Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 147 . mál.


168. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 82/1989, með síðari breytingum.

Flm.: Gunnar Birgisson, Sigríður A. Þórðardóttir.



1. gr.


    2. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Í nefndinni eiga sæti fjórir menn, einn tilnefndur af Öldrunarráði Íslands, tveir tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn tilnefndur af heilbrigðisráðherra og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ef atkvæði falla jöfn í stjórninni ræður atkvæði formanns úrslitum.

2. gr.


    2. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
                  Sjóðstjórn úthlutar árlega fé úr sjóðnum samkvæmt ákvæðum 3. mgr.
    Við 11. gr. bætist ný málsgrein er orðast svo:
                  Úthluta skal 9 / 10 hlutum þess fjármagns, sem kemur í sjóðinn úr hverju kjördæmi, til verkefna í kjördæminu, sbr. 12. gr. Því sem eftir stendur skal úthlutað sérstaklega til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Þjónusta við aldraða mun aukast í náinni framtíð þar sem meðalaldur þjóðarinnar fer hækkandi. Bygging þjónustukjarna og hjúkrunarheimila mun aukast. Framkvæmdir hafa að hluta verið kostaðar með styrkjum úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Tekjur Framkvæmdasjóðsins eru nefskattur á einstaklinga í landinu, 70 ára og yngri. Því er eðlilegt að framlög úr sjóðnum skiptist nokkurn veginn eftir fólksfjölda í hverju kjördæmi.
    Séu úthlutanir sjóðsins frá stofnun hans skoðaðar (sjá fylgiskjal) sést að Reykjaneskjördæmi hefur farið mjög halloka í úthlutunum úr sjóðnum. Einungis hefur verið úthlutað 16,11% til Reykjaness en í kjördæminu eru 25,11% landsmanna. Fjármunirnir hafa runnið til landsbyggðarinnar, t.d. til Norðurlands vestra, en þangað hafa 9,33% af fé sjóðsins farið en íbúar eru þar einungis 3,99% af landsmönnum.
    Frumvarp þetta er sett fram með það í huga að sem sanngjörnust skipting verði á fjármunum sjóðsins.
    Uppbygging á þjónusturýmum og hjúkrunarrýmum er vel á veg komin á landsbyggðinni, en staðan í þessum málum á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega þó á Reykjanesi, er sú að mikið verk er óunnið í málefnum aldraðra. Uppbygging þjónusturýma er grundvöllur þess að mögulegt sé að veita öldruðum daglega þjónustu þótt þeir búi í eigin húsnæði. Samkvæmt frumvarpinu er áætlað að verja einum tíunda hluta tekna sjóðsins sérstaklega til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins.

    Um fylgiskjal vísast til töflu í skýrslu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um málefni og hagi aldraðra á þskj. 802 bls. 4879 í A-deild Alþt. 1991–92.