Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 111 . mál.
129. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 31/1987, um flugmálaáætlun og fjáröflun til framkvæmda í flugmálum.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðist svo:
Gjald skv. 1. mgr. skal ekki lagt á flugvélaeldsneyti sem er undanþegið gjaldtöku í milliríkjasamningum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Heimilt er að endurgreiða bandarískum flugfélögum gjald skv. 5. gr. sem þau hafa greitt frá 1. júlí 1987 samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra að höfðu samráði við samgönguráðherra.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á árinu 1967 fóru fram viðræður milli Íslendinga og Bandaríkjamanna um gagnkvæma niðurfellingu tolla og skatta af eldsneyti og smurningsolíum fyrir flugvélar sem skráðar eru í landi annars samingsaðilans en hafa viðdvöl í landi hins. Viðræðum þessum lauk með gerð milliríkjasamnings í formi skipta á orðsendingum. Tilkynnt var um samninginn með auglýsingu nr. 16/1967 sem hljóðar svo:
„Með orðsendingaskiptum 7. júlí og 16. október 1967 var gengið frá samkomulagi stjórnvalda Íslands og Bandaríkja Ameríku um gagnkvæma niðurfellingu gjalda af flugvélaeldsneyti og smurningsolíum.
Gildistaka samkomulagsins miðast við 1. júní 1967.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.“
Framangreindar orðsendingar eru birtar sem fylgiskjöl með frumvarpi þessu ásamt íslenskri þýðingu. Einnig fylgir orðsending frá 18. maí 1967 sem vitnað er til í fyrri orðsendingunni.
Við setningu laga nr. 31/1987 var talið að 5. gr. laganna bryti ekki í bága við gildandi milliríkjasamninga. Greinin hljóðar svo:
„Þeir sem selja flugvélabensín og þotueldsneyti á íslenskum flugvöllum til innanlandsflugs og millilandaflugs skulu greiða af því sérstakt gjald. Gjald þetta skal nema 1,30 kr. af hverjum lítra flugvélabensíns og 0,65 kr. af hverjum lítra þotueldsneytis.
Heimilt er að veita undanþágu frá greiðslu þessa gjalds vegna flugs á skemmri flugleiðum innan sama landsfjórðungs.
Eldsneyti til áætlunarflugs milli Íslands og Norður-Ameríku er undanþegið greiðslu gjalds skv. 1. mgr.“
Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. er undanþága frá greiðslu flugvélaeldsneytisgjalds bundin við áætlunarflug. Þetta hefur leitt til þess að innheimt hefur verið gjald af flugvélaeldsneyti sem afgreitt hefur verið til bandarískra flugfélaga þar sem ekkert þeirra er með áætlunarflug milli Íslands og Norður-Ameríku. Bandaríkjamenn hafa með bréfi sendiráðs síns hér á landi dags. 31. ágúst 1992 mótmælt þessari gjaldtöku og talið hana stríða gegn tilgangi samningsins frá 1967. Bréf sendiráðsins er birt sem fylgiskjal með frumvarpi þessu. Enn fremur hafa átta bandarísk flugfélög krafist endurgreiðslu á gjaldinu.
Undanþágan í 3. mgr. 5. gr. laga nr. 31/1987 bendir til þess að Alþingi hafi viljað taka tillit til samningsins frá 1967, en í þeim samningi er hins vegar hvergi sú takmörkun gerð að hann skyldi aðeins ná til áætlunarflugs. Þar segir eingöngu að flugvélar, sem skráðar eru í Bandaríkjunum, skuli njóta undanþágu frá gjöldum á eldsneyti í tengslum við millilandastarfsemi þeirra.
Því má halda fram að gagnkvæmni sé ekki gætt ef íslensk flugfélög njóta í reynd undanþágu frá gjaldinu á flugvélaeldsneyti en bandarísk ekki. Hætt er við að erfitt reynist að halda fram réttmæti gjaldtökunnar gagnvart bandarískum stjórnvöldum sem hafa fellt niður alríkisskatta á flugvélaeldsneyti til Flugleiða og beitt sér fyrir niðurfellingu fylkisskatta.
Frumvarpið er flutt til þess að tryggja gagnkvæmni í gjaldtöku gagnvart bandarískum flugfélögum og að gjaldtaka skv. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 31/1987 sé ætíð í samræmi við gildandi milliríkjasamninga. Frumvarpið felur enn fremur í sér heimild til að endurgreiða þeim bandarísku flugfélögum sem gert hefur verið að greiða eldsneytisgjald á undanförnum árum. Einnig gæti þurft að ganga úr skugga um að íslenskar flugvélar njóti undanþágu frá gjaldtöku í Bandaríkjunum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er lagt til að við 5. gr. bætist ný málsgrein, sem verður 4. mgr., um að gjald skv. 1. mgr. skuli ekki innheimt ef slík gjaldtaka stríðir gegn milliríkjasamningum. Gjaldið er lagt á flugvélabensín og þotueldsneyti.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Fjármálaráðherra er hér heimilað að endurgreiða gjald skv. 5. gr. laga nr. 31/1987 frá
gildistöku þeirra 1. júlí 1987. Hann skal hafa samráð við samgönguráðherra um endurgreiðsluna.
Fylgiskjal I.
Orðsending sendiráðs Íslands í Washington D.C. til utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna 18. maí 1967.
The Embassy of Iceland presents its compliments to the Department of State and has the honor to refer to conversations between representatives of Iceland and the United States concerning the possibility of abolishing on a reciprocal basis duties and taxes on aviation fuel used by aircraft of either country.
The Embassy is authorized to declare that as of June 1st 1967, the duty on aviation fuel (15% ad valorem on the c.i.f. price) now charged to United States civil aircraft will be abolished, it being understood that the manufacturers' excise tax (2 U.S. cents pr. U.S. gallon) now charged to Icelandic civil aircraft in the United States be abolished as of the same date.
The Embassy of Iceland avails itself of this opportunity to renew to the Department of State the assurances of its highest consideration.
Department of State,
Washington, D.C.
Sendiráð Íslands flytur utanríkisráðuneytinu kveðju sína og hefur þann heiður að vísa til samtala milli fulltrúa Íslands og Bandaríkjanna varðandi þann möguleika að afnema á gagnkvæmnisgrundvelli tolla og skatta á flugvélaeldsneyti sem loftför hvors ríkisins um sig nota.
Sendiráðinu er heimilt að lýsa því yfir að frá og með 1. júní 1967 mun tollurinn á flugvélaeldsneyti (15% verðtollur á cif-verðið), sem nú er lagður á borgaraleg loftför Bandaríkjanna, verða afnuminn með því skilyrði að framleiðslugjaldið (2 bandarísk sent á bandarískt gallon), sem nú er lagt á íslenskar borgaralegar flugvélar í Bandaríkjunum, verði afnumið frá sama tíma.
Sendiráðið notar þetta tækifæri til þess að fullvissa utanríkisráðuneytið á nýjan leik um fyllstu virðingu sína.
Utanríkisráðuneytið,
Washington D.C.
Fylgiskjal II.
Orðsending sendiráðs Íslands í Washington D.C. til utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna 7. júlí 1967.
The Embassy of Iceland presents its compliments to the Department of State and has the honor to refer to the Embassy's note dated May 18th 1967, and to conversations regarding reciprocal exemption of aircraft from payment of taxes on aviation fuel, lubricants and ground equipment.
The Embassy is authorized to declare that in addition to the duty on aviation fuel, duties on aviation lubricants and on ground equipment which was charged in Iceland to United States civil aircraft was abolished as of June 1st 1967 on the understanding that the manufacturers' excise tax which was charged to Icelandic civil aircraft in the United States be abolished on a reciprocal basis.
The Embassy would appreciate to receive from the Department of State confirmation of this understanding.
The Embassy avails itself of this opportunity to renew to the Department of State the assurances of its highest consideration.
Department of State,
Washington, D.C.
Sendiráð Íslands flytur utanríkisráðuneytinu kveðju sína og hefur þann heiður að vísa í orðsendingu sendiráðsins dags. 18. maí 1967 og til samtals varðandi gagnkvæma undanþágu fyrir loftför frá greiðslu skatta á flugvélaeldsneyti, smurolíum og jarðbúnaði.
Sendiráðinu er heimilt að lýsa yfir að auk tolla á flugvélaeldsneyti voru tollar afnumdir á flugvélasmurolíum og jarðbúnaði, sem var lagður á á Íslandi á bandarísk loftför frá 1. júní 1967, með því skilyrði að framleiðslugjald, sem var lagt á íslensk borgaraleg loftför, verði afnumið á gagnkvæmnisgrundvelli.
Sendiráðið yrði þakklátt að fá staðfestingu á þessu samkomulagi frá utanríkisráðuneytinu.
Sendiráðið notar þetta tækifæri til þess að fullvissa utanríkisráðuneytið á nýjan leik um fyllstu virðingu sína.
Utanríkisráðuneytið,
Washington D.C.
Fylgiskjal III.
Orðsending utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna til sendiráðs Íslands
í Washington D.C. 16. október 1967.
The Department of State acknowledges receipt of the Embassy of Iceland's note of July 7, 1967, regarding the reciprocal exemption of aircraft from payment of taxes on aviation fuel, lubricants an ground equipment.
The Embassy's note indicates that as of June 1, 1967, the Government of Iceland abolished duties on aviation fuel, lubricants and ground equipment used by aircraft of United States registry in connection with their international operations.
On June 19, 1967, the United States Internal Revenue Service issued Revenue Ruling 67–193, which granted exemption to aircraft of Iceland registry, retroactive to June 1, 1967, with respect to payment of internal revenue taxes imposed by the United States on aircraft fuels and lubricants. This Revenue Ruling includes exemption from the manufacturer's excise tax on fuels and lubricants imposed by Chapter 32 of the Internal Revenue Code.
As the Embassy is aware, under United States law exemption from taxes on ground equipment may be granted with respect to customs duties on such equipment imported by foreign aircraft for use in connection with their international operations and with respect to internal revenue taxes imposed upon or by reason of, the importation of such equipment. Exemption may not be granted with respect to other internal revenue taxes.
Accordingly, the Department of Commerce is issuing a finding that Iceland accords reciprocal treatment with respect to customs duties on imported ground equipment and internal revenue taxes imposed on such equipment by reason of importation. It is requesting the Bureau of Customs, which administers these taxes, to issue appropriate Treasury Decision, retroactive to June 1, 1967, giving effect to the exemption of aircraft of Iceland registry from these taxes. The Embassy of Iceland will be informed as soon as this action is completed.
Department of State,
Washington, D.C.
Utanríkisráðuneytið viðurkennir móttöku á orðsendingu sendiráðs Íslands frá 7. júlí 1967 varðandi gagnkvæmt afnám greiðslu loftfara á sköttum á flugvélaeldsneyti, smurolíum og jarðbúnaði.
Orðsending sendiráðsins gefur til kynna að frá 1. júní 1967 hafi ríkisstjórn Íslands afnumið tolla á flugvélaeldsneyti, smurolíum og jarðbúnaði sem loftför skráð í Bandaríkjunum nota í tengslum við alþjóðlega starfsemi sína.
Hinn 19. júní 1967 kvað skattstofa Bandaríkjanna upp úrskurð 67–193 sem veitti loftförum skráðum á Íslandi undanþágu, afturvirkt frá 1. júní 1967, frá greiðslu alríkisskatta sem Bandaríkin leggja á flugvélaeldsneyti og smurolíur. Þessi úrskurður nær m.a. til undanþágu frá framleiðslugjaldi á eldsneyti og smurolíum sem lagt er á skv. 32. kafla skattalaga.
Eins og sendiráðinu er kunnugt er heimilt samkvæmt bandarískum lögum að veita undanþágur frá sköttum á jarðbúnaði hvað varðar tolla á slíkum búnaði sem fluttur er inn af erlendum loftförum til afnota í tengslum við alþjóðlega starfsemi sína og frá alríkissköttum sem eru lagðir á eða vegna innflutnings á slíkum búnaði. Undanþágu má ekki veita á öðrum alríkissköttum.
Því mun viðskiptaráðuneytið gefa út álit um að Ísland veiti gagnkvæm réttindi með tilliti til tolla á innfluttum jarðbúnaði og alríkisskatta sem lagðir eru á slíkan búnað við innflutning. Það mun biðja tollstofuna, sem annast framkvæmd þessara skatta, að gefa út viðeigandi fjármálaráðuneytisákvörðun, afturvirka frá 1. júní 1967, sem hrindir í framkvæmd undanþágu flugfara sem eru skráð á Íslandi frá þessum sköttum. Sendiráðinu verður tilkynnt um leið og þessum ráðstöfunum er lokið.
Utanríkisráðuneytið,
Washington D.C.
Fylgiskjal IV.
Bréf sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi til samgönguráðherra.
H.E. Halldor Blondal
Minister of Communications
Hafnarhus
Reykjavik.
Dear Minister Blondal:
I understand that you have been reviewing the 1967 bilateral agreement between Iceland and the U.S. on exemption from taxation of supplies for civil aviation, including fuel, lubricants and ground equipment. I also understand that officials of the government of Iceland have determined that the elements of the Icelandic Aviation Act of 1987 aimed at implementing the tax exemption provisions of the 1967 agreement are not in keeping with the original intent of our agreement.
The Embassy has been looking into this matter as well and has reached a similar conclusion. After reviewing the documents in this case, in particular the diplomatic notes exchanged between the Government of Iceland and the Government of the United States in 1967, we believe that the agreement our countries concluded was meant to apply flights by all civil aircraft registered in Iceland and the United States. Nowhere is there any mention that this exemption was to be limited to scheduled flights. Therefore, the limitation to that effect established in the Icelandic Aviation Act of 1987 is inconsistent with the original intent of our diplomatic agreement.
I understand that you plan to raise this matter in tomorrow's Cabinet meeting and will propose steps to resolve it. I hope that these steps will include reimbursement of the taxes paid by U.S. aircraft since 1987. Basic fairness suggests that these charges be returned to the individuals and firms on whom they were levied, since Icelandic air carriers have enjoyed unilateral tax free treatment on the North American route for the last five years. As there are both questions of fair treatment of U.S. firms and fulfillment of international legal obligations involved, the United States requests that they be reimbursed for the taxes they have paid since the 1987 law went into effect.
Needless to say, we appreciate your involvement in this case and the actions you are taking to resolve it. Thank you for your assistance and understanding in this matter.
Sincerely yours,
Sig Rogich.
Kæri ráðherra Blöndal:
Mér skilst að þér hafið verið með í endurskoðun tvíhliða samning milli Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1967 um undanþágu frá skattheimtu af aðföngum fyrir flugþjónustu, þar á meðal af bensíni, smurolíu og jarðbúnaði. Mér skilst einnig að íslenskir embættismenn hafi ákveðið að ákvæði í lögum um flugmálaáætlun og fjármögnun til framkvæmda í flugmálum, sem ætluð eru til að koma í framkvæmd skattundanþágum í samkomulaginu frá 1967, séu ekki í samræmi við upphaflegan tilgang samkomulagsins.
Sendiráðið hefur einnig verið að athuga þetta mál og komist að svipaðri niðurstöðu. Eftir að hafa athugað skjöl um málið, einkum orðsendingar sem Ísland og Bandaríkin skiptust á árið 1967, teljum við að samningur sá, sem löndin gerðu sín á milli, ætti að eiga við um allar flugvélar skráðar á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hvergi er minnst á að þessi undanþága eigi að vera bundin við áætlunarflug. Þess vegna eru takmarkanir, sem settar voru í lög um flugmálaáætlun 1987, ekki í samræmi við upphafleg markmið samkomulags okkar.
Mér skilst að þú ætlir að fjalla um þetta mál á ríkisstjórnarfundi á morgun og munir leggja fram tillögur um úrlausnir. Ég vona að þessar úrlausnir feli í sér endurgreiðslu skatts sem bandarísk flugfélög hafa greitt frá því lögin tóku gildi árið 1987. Sanngjarnt væri að þessi gjöld yrðu endurgreidd til einstaklinga og fyrirtækja sem þau voru lögð á þar sem íslenskir flugrekstraraðilar hafa notið einhliða skattafsláttar á Norður-Atlantshafsleiðinni síðastliðin fimm ár. Þar sem bæði er um að ræða sanngjarna meðferð bandarískra fyrirtækja og að uppfylla alþjóðlegar lagalegar skuldbindingar fara Bandaríkin fram á að þau fái endurgreidd gjöld sem þau hafa greitt frá því lögin tóku gildi árið 1987.
Eins og gefur að skilja erum við mjög þakklátir fyrir afskipti yðar af málinu og það sem þér gerið til að leysa það. Kærar þakkir fyrir aðstoð yðar og skilning á málinu.