Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 3 . mál.


216. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 17/1991, um einkaleyfi, og l. nr. 47/1968, um vörumerki, sbr. og l. nr. 31/1984.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur rætt frumvarp þetta sem lagt er fram í tengslum við frumvarp um aðild Íslands að samningi um Evrópska efnahagssvæðið. Nefndin fékk á sinn fund Rán Tryggvadóttur, deildarstjóra í iðnaðarráðuneytinu, Gunnar Guttormsson, forstjóra Einkaleyfastofunnar, og Ómar Grétar Ingvarsson, verkfræðing hjá Einkaleyfastofunni.
    Nefndin er sammála um að leggja til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að bæta þremur greinum við það. Þessum þremur greinum er ætlað að taka af öll tvímæli um atriði er varða framkvæmd gildistökuákvæða laganna um einkaleyfi. Breytingarnar eru eftirfarandi:
    1. Lagt er lagt til að á eftir 2. mgr. 75. gr. komi ný málsgrein sem feli í sér heimild til að veita einkaleyfi fyrir nautna- og næringarefnum á grundvelli umsókna sem lagðar eru inn eftir 1. janúar 1992.
    2. Orðalag 78. og 79. gr. er gert nákvæmara svo að skýrara sé hvernig meðhöndla skuli umsóknir sem lagðar voru inn fyrir 1. janúar 1992.
    Tómas Ingi Olrich, Guðjón Guðmundsson og Kristín Einarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 29. okt. 1992.



Össur Skarphéðinsson,

Pálmi Jónsson.

Páll Pétursson,


form., frsm.

með fyrirvara.



Svavar Gestsson,

Finnur Ingólfsson,

Sigríður A. Þórðardóttir.


með fyrirvara.

með fyrirvara.