Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 146 . mál.
167. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 33 26. apríl 1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun, ásamt síðari breytingum, vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþing 1992.)
1. gr.
Á eftir 3. mgr. 5. gr. laganna komi ný málsgrein sem hljóðar svo:
4. Ráðherra er heimilt með reglugerð að veita undanþágu frá skilyrði 2. og 3. mgr. um íslenskan ríkisborgararétt og að binda réttinn búsetuskilyrði í samræmi við alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tekur gildi hvað Ísland varðar.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er samið til þess að uppfylla skyldur íslenska ríkisins vegna samingsins um Evrópska efnahagssvæðið. Í frumvarpinu eru tvær greinar. Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að bætt verði nýrri málsgrein aftan við 3. mgr. 5. gr. laga nr. 33 26. apríl 1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun. Í 2. og 3. mgr. 5. gr. eru ákvæði þess efnis að fuglaveiðar á afréttum og almenningum utan landareigna lögbýla og í íslenskri landhelgi utan netlaga lögbýla séu einungis heimilar íslenskum ríkisborgurum. Í 2. gr. frumvarpsins er gildistökuákvæði.
Í álitsgerð Ólafs W. Stefánssonar, Stefáns M. Stefánssonar og Tryggva Gunnarssonar, „Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið og fasteignir á Íslandi“, sem gefin var út í júní 1992, segir orðrétt á bls. 108–109:
„Í 2. og 3. mgr. 5. gr. laga um fuglaveiðar og fuglafriðun, nr. 33/1966, segir að öllum íslenskum ríkisborgurum séu heimilar fuglaveiðar á afréttum og almenningum utan landareigna lögbýla sem enginn getur sannað eignarrétt sinn til og í íslenskri landhelgi utan netlaga lögbýla. Öðrum en íslenskum ríkisborgurum er því óheimilt að stunda fuglaveiðar á þessum stöðum og á það m.a. við um erlenda aðila sem njóta EES-réttar.
Sá fuglaveiðiréttur, sem hér er fjallað um, er ekki hluti af þeim rétti sem fylgir eignarhaldi á fasteign hér á landi andstætt því sem gildir t.d. um lax- og silungsveiði í vötnum á afréttum heldur er þetta sjálfstæður réttur til að nýta gæði sem eru hluti af svonefndum almannarétti. Veiðin fer fram á svæði sem samkvæmt gildandi rétti er ekki eign neins, þar með talið ríkisins, heldur fer ríkið með forræðisvald á þessum svæðum og getur í skjóli valdheimilda sinna sett reglur um nýtingu þessara hlunninda.
Nýting þessa fuglaveiðiréttar getur ekki orðið tilefni þess að reyni á stofnsetningarrétt samkvæmt EES-samningnum að því marki að þessi réttindi séu sérstaklega keypt til að leigja þau út en hins vegar er ekki útilokað að erlendur aðili, sem nyti EES-réttar, stofnaði til atvinnustarfsemi sem fælist í því að skipuleggja ferðir þar sem þátttakendur færu til fuglaveiða á umræddum svæðum.
Talið er að EB-réttur og þá EES-samningurinn girði ekki fyrir að áskilnaður sé gerður um sérstök tengsl við viðkomandi ríki til þess að hlutaðeigandi fái heimild til að nýta almannarétt, svo sem veiðirétt, af því tagi sem hér er fjallað um. Þannig getur aðili, sem nýtur EES-réttar og kemur til landsins sem ferðamaður, væntanlega ekki gert kröfu um að fá sama rétt og innlendur aðili til fuglaveiða utan eignarlanda, en hér koma hins vegar upp markatilvik. Ef um er að ræða aðila sem nýtur EES-réttar og hefur fasta búsetu hér á landi á grundvelli launþegaréttar eða sem sjálfstæður atvinnurekandi er vafasamt að hægt sé að neita honum um heimild til að nýta slíka frjálsa veiðiheimild umfram þær takmarkanir sem einnig gilda gagnvart Íslendingum sem búsettir eru í landinu.
Framangreind ákvæði 2. og 3. mgr. 5. gr. laga um fuglaveiðar og fuglafriðun þarf samkvæmt framansögðu að samræma þeim skuldbindingum sem Ísland hefur tekið á sig með EES-samningnum.“
Við þetta má bæta að Danir eru nú að undirbúa frumvarp til laga um veiði og stjórn villtra dýrastofna (forslag til lov om jagt og vildtforvalting) þar sem lagt er til að réttur til fuglaveiða í danskri landhelgi verði takmarkaður við þá sem lögheimili eiga í Danmörku, enda sé ekki um að ræða veiðar í atvinnuskyni. Breyting þessi er m. a. rökstudd með tilvísun í Rómarsamninginn.
Samkvæmt lögum nr. 33 26. apríl 1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun, eru fuglaveiðar í atvinnuskyni ekki bannaðar. Hins vegar eru ýmsar takmarkanir á heimildum til fuglaveiða eftir tegundum fugla og árstíma.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Til þess að uppfylla skyldur þær sem íslenska ríkið undirgengst með EES-samningnum er lagt til að ráðherra verði heimilt að veita undanþágu frá skilyrðinu um íslenskan ríkisborgararétt, sem kemur fram í 2. og 3. mgr. 5. gr. laga um fuglaveiðar og fuglafriðun, með sérstakri reglugerð. Lagt er til að binda megi undanþáguna búsetuskilyrði, þ.e. að viðkomandi eigi lögheimili hér á landi.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneytið,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 33 26. apríl 1966.
Tilgangurinn með frumvarpinu er að ráðherra verði heimilt að veita undanþágu frá skilyrði í lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun um íslenskan ríkisborgararétt og að einnig verði heimilt að binda réttinn við búsetu á Íslandi.
Ekki verður séð að frumvarpið hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.