Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 190 . mál.


220. Tillaga til þingsályktunar



um breytingu á þingsályktun um vegáætlun fyrir árið 1992.

(Lögð fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



     Alþingi ályktar að eftirtaldir liðir í vegáætlun fyrir árið 1992 verði sem hér segir:
2.2.2.   Vetrarþjónusta          440 m.kr.
2.3.1.1. Almenn verkefni og bundin slitlög          902 m.kr.
2.3.1.4. Stórverkefni          607 m.kr.

     Við liðinn Sundurliðun, 2.3. Til nýrra þjóðvega, 1. Stofnbrautir bætist:

1.1. Almenn verkefni og bundin slitlög.


36  Þingvallavegur
  01–02 Búrfellsvegur — Heiðará     
4 m.kr.

 1 Vesturlandsvegur
   13   Hellistungur     
6 m.kr.

60 Vestfjarðavegur
  02    Um Suðurá     
7 m.kr.

 1 Norðurlandsvegur
  01    Grjótá — Öxnadalsá     
15 m.kr.

82 Ólafsfjarðarvegur
  05    Dalvík — Rípill     
8 m.kr.


1.4. Stórverkefni.


Stórbrýr

.
 1 Suðurlandsvegur
  08    Um Kúðafljót     
10 m.kr.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir auknum framkvæmdum í vegagerð til atvinnuaukningar. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 1993 eru ætlaðar 1.800 m.kr. í þessu skyni. Til að ýta þessu átaki til atvinnuaukningar af stað sem fyrst hefur Vegagerð ríkisins verið falið að bjóða út verkefni þegar á þessu ári eftir því sem aðstæður og undirbúningur verka leyfir. Að mati Vegagerðarinnar er unnt að bjóða út fyrir áramót þau verkefni sem talin eru upp í tillögunni.
    Vegna hagstæðrar tíðar sl. vetur er fyrirsjáanlegt að nokkur greiðsluafgangur verði á vetrarþjónustu á þessu ári. Samkvæmt tillögunni er fjárveiting til vetrarþjónustu á vegáætlun 1992 lækkuð um 50 m.kr. og sömu upphæð bætt við fjárveitingar til nýrra þjóðvega til að standa undir þeim kostnaði sem til fellur á þessu ári vegna útboðanna.
     Upphæðinni er síðan skipt á verkefni í samræmi við mat á þörfum þeirra. Sú skipting er ekki í samræmi við hefðbundna skiptingu fjár í vegáætlun á milli kjördæma. Endurskoðun vegáætlunar fer hins vegar fram á yfirstandandi þingi og er gert ráð fyrir að skiptingin verði leiðrétt þá.




    Þær heimildir, sem hér eru veittar, taka til kostnaðar sem fellur til á þessu ári. Sum verkefnin eru með fjárveitingu 1993 samkvæmt gildandi vegáætlun en önnur ekki. Við gerð verksamninga um verkefni, sem ekki hafa næga fjárveitingu á vegáætlun, verður gerður fyrirvari um samþykki Alþingis við fjárveitingar til þess að standa við skuldbindingar viðkomandi samnings.