum málum, en búast má við að vinnumálaskrifstofan geri kröfur um upplýsingar frá vinnumiðlunum eða sveitarstjórnum í slíkum málum þegar ástæða er til, sbr. 2. gr. laga nr. 18/1985, um vinnumiðlun. Ákvæðið á að tryggja að vitneskja um hópuppsagnir berist til ráðuneytisins og verkalýðsfélaga.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.