Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 24 . mál.


24. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um jarðhitaleit í Austur-Skaftafellssýslu.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvaða niðurstöður eða vísbendingar liggja fyrir eftir jarðhitaleit í Austur-Skaftafellssýslu á þessu ári?
    Mun ráðherra beita sér fyrir fjárveitingu til áframhaldandi rannsókna á þessu svæði á fjárlögum 1993?