Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 191 . mál.
222. Frumvarp til hafnalaga
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
I. KAFLI
Yfirstjórn hafnamála.
1. gr.
Samgönguráðherra fer með yfirstjórn allra hafnamála.
2. gr.
Samgönguráðherra skipar hafnaráð sér til ráðuneytis um hafnamál. Í hafnaráði skulu eiga sæti fimm fulltrúar. Þar af skulu tveir tilnefndir af Hafnasambandi sveitarfélaga til fjögurra ára í senn. Þrír fulltrúar eru skipaðir af samgönguráðherra og skal einn þeirra vera starfsmaður samgönguráðu
Þóknun til hafnaráðsmanna greiðist úr ríkissjóði.
3. gr.
Hafnaráð skal fjalla um skipulags-, rekstrar-, starfsmanna- og fjárfestingarmál Hafnamálastofn
Hafnaráð skal fjalla um framkvæmdaáætlanir fyrir einstök ár og til lengri tíma, svo og fjármál hafnanna, þar á meðal gjaldskrárbreytingar.
Hafnamálastjóri situr fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétti ásamt þeim starfsmönnum stofnunarinnar sem hann telur ástæðu til eða ráðið óskar eftir. Skal hann leggja þar fyrir þau mál sem falla undir verksvið ráðsins samkvæmt framansögðu eða ráðið óskar eftir.
4. gr.
Hafnamálastofnun ríkisins fer með framkvæmd hafnamála á þann hátt sem ákveðið er í lögum þessum.
5. gr.
Hafnamálastjóri skal að fenginni umsögn hafnaráðs skipaður af samgönguráðherra til fimm ára í senn. Hann veitir Hafnamálastofnun ríkisins forstöðu, jafnframt því sem hann gegnir starfi vita
Hafnamálastjóri ræður starfsfólk Hafnamálastofnunar með ráðningarsamningi.
6. gr.
Hafnamálastofnun ríkisins skal skipt í deildir samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
II. KAFLI
Um stjórn hafna og rekstur.
7. gr.
Höfn táknar í lögum þessum nánar afmarkað svæði þar sem gerð hafa verið mannvirki til lestun
Til þess að um höfn geti verið að ræða samkvæmt lögum þessum þarf henni að hafa verið sett reglugerð er tilgreini mörk hennar, auk annarra nauðsynlegra stjórnunarákvæða.
8. gr.
Eigendur hafna samkvæmt lögum þessum eru sveitarfélög eða hlutafélög. Hafnir geta verið hlut
9. gr.
Hafnarstjórn, sem kosin er af eigendum hafnar eða hafnasamlaga, skal hafa á hendi stjórn hafnar eða hafnasamlags og hafnarsjóðs á þann hátt sem eigendur ákveða og í samræmi við reglugerð.
Séu eigendur fleiri en einn fer um kosningu samkvæmt reglugerð og stofnsamningi hafnasam
Hafnarstjórn ræður hafnarstjóra og ákveður verksvið hans.
10. gr.
Ráðuneytið setur samkvæmt lögum þessum og að fengnum tillögum eigenda hafna sérstaka reglugerð fyrir hverja höfn. Í reglugerðinni skulu m.a. vera ákvæði um:
1 . Stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó og landi.
2 . Kosningu, starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.
3 . Starfsemi og umferð á hafnarsvæði.
4 . Öryggi við flutninga og varnir gegn mengun.
5 . Hafnsögu.
6 . Viðurlög við brotum.
11. gr.
Eftirtalin gjöld skulu greidd fyrir afnot hafna:
1 . Skipagjöld á skip þau og báta er nota viðkomandi höfn:
a . Gjöld, miðuð við stærð skipa, dvalartíma á hafnarsvæðinu og veitta aðstöðu.
b . Fastagjöld fiskiskips í heimahöfn.
c . Hafnsögugjöld.
d . Vigtargjöld af öllum sjávarafla.
e . Gjöld af ferjum.
f . Önnur gjöld.
