Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 84 . mál.


92. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um bækling meiri hluta stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hvað kostaði bæklingur sá sem meiri hluti stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna gaf út nýlega undir heitinu: Hvers vegna breyttar reglur LÍN?
    Telur ráðherra eðlilegt að almannafé sé varið til útgáfu áróðursbæklinga á vegum fulltrúa ríkisstjórnarinnar í stjórn LÍN?
    Ætlar menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að minni hluti stjórnar LÍN gefist kostur á að kynna sín sjónarmið í litprentuðum bæklingi?