Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 48 . mál.


50. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um skoðanakönnun á þekkingu fólks á EES-samningnum.

Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni.



    Hvernig hljóðuðu þær spurningar sem lagðar voru fyrir svarendur í skoðanakönnun um þekkingu fólks á EES-samningi og því sem hann hefur í för með sér sem gerð var 10.–28. júlí sl. af ÍM Gallup?
    Voru spurningarnar lagðar fyrir munnlega eða skriflega?
    Hvaða forsendur lágu til grundvallar þeirri ákvörðun að miða ekki við kosningaaldur?
    Hvernig voru svörin?
    Óskað er eftir nákvæmri sundurgreiningu.