2 . Vörugjöld af vörum sem umskipað er, lestaðar eða losaðar í höfn, þar á meðal aflagjald sem er vörugjald af sjávarafla sem lagður er á land á hafnarsvæðinu.
3 . Leiga fyrir afnot annarra mannvirkja eða tækja hafnarinnar.
4 . Leyfisgjöld fyrir bryggjur og önnur mannvirki sem gerð hafa verið skv. 18. gr.
5 . Lóðargjöld og lóðarleiga.
6 . Sérstakt vörugjald til Hafnabótasjóðs.
7 . Ýmis þjónustugjöld, svo sem fyrir vigtun, móttöku á úrgangi, vatnssölu, rafmagnssölu, festagjöld o.fl.
Nú á annar aðili en hafnarsjóður bryggju innan hafnarsvæðisins og skal þá greiða vörugjöld í hafnarsjóð af þeim farmi er um þá bryggju fer. Eiganda slíkrar bryggju er óheimilt að innheimta til sín vörugjöld af vörum er fara um bryggjuna nema hafnarstjórn samþykki.
12. gr.
Öll gjöld skv. 11. gr. má taka lögtaki hjá þeim aðila sem samkvæmt reglugerð er gert að standa skil á greiðslum til hafnarsjóðs.
Skipagjöld skulu miðuð við stærð skipa samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð og eru þau tryggð með lögveði í viðkomandi skipi og vátryggingarfé þess ef það skyldi farast. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum.
Halda má eftir skráningar- og þjóðernisskírteinum til tryggingar greiðslu skipa- og vörugjalda.
Hafnarstjórn er heimilt að krefjast þess að útflytjandi leggi fram tryggingu fyrir vörugjaldi áður en vara fer úr höfn.
Vörugjald af vörum, sem umskipað er, lestaðar eða losaðar utan löggiltra hafnarsvæða, þar á meðal af sjávarafla, skal ríkissjóður innheimta í samræmi við almenna gjaldskrá skv. 13. gr. og skal gjaldið renna í Hafnabótasjóð. Ákvæði þetta nær þó ekki til skipa undir 10 brúttótonnum að stærð þegar um sjávarafla er að ræða.
Leiga af lóðum hafna skal almennt reiknuð sem hundraðshluti af fasteignamati lóðar.
Sérstakt vörugjald skv. 6. tölul. 1. mgr. 11. gr. skal renna í Hafnabótasjóð. Gjaldið skal vera sem svarar 25% álagi á vörugjöld, önnur en aflagjald, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 11. gr.
Innheimtuaðilar vörugjalds skv. 2. tölul. 1. mgr. 11 gr. skulu innheimta og standa skil á sérstöku vörugjaldi skv. 6. tölul. 1. mgr. 11. gr.
Ráðherra skal kveða nánar á um innheimtu og skil á gjaldinu og ákveða hvernig skuli fara með vörslu og daglega afgreiðslu sérstaks vörugjalds samkvæmt lögum þessum.
13. gr.
Hafnaráð skal að fengnum tillögum Hafnasambands sveitarfélaga gera tillögur til samgöngu
Slík gjaldskrá, staðfest af samgönguráðherra, skal gilda fyrir allar hafnir er lög þessi ná til.
Önnur gjöld hafnarinnar ákveður viðkomandi hafnarstjórn.
Ráðuneytið getur heimilað einstökum hafnarstjórnum frávik frá hinni almennu gjaldskrá ef sér
14. gr.
Tekjum og eignum hafnarsjóðs má einungis verja í þágu hafnarinnar.
Hafnarsjóðir skulu undanþegnir hvers konar sköttum til sveitarsjóða.
Eigendur hafnar eða hafnasamlags bera ábyrgð á skuldbindingum hafnarsjóðs.
15. gr.
