Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 28 . mál.


29. Frumvarp til laga



um breytingu á lagaákvæðum er varða samgöngumál vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



I. KAFLI


1. gr.


Lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989.


    Við 12. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
    Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði leiguaksturs með vörur og farþega að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

2. gr.


Lög um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum, nr. 53/1987.


     Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði fólksflutninga með langferðabifreiðum að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

3. gr.


Siglingalög, nr. 34/1985, með síðari breytingum.


     Á eftir XV. kafla laganna kemur nýr kafli, XVI. kafli. Breytist númeraröð gildandi
XVI. kafla og greina hans til samræmis við það. Hinn nýi kafli orðast svo:

XVI. KAFLI


Um aðild að Evrópsku efnahagssvæði.


243. gr.


     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði siglingalaga að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

4. gr.


Lög um eftirlit með skipum, nr. 51/1987, með síðari breytingum.


     Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
    Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir um eftirlit með skipum að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

5. gr.


Lög um leiðsögu skipa, nr. 48/1933.


    Við 1. tölul. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins skulu frá og með gildistöku samnings um hið Evrópska efnahagssvæði vera undanþegnir skilyrði um íslenskt ríkisfang samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð.
    Á eftir V. kafla laganna kemur nýr kafli, VI. kafli. Hinn nýi kafli orðast svo:

VI. kafli


Um aðild að Evrópsku efnahagssvæði.


28. gr.


     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir um leiðsögu skipa að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

6. gr.


Hafnalög, nr. 69/1984, með síðari breytingum.


     Við 40. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði hafnamála að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

7. gr.


Vegalög, nr. 6/1977, með síðari breytingum.


     Á eftir 6. gr. laganna bætist við ný grein, 6. a, sem orðast svo:
     Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði vegamála að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

8. gr.


Lög um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985.


    Á eftir c-lið 1. mgr. 2. gr. laganna bætist við nýr málsliður er orðast svo: Ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins skulu frá og með gildistöku samnings um hið Evrópska efnahagssvæði vera undanþegnir skilyrði um heimilisfesti á Íslandi samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð.
    Við 14. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
                  Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir um veitinga- og gististaði að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

9. gr.


Lög um skipulag ferðamála, nr. 79/1985, með síðari breytingum.


    Við b-lið 1. mgr. 15. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins skulu frá og með gildistöku samnings um hið Evrópska efnahagssvæði vera undanþegnir skilyrði um ríkisfang á Íslandi samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð.
    Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
                  Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir um skipulag ferðamála að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga er leiðir af samningi um Evrópskt efnahagssvæði milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið.

10. gr.


Lög um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum.


     Á eftir 2. málsl. 1. gr. laganna bætist við nýr málsliður er orðast svo: Þennan rétt hafa einnig ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins frá og með gildistöku samnings um hið Evrópska efnahagssvæði samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur með reglugerð.

II. KAFLI


Gildistaka.


11. gr.


         Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


1. Almennar athugasemdir.


     Segja má að lykilorðin í stefnu Evrópubandalagsins í flutningamálum séu frelsi og
samræming sem byggist á eftirfarandi grundvallaratriðum:
    Frelsi til að láta í té þjónustu.
    Afnámi hindrana í vegi frjálsrar samkeppni.
    Afnámi ríkisstyrkja, eflingu öryggis og mengunarvarna.
    Almennum reglum Rómarsáttmálans um samkeppni, rétti til stofnunar fyrirtækja o.s.frv.
    Samræmingu á gildandi stefnu aðildarríkja í flutningamálum.
     Flutningamál gegna mikilvægu hlutverki í mótun hins innri markaðar Evrópu. Markmiðið er að skapa bestu hugsanlegu skilyrði svo að samgöngur með farþega og vörur verði án mikilla hindrana í bandalaginu og myndun hins innri markaðar verði þannig auðvelduð.
     Með því að samþykkja ýmsar mikilvægar reglur EB á sviði flutningamála sem hluta af EES-samningnum hafa EFTA-ríkin samþykkt að laga hluta löggjafar sinnar að hinni sameiginlegu flutningastefnu EB. Rétt er að taka fram að ákvæði samningsins hér að lútandi gilda fyrst og fremst um alþjóðlega flutningastarfsemi en ekki um innanlandsflutninga. Aðildarríkjum samningsins verður því áfram heimilað að móta eigin stefnu í innanlandsflutningum, en þau mega þó ekki mismuna fólki og fyrirtækjum sökum þjóðerniskrafna. Gildandi íslenskri löggjöf og stefnumörkun í samgöngumálum verður því ekki breytt af því tilefni, en öðru máli getur gegnt um ýmis samræmingaratriði, t.d. um gerð og búnað bifreiða, ökuskírteini o.fl.

2. Um heimildarákvæði vegna gerða EES-samningsins á sviði flutninga.


    
Í III. hluta samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, 6. kafla, eru ákvæði um flutningastarfsemi (47.–52. gr.). Um ákvarðanatöku og eftirlit með framkvæmd samningsins, þar á meðal á sviði samgöngumála, eru ákvæði í 2. kafla VII. hluta samningsins (97. gr. – 111. gr.). Til nánari skýringar er vísað til almennu greinargerðarinnar með frumvarpi til laga um Evrópska efnahagssvæðið. Þær bókanir EES-samningsins, er tengjast flutningastarfsemi, eru eftirfarandi:
     1. bókun — um almenna aðlögun.
     19. bókun — um flutninga á sjó.
     20. bókun — um aðgang að skipgengum vatnaleiðum.
     37. bókun — um skrá sem getið er í 101. gr. samningsins. Þar er kveðið á um samstarf sérfræðinga EFTA-ríkjanna í sérstakri nefnd um samgöngumannvirki líkt og Evrópubandalagið kom á fót með sérfræðingum frá aðildarríkjum þess með ákvörðun ráðsins 78/194/EBE.
     43. og 44. bókun sem kveða á um sérstaka samninga Evrópubandalagsins við Austurríki annars vegar og Sviss hins vegar.
     XIII. viðauki EES-samningsins fjallar um flutningastarfsemi. Þar eru taldar allar þær gerðir eða samþykktir Evrópubandalagsins er lúta beint að flutningastarfsemi og ætlast er til með EES-samningnum að lögfestar verði hér á landi með beinum eða óbeinum hætti. Langstærstur hluti gerða XIII. viðaukans fjallar um flutninga á landi og vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum. Íslensk flutningafyrirtæki starfa takmarkað á sumum þeim sviðum og hefur því gildistaka gerðanna ekki mikla raunhæfa þýðingu hér á landi. Þó eru gerðir á sviði landflutninga sem hafa munu áhrif hér. Hér er einkum um að ræða gerðir er miða að samræmingu á stöðlum og öðrum kröfum, t.d. kröfur til flutningstækja á sviði tæknistaðla og öryggis, reglur um vinnuvernd, aðgang að flutningamarkaði o.fl.
     Gerðir XIII. viðauka á sviði sjóflutninga lúta fyrst og fremst að rekstri kaupskipaútgerðarinnar. Opinber afskipti af sjóflutningum hafa verið lítil og er meginreglan þar frelsi til siglinga, þ.e. án afskipta ríkisvaldsins. Stefnumótun EB miðast að því að styrkja stöðu kaupskipaútgerðar aðildarríkja undir eigin þjóðfána og auka hlutdeild EB-ríkjanna í alþjóðlegri kaupskipaútgerð.
     Um ferðamál er fjallað í VI. hluta samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, „samvinna utan marka fjórþætta frelsisins“, einkum í 78. og 79. gr. Einnig er í 8. gr. 31. bókunar við samninginn fjallað um nánari samvinnu og aðgerðir á sviði ferðamála.
    Í VII. viðauka samningsins er fjallað um gagnkvæma viðurkenningu á starfsmenntun og hæfi. Til að mynda er í G-lið, 38. tölul. þess viðauka, fjallað um aðgerðir á sviði ferðamála. Í I-lið, 43. tölul. sama viðauka, er fjallað um samvinnu og aðgerðir er varða rekstur veitinga- og gististaða.
     Með frumvarpi þessu er lagt til að lögfest verði heimild til að setja þær reglur á sviði samgöngu- og ferðamála sem kveðið er á um í VII. og XIII. viðauka EES-samningsins og ekki verður skipað í önnur lög. Hér er átt við þær gerðir sem hvorki brjóta í bága við gildandi lög né falla beint undir önnur heimildarákvæði laganna. Þykir því nauðsynlegt að lögbinda sérstakar heimildir til reglugerðarsetningar á sviði flutninga- og ferðamála á gildissviði EES-samningsins.
     Öðru máli gegnir um ýmsar aðrar gerðir viðaukans sem annaðhvort brjóta í bága við gildandi lög eða eru þess eðlis að rétt þykir að setja í lög efnisatriði hlutaðeigandi gerðar.

