Ferill 40. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 40 . mál.


41. Frumvarp til laga



um jöfnun verðlags.

Flm.: Ragnar Arnalds, Margrét Frímannsdóttir.



1. gr.


    Markmið laga þessara er að stuðla að því að lífskjör þjóðarinnar verði sem jöfnust óháð búsetu. Í þeim tilgangi ber að tryggja, eftir því sem kostur er, að algengustu lífsnauðsynjar og almenn þjónusta verði boðnar á sama verði hvar sem er á landinu.

2. gr.


    Í stað 2. og 3. mgr. 11. gr. laga um stjórn og starfrækslu póst- og símamála, nr. 36/1977, kemur ný málsgrein er orðast svo:
    Eigi síðar en 1. maí 1993 skal samgönguráðherra ákveða að landið allt sé eitt gjaldsvæði og öll símtöl innan lands séu verðlögð á sama hátt óháð vegalengdum milli notenda.

3. gr.


    Á eftir 16. gr. laga um Landsvirkjun, nr. 42/1983, kemur ný grein svohljóðandi:
     Eigi síðar en 1. maí 1993 skal Landsvirkjun bjóða raforku í heildsölu til dreifiveitna á sama verði um land allt miðað við afhendingu orkunnar í spennistöð hjá viðkomandi dreifiveitu.
     Ríkisstjórnin skal vinna að samræmingu raforkuverðs í smásölu með ákvörðun hámarksverðs sem komi til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 1994. Í því skyni að gera dreifiveitum raforku kleift að laga sig að samræmdu orkuverði er ríkissjóði heimilt að yfirtaka hluta af skuldum þeirra og leggja fast gjald á alla raforkuvinnslu til að standa undir viðhaldi og afskriftum af sveitalínum.

4. gr.


    Við 1. gr. laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, nr. 56/1978, með síðari breytingum, bætist nýr stafliður svohljóðandi:
              c. að vinna að því að jafna vöruverð í landinu.
    Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:
                  Í reglum þessum skal stuðla að því að heildsölufyrirtæki bjóði smásöluverslunum vörur á sama verði um land allt og undirboð á einum stað séu ekki fjármögnuð með hærra verði annars staðar.

5. gr.


    Lög þessi taka þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp sama efnis var lagt fram á 115. löggjafarþingi. Það hlaut ekki afgreiðslu og er nú lagt fram á ný nær óbreytt.
    Löngu er orðið tímabært að algengustu lífsnauðsynjar og almenn þjónusta séu boðin á sama verði hvar sem er á landinu svo að lífskjör þjóðarinnar séu sem jöfnust óháð búsetu en staðreyndin er sú að verulegur munur er á verðlagi eftir landshlutum. Má þar nefna rafmagns- og hitunarkostnað, símakostnað, smásöluverð í verslunum, svo og verð á ýmiss konar þjónustu sem háð er flutningskostnaði. Í frumvarpi þessu er leitast við að jafna þennan mun að nokkru á þremur sviðum, þ.e. hvað varðar símakostnað, raforkuverð og heildsöluverð.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 2. gr.


    Engin rök mæla með því og enn síður nokkur sanngirni að dýrara sé fyrir símnotanda í einum landsfjórðungi en öðrum að hringja á höfuðborgarsvæðið þar sem langflestar ríkisstofnanir eru ásamt meiri hluta landsmanna. Mishá gjöld eftir svæðisnúmerum eru leifar frá liðnum tíma þegar símaþjónusta var handvirk. Þessa úreltu mismunun ber því tafarlaust að afnema.
     Ódýrustu þriggja mínútna samtöl kosta nú 5,81 kr. en 22 kr. þegar taxtinn er hæstur. Hlutfallið er 1:3,8. Þetta hlutfall hefur farið lækkandi á undanförnum árum og var fyrir tæpum áratug um 1:11. Póst- og símamálastofnunin greiðir 940 millj. kr. til ríkisins á þessu ári í arð eða um 11% af tekjum en greiddi árin þar á undan 500–550 millj. kr. Þess er að vænta að eitthvert lát verði á þessari miklu skattheimtu á símnotendur og enginn vafi á því að svigrúm er til að láta fullan jöfnuð símagjalda verða að veruleika.

Um 3. gr.


    Jöfnun raforkuverðs er miklu flóknara mál vegna þess hve skipulag raforkumála er flókið. Fullri jöfnun raforkuverðs má þó ná með ýmsum leiðum. Í þessu frumvarpi er við það miðað að vandinn verði leystur með sameiginlegu átaki Landsvirkjunar og ríkissjóðs, svo og einhverju framlagi orkuneytenda í formi orkugjalds, ef hjá því verður ekki komist.
     Rafmagnsverð til ljósa og heimilisnotkunar er nú um 20% hærra hjá Rafmagnsveitum ríkisins en hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Talið er að árssala Rarik til ljósa og almennrar heimilisnotkunar mundi lækka um 116 millj. kr. ef taxtinn yrði hliðstæður taxta Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
     Meginástæða þessa mikla munar er sú að Rarik ber kostnað af viðhaldi og afskriftum af dreifikerfinu um sveitir landsins og nema afskriftirnar af dreifilínum í sveitum um 300 millj. kr. árlega en Rarik fær ekki nema brot af þessum kostnaði greiddan úr ríkissjóði — á þessu ári 15 millj. kr. Hliðstætt gildir um Orkubú Vestfjarða. Af þessum tölum má sjá að fengju Rafmagnsveitur ríkisins helming af afskriftum sveitalínanna greiddan af almannafé árlega ætti fyrirtækið auðvelt með að bjóða raforku til heimilisnota á hliðstæðu verði og Rafmagnsveita Reykjavíkur.

Um 4. gr.


    Á sl. vetri kannaði Verðlagsstofnun verð í á annað hundrað matvöruverslunum um land allt. Í þessum könnunum kom í ljós að smásöluverð á landsbyggðinni hefur farið hækkandi síðustu tvö árin í samanburði við verðlag í Reykjavík. Það reyndist t.d. 9% hærra á Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu en var 6% hærra fyrir tveimur árum. Svipuð þróun hafði átt sér stað á Vesturlandi, Norðurlandi og Suðurlandi.
    Í fréttatilkynningu Verðlagsstofnunar, sem hér er birt sem fskj. III, eru dregnar fram ýmsar hugsanlegar skýringar á þessari þróun. Þar segir m.a.:
     „Dæmi eru um að heildverslanir og innlendir framleiðendur hafi veitt stórmörkuðum mun meiri afslátt á síðustu misserum en áður tíðkaðist. Hefur það í sumum tilvikum leitt til þess að innkaupsverð minni verslana, m.a. á landsbyggðinni, hefur verið hærra en smásöluverð í stórmörkuðum. Ýmsir kaupmenn halda því fram að víða sé afslátturinn til stórmarkaða orðinn óeðlilega mikill og mun Verðlagsstofnun kanna það nánar.“
    Augljóst er að samkeppni stórmarkaða á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mjög í seinni tíð og leitt til lægra vöruverðs þar. Því ber að fagna, en á hinn bóginn leikur sterkur grunur á að í mörgum tilvikum hafi landsbyggðin verið látin borga herkostnaðinn af verðstríðinu í Reykjavík.
     Nauðsynlegt er að Verðlagsstofnun sé falið að setja reglur sem stuðlað geti að sem jöfnustu vöruverði í landinu og landsbyggðin sé ekki látin njóta verri kjara en gerist á höfuðborgarsvæðinu.



Fylgiskjal I.


GREINARGERÐ UM GJALDSKRÁ LANDSÍMANS INNAN LANDS


    Jöfnun símakostnaðar innan lands hefur lengi verið eitt af baráttumálum þeirra sem vilja jafna búsetuskilyrði í landinu þar sem langlínukostnaðurinn þótti áður mjög hár í samanburði við innanstöðvargjaldið. Þeim hefur orðið mikið ágengt því að gjaldskrárbreytingar Pósts og síma undanfarin ár hafa miðað í þá átt að jafna símakostnað landsmanna. Þessi þróun hófst þegar Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu árið 1973 þar sem ríkisstjórninni var falið að endurskoða gjaldskrá Landsímans með það fyrir augum að jafna kostnaði við notkun símans á höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina. Ekki var þó gripið til aðgerða strax því að á næstu árum hækkuðu skrefagjöld meira en afnotagjöldin vegna þess að afnotagjöldin voru inni í vísitölunni með þeim afleiðingum að langlínan hækkaði enn frekar. Sameining lægri gjaldflokka leiddi þó til þess að skrefin voru lengd 1978 og dýrari flokkar voru sameinaðir á næstu árum sem gerði langlínuna eitthvað ódýrari. Stórt skref í áttina til jöfnunar símakostnaðar var tekið 1981 en frá þeim tíma voru öll innanstöðvarsímtöl að degi til tímamæld, eins og langlínan, og greitt fyrir í samræmi við lengd þeirra. Frá 1987 voru öll staðarsímtöl tímamæld en veittur var afsláttur með kvöldtaxta og nætur- og helgartaxta. Auk þess var símakostnaður milli landsbyggðar og höfuðborgar gerður jafnari með því að fleiri skref voru látin vera innifalin í afnotagjaldi á landsbyggðinni.
     Talsmenn jöfnunarinnar hafa lagt áherslu á það að landsbyggðarfólk ætti ekki að þurfa að bera hærri kostnað af því að ná sambandi við opinberar stofnanir sem eru í Reykjvík. Nýjung, sem kynnt var árið 1990, svokölluð græn númer, ætti að geta leyst þetta mál á fljótvirkan hátt. Með því að fá sér grænt símanúmer tekur stofnunin eða fyrirtækið að sér að greiða langlínugjaldið fyrir viðskiptavini sína utan af landi en hann þarf aðeins að greiða innanstöðvargjald. Margar opinberar stofnanir, lánastofnanir og þjónustufyrirtæki hafa fengið sér grænt númer.