Ár hvert skal hafnarstjórn semja áætlun um tekjur og gjöld hafnarsjóðs á komandi ári og senda hana Hafnamálastofnun ásamt nauðsynlegum skýringum á tekju- og gjaldaliðum.
16. gr.
Halda skal reikning fyrir tekjur og gjöld hafnarsjóðs. Reikningsár hafnarsjóðs er almanaksárið.
Reikninginn skal endurskoða og úrskurða á sama hátt og reikninga sveitarsjóðs nema hafnar
Hafnarstjórn er skylt að senda Hafnamálastofnuninni ársreikninga og þær upplýsingar sem hún kann að óska eftir og snerta rekstur hafnarinnar.
Hafnamálastofnuninni ber að senda hafnarsjóði viðskiptareikning síðasta árs fyrir 1. mars ár hvert ef um viðskipti hefur verið að ræða á árinu.
17. gr.
Óheimilt er án samþykkis ráðuneytisins að selja, veðsetja eða leigja til langs tíma þær eignir hafnarsjóðs er notið hafa ríkisstyrks. Enn fremur er hafnarstjórn óheimilt að hefja kostnaðarsamar framkvæmdir án samþykkis ráðuneytisins.
Til þess að Hafnamálastofnuninni sé unnt að fylgjast sem best með að ákvæði þessarar greinar séu haldin skal senda henni eftirrit af fundargerðum hafnarstjórnar sé þess óskað.
18. gr.
Skipulag hafnarsvæðis skal miðast við þarfir hafnarinnar og er skylt að hafa samráð við hafnar
Engin mannvirkjagerð má fara fram á hafnarsvæðinu nema með samþykki viðkomandi hafnar
Sé leyfi til mannvirkjagerðar eigi notað innan tveggja ára frá veitingu þess fellur það úr gildi.
Hafnarstjórn er heimilt, ef nauðsyn krefur, að nema burt á kostnað eiganda bryggjur eða önnur mannvirki í sjó fram sem hætta stafar af eða hafa staðið ónotuð í fimm ár eða lengur.
III. KAFLI
Um framkvæmdir í höfnum, greiðslu kostnaðar við hafnargerðir o. fl.
19. gr.
Frumkvæði um hafnargerðir er hjá eiganda hafnar og framkvæmdir við þær á ábyrgð hans.
20. gr.
Áður en hafnarframkvæmdir hefjast skal Hafnamálastofnun fá staðfest að fjármagn verði hand
21. gr.
Hver landeigandi er skyldur til að láta af hendi mannvirki og land er þarf til þess að gera höfn samkvæmt lögum þessum, svo og til þess að gera brautir og vegi í því sambandi og til að leyfa að tekin verði í landi hans grjót, möl og önnur jarðefni og þola þær eignakvaðir, óhagræði og takmörk
Nú vill annar hvor málsaðili ekki una mati og getur hann þá krafist yfirmats, en það skal gert inn
22. gr.
Hafnarframkvæmdir, er njóta ríkisstyrks, skulu unnar undir tækni- og fjárhagslegu eftirliti Hafnamálastofnunar ríkisins og skulu allar áætlanir og uppdrættir sendar stofnuninni til samþykkt
Hafnamálastofnun annast framkvæmd frumrannsókna í samráði við viðkomandi hafnarstjórn.
Hafnarframkvæmdir, er njóta ríkisstyrks, skulu að jafnaði unnar samkvæmt tilboði á grundvelli útboðs. Ef verk er þess eðlis eða aðstæður slíkar að öðru leyti að útboð telst ekki muni gefa góða raun er heimilt að fenginni umsögn Hafnamálastofnunar að víkja frá útboði.
Fari hafnarstjórn þess á leit annast Hafnamálastofnun auk frumrannsókna framkvæmdir eftir því sem við verður komið, skipulagningu hafnarsvæða, hönnun einstakra mannvirkja og gerð kostn
23. gr.