3. Lagabreytingar sem varða ríkisfang og búsetu.


    
Meginregla samningsins um Evrópskt efnahagssvæði um jafnræði ríkisborgara svæðisríkja er lögfest í 1. og 2. kafla III. hluta samningsins. Í 1. kafla er fjallað um launafólk og sjálfstætt starfandi einstaklinga og í 2. kafla um fyrirtæki (staðfesturéttur). Á sviði samgöngumála þarf að breyta eftirfarandi lagaákvæðum er varða ríkisfang og búsetuskilyrði vegna ákvæða samningsins:
     Lögum um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985, 2. gr.
     Lögum um skipulag ferðamála, nr. 79/1985, með síðari breytingum, 15. gr.
     Lögum um leiðsögu skipa, nr. 48/1933, 3. gr.
     Lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum.
     Ákvæðum laga um loftferðir hér að lútandi verður breytt við heildarendurskoðun laganna.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði leiguaksturs með vörur og farþega og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er um að ræða I. kafla viðaukans, um flutninga á landi, en þó einkum II. kafla er fjallar um flutning á vegum.

Um 2. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði fólksflutninga með langferðabifreiðum og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er um að ræða I. kafla viðaukans, um flutninga á landi, en þó einkum II. kafla er fjallar um flutning á vegum.

Um 3. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði siglingalaga og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er um að ræða V. kafla viðaukans, um flutninga á sjó.
     Núgildandi siglingalög eru nr. 34/1985, sbr. lög nr. 21/1986, nr. 19/1991 (64. tölul. 194. gr.) og 82. gr. laga nr. 92/1991.

Um 4. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast eftirliti með skipum og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er um að ræða V. kafla viðaukans, um flutninga á sjó.
     Núgildandi lög um eftirlit með skipum eru nr. 51/1987, sbr. 67. tölul. 194. gr. laga nr. 19/1991.

Um 5. gr.


     Ákvæði um ríkisfang leiðir af skuldbindingum í samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði varðandi jafnræði borgara svæðisríkjanna og þarfnast ekki nánari skýringar.
     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast leiðsögu skipa og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er um að ræða V. kafla viðaukans, um flutninga á sjó.
     Núgildandi lög um leiðsögu skipa eru nr. 48/1933.

Um 6. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði hafnalaga og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins. Hér er aðallega um að ræða I. kafla viðaukans, um flutninga á landi, en einnig V. kafla viðaukans, um flutninga á sjó.
     Núgildandi hafnalög eru nr. 69/1984, sbr. 68. og 69. gr. laga nr. 108/1988, sbr. 29.–32. gr. og 54. gr. laga nr. 1/1992.

Um 7. gr.


     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði vegalaga og um er getið í XIII. viðauka EES-samningsins, einkum I. kafla hans, um flutninga á landi. Einnig er vísað til 101. gr. EES-samningsins og 37. bókunar en þar er kveðið á um samstarf sérfræðinga EFTA-ríkjanna í sérstakri nefnd um samgöngumannvirki líkt og Evrópubandalagið kom á fót með sérfræðingum frá aðildarríkjum þess með ákvörðun ráðsins 78/194/EBE.
     Núgildandi vegalög eru nr. 6/1977, sbr. lög nr. 30/1983, nr. 38/1983, nr. 55/1988, 67. gr. laga nr. 108/1988 og 72.–73. gr. laga nr. 87/1989.

Um 8. gr.


     Ákvæði um búsetu leiðir af skuldbindingum í samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði varðandi jafnræði borgara svæðisríkjanna og þarfnast ekki nánari skýringar. Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast rekstri veitinga- og gististaða og um er getið í almennum inngangi frumvarps þessa.
     Núgildandi lög um veitinga- og gististaði eru nr. 67/1985.

Um 9. gr.


     Ákvæði um ríkisfang leiðir af skuldbindingum í samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði varðandi jafnræði borgara svæðisríkjanna og þarfnast ekki nánari skýringar.
     Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins er tengjast sviði ferðamála og um er getið í almennum inngangi frumvarps þessa.
     Núgildandi lög um skipulag ferðamála eru nr. 79/1985, sbr. lög nr. 59/1988, sjá einnig 55. gr. laga nr. 1/1992.

Um 10. gr.


     Ákvæði um ríkisfang og búsetu leiðir af skuldbindingum í samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði varðandi jafnræði borgara svæðisríkjanna og þarfnast ekki nánari skýringar.
     Núgildandi lög um skráningu skipa eru nr. 115/1985, sbr. 15. tölul. 195. gr. laga nr. 19/1991, sbr. 24. gr. laga nr. 23/1991 og 85. gr. laga nr. 92/1991.

Um 11. gr.


     Ákvæðið um gildistöku þarfnast ekki skýringar.