Þróun í gjaldskrármálum síðustu ár.
    Gjöld fyrir símaþjónustu hækkuðu í janúar og júlí á árinu 1987. Fyrst hækkaði síminn að meðaltali um 10% en gjöld fyrir símaþjónustu höfðu þá ekki hækkað síðan árið 1983, hins vegar höfðu þau lækkað um 10% árið 1985. Síðari hækkunin var 1. júlí og var hún 9,5% að meðaltali fyrir símaþjónustu innan lands. Með hækkuninni 1. júlí var gerð grundvallarbreyting á uppbyggingu gjaldskrár fyrir símaþjónustu innan lands en hún fólst í því að minnka muninn á verði langlínusímtala og staðarsímtala. Breytingin hafði það í för með sér að símagjöld færðust nær raunkostnaði og var til hagsbóta fyrir alla þá sem nota langlínuna mikið.
     Auk beinna gjaldskrárbreytinga og breytinga á skrefatalningu má ná fram lægri símakostnaði á landsbyggðinni með því að sameina og stækka gjaldsvæði og gera þannig símnotendum kleift að hringja til nágrannabyggða án þess að greiða langlínugjald fyrir. Þetta hefur verið gert víða um landið og árið 1987 var farið að taka gjald fyrir símtöl milli allra stöðva innan sama hnútssvæðis eftir lægsta gjaldflokki.
     Á árinu 1988 hækkuðu gjöld fyrir símaþjónustu tvisvar. Fyrst var það 15. janúar og þá að meðaltali um 19%. Síðari hækkunin var 16. júlí en þá var meðaltalshækkun á gjöldum fyrir símaþjónustu um 15%.
    Séu bornar saman meðaltalshækkanir á símakostnaði innan lands og framfærsluvísitölu frá 1982–1988 kemur í ljós að framfærsluvísitala hækkaði um 469%, en símakostnaður um 238%.
     Kostnaður meðalnotanda vegna símaþjónustu innan lands hækkaði ekki á árinu 1989. Aftur á móti var gerð breyting 1. júlí á uppbyggingu gjaldskrár fyrir símaumferð innan lands en hún fól í sér verulega lækkun á taxta fyrir langlínusímtöl. Til þess að halda tekjum stofnunarinnar óbreyttum þurfti að hækka frá sama tíma afnotagjald, skrefaverð og taxta fyrir staðarsímtöl.
     Símakostnaður innan lands lækkaði að meðaltali að raungildi um 49% frá nóvember 1981 til nóvember 1990 ef miðað er við framfærsluvísitölu. Þessa þróun má sjá í línuriti.
     1. nóvember 1990 varð veruleg lækkun á langlínusamtölum og símtölum til nokkurra landa auk þess sem tekinn var upp sérstakur næturtaxti á símtöl til útlanda. Langlínusímtöl innan lands lækkuðu um 18–22% miðað við þriggja mínútna símtal. Auk beinnar lækkunar á langlínutaxta innan lands var haldið áfram á þeirri braut að sameina gjaldsvæði sem leiddi til lægri símakostnaðar fyrir íbúa á þeim svæðum.
     Símtöl til nokkurra Evrópulanda og Bandaríkjanna lækkuðu og farið var að veita 30% afslátt af utanlandssímtölum með sérstökum næturtaxta sem gildir frá kl. 23 til átta á morgnana. Á sama tíma voru póstburðargjöld hækkuð til að minnka hallarekstur á póstinum og vega upp á móti lækkun símagjalda.
     Breytingar í gjaldmálum hafa sl. áratug verið á þann veg að lækka langlínusamtöl en hækka staðarsímtöl. Þetta hefur verið í samræmi við stefnu stjórnvalda en auk þess hefur á síðustu árum orðið breyting á gerð gjaldskrár að því leyti að gjöld fyrir nýja þjónustu hafa verið ákveðin meira með hliðjón af kostnaði en áður var gert og verður svo gert áfram. Að öðru jöfnu mun þessi stefna hafa í för með sér lægri langlínugjöld fyrir talsíma, en önnur þjónusta mun hækka hlutfallslega. Auk þess munu stofngjöld hækka fyrir þær þjónustugreinar sem krefjast mikils stofnfjár af stofnuninni.
    Þá þróun, sem orðið hefur í jöfnun símakostnaðar, má glöggt sjá á eftirfarandi tölum sem sýna hlutfall kostnaðar á staðarsímtölum og langlínusímtölum. Í nóvember 1981 var þetta hlutfall 1 / 10,7 og hélst það þangað til í júlí 1987 að það varð 1 / 8,2 . Í júlí 1989 varð það 1 / 4,9 og er nú 1 / 3,8 . Þarna er miðað við þriggja mínútna símtöl með svarkerfi á staðartaxta og dýrari langlínu á dagtaxta. Þessa þróun má einnig lesa úr súluriti.
     Símtöl til útlanda munu líklega lækka enn frekar að raungildi á næstu árum, bæði vegna ódýrari tæknibúnaðar og aukinnar umferðar sem hefur í för með sér stærri rekstrareiningar. Líklega mun gjaldskrá í ríkari mæli miðast við að gefa stórum notendum betri heildarlausnir en áður og þetta verður sérstaklega áberandi þegar samnetið, ISDN, kemur til sögunnar, væntanlega milli 1995 og 2000.



Fylgiskjal II.



Póst- og símamálastofnunin,
hagdeild:



Símakostnaður innan lands.


(22. jan. 1991.)



    Símakostnaður innan lands hefur lækkað að meðaltali um 49% að raungildi frá nóvember 1981 til nóvember 1990 ef miðað er við framfærsluvísitölu.
    Hlutfall langlínu og staðarsímtals í nóvember 1981 er 1:10,7.
    Hlutfall langlínu og staðarsímtals í febrúar 1983 er 1:10,7.
    Hlutfall langlínu og staðarsímtals fyrir breytingu 1987 (júní) er 1:10,7.
    Hlutfall langlínu og staðarsímtals eftir breytingu í júlí 1989 er 1:4,9.
    Hlutfall langlínu og staðarsímtals eftir breytingu í nóvember 1990 er 1:3,8.
    Hér er miðað við hlutfall milli þriggja mínútna staðarsímtals og þriggja mínútna símtals á dýrari langlínu, með svarkerfi á dagtaxta. Fyrsta júlí 1987 var tekinn upp næturtaxti, fyrir þann tíma giltu dagtaxti og kvöldtaxti.



Fylgiskjal III.


Fréttatilkynning frá Verðlagsstofnun:


Verðlag í matvöruverslunum.


Verðmunur á milli höfuðborgarsvæðisins


og landsbyggðarinnar eykst.


(4. febrúar 1992.)



    Í október sl. kannaði Verðlagsstofnun verð á yfir 400 vörutegundum í hátt á annað hundrað matvöruverslunum um land allt. Var verðið kannað á mat- og drykkjarvörum og hreinlætis- og snyrtivörum. Við úrvinnslu var vörunum gefið vægi í samræmi við almenna neyslu á þeim. Samsvarandi kannanir hafa verið gerðar á undanförnum árum og eru þær umfangsmestu verðkannanir sem Verðlagsstofnun gerir.

Höfuðborgarsvæðið — landsbyggðin — verðmunur fer vaxandi.
    Samkvæmt könnunum Verðlagsstofnunar hefur verðlag á landsbyggðinni farið hækkandi á síðustu tveimur árum í samanburði við verðlag í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.

Verðlag á landsbyggðinni hærra en á höfuðborgarsvæðinu:



Október 1989     
3
,8%
Júní 1990     
4
,5%
Október 1991     
4
,9%

Aukin samkeppni stórmarkaða — meiri verðmunur.
    Skýringin á vaxandi verðmun á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins felst að hluta í minni verðbólgu. Vafalaust vegur þó þyngst hin aukna samkeppni stórmarkaða á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega eftir að Bónus-verslanir náðu þar fótfestu. Hin aukna samkeppni stórmarkaða hefur ekki aðeins aukið verðmuninn á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins heldur hefur verðmunur á milli stórmarkaða og minni verslana á höfuðborgarsvæðinu einnig aukist. Dæmi eru um að heildverslanir og innlendir framleiðendur hafi veitt stórmörkuðum mun meiri afslátt á síðustu missirum en áður tíðkaðist. Hefur það í sumum tilvikum leitt til þess að innkaupsverð minni verslana, m.a. á landsbyggðinni, hefur verið hærra en smásöluverð í stórmörkuðum. Ýmsir kaupmenn halda því fram að víða sé afslátturinn til stórmarkaða orðinn óeðlilega mikill og mun Verðlagsstofnun kanna það nánar.
    Sem dæmi um verðlagsþróunina á síðustu árum má nefna að verðlag á landsbyggðinni var 7% hærra en verðlag í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu í júní 1990 en 10% hærra í október 1991.

Hæsta verðlag á landinu á Vestfjörðum.
    Ef litið er á einstaka landshluta í samanburði við höfuðborgarsvæðið var verðlag hærra á landsbyggðinni sem hér segir:

Í okt. 1989         Í okt. 1991


Vesturland      2
,2%
3 ,8%
Vestfirðir      6
,1%
9 ,0%
Norðurland vestra      2
,5%
4 ,2%
Norðurland eystra      3
,4%
3 ,9%
Austurland      6
,2%
6 ,2%
Suðurland      3
,1%
4 ,8%
Suðurnes      2
,3%
1 ,0%

    Munurinn á verðlagi á Vestfjörðum og höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mest á umræddu tveggja ára tímabili. Hins vegar hefur munurinn á Suðurnesjum minnkað, m.a. vegna aukinnar samkeppni stórmarkaða. Fjölgun heildsala og umboðsmanna á landsbyggðinni og aukin umsvif þeirra hafa vakið athygli á sama tíma og þeim fækkar á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemi þeirra hefur án efa dregið úr kostnaði smásöluverslana á landsbyggðinni. Hins vegar má leiða að því líkur að starfsemi þeirra hafi dregið úr samkeppni á landsbyggðinni og kostnaður vegna rekstrar umboðs- og heildverslana lagst ofan á vöruverð þar. Hyggst Verðlagsstofnun rannsaka sérstaklega áhrif heildsala á landsbyggðinni á vöruverð.