Hafnarframkvæmdir eru kostaðar af sjálfsaflafé hafnarinnar og framlagi frá eigendum. Enn fremur greiðir ríkissjóður hluta af kostnaði við hafnargerðir eftir því sem ákveðið er í lögum þess
24. gr.
Eftirfarandi hafnarframkvæmdir geta notið framlags úr ríkissjóði:
1 . Undirbúningsrannsóknir og hönnun, þar með talið skipulag hafna og hafnarsvæða, svo og kostnaður við útboð einstakra styrkhæfra framkvæmda.
2 . Framkvæmdir við hafnargarða, bryggjur, viðlegukanta, ferjuaðstöðu, dýpkanir og uppfyllingar sem teljast nauðsynlegur hluti viðlegumannvirkja.
3 . Dreifikerfi rafmagns, skolps og vatns sem nauðsynleg eru vegna starfsemi hafnarinnar samkvæmt staðfestingu Hafnamálastofnunar hverju sinni.
4 . Umferðaræðar innan marka hafnarmannvirkja samkvæmt staðfestingu Hafnamálastofnunar hverju sinni.
5 . Framkvæmdir við siglingamerki, mengunar- og slysavarnir.
6 . Framkvæmdir á hafnarsvæðum við upptökumannvirki fyrir skip.
Niðurrif hafnarmannvirkja í eigu hafnarsjóðs telst hafnarframkvæmd, enda sé það liður í ný
Sé mannvirki svo illa farið að til álita komi að endurbyggja það skal slík endurbygging því að
Styrkhæfur telst einnig vaxtakostnaður, svo og lántöku- og annar fjármögnunarkostnaður, ásamt kostnaði vegna hækkunar verðtryggðra lána og gengistaps, verði hann til vegna hluta ríkissjóðs í framkvæmdinni og hafi verið stofnað til hans með heimild ráðuneytisins og fjárlaganefndar Alþing
Til viðhalds hafnarmannvirkja teljast almennar viðgerðir og venjulegt viðhald, svo sem endur
Landa- og lóðakaup hafna, svo og landgerð, njóta ekki ríkisstyrks.
Styrkhæfni framkvæmda skal ákveðin áður en þær hefjast.
Rísi ágreiningur um styrkhæfni framkvæmda skal málinu skotið til ráðherra til úrskurðar.
25. gr.
Skilyrði fyrir greiðslu úr ríkissjóði skv. 24. gr. eru:
1 . Að eigendur hafnar eða hafnasamlags hafi stofnað hafnarsjóð til þess að eiga og reka höfn og standa undir hafnarframkvæmdum og fengið til þess samþykki ráðuneytisins.
2 . Að hafnarsjóður hafi tryggt sér eignarrétt á því landsvæði á strandlengju hafnarinnar sem talið er þurfa undir hafnarmannvirki og þá starfsemi sem fram fer við höfnina. Ekki verður það þó gert að skilyrði að hafnarsjóður kaupi í þessu skyni íbúðar- eða verslunarhús eða varanlegar byggingar af öðru tagi.
3 . Að unnið sé að framkvæmdum samkvæmt tæknilegri og fjárhagslegri áætlun varðandi útgjöld og greiðslu kostnaðar sem eigendur hafnar hafa samþykkt, svo og ráðuneytið, að fenginni um
26. gr.
Eftirfarandi ákvæði skulu gilda um greiðsluþátttöku ríkissjóðs í hafnarframkvæmdum:
1 . Ríkissjóður greiðir allt að 100% kostnaðar við frumrannsóknir samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
2 . Ríkissjóður greiðir allt að 90% stofnkostnaðar við eftirtaldar framkvæmdir:
hafnargarða (öldubrjóta),
dýpkanir hafna og innsiglinga,
siglingamerki,
sérbúnað fyrir ekjuskip og ferjur.
3 . Ríkissjóður greiðir allt að 60% stofnkostnaðar við eftirtaldar framkvæmdir:
bryggjur og viðlegukanta,
uppfyllingar og umferðaræðar á hafnarsvæði,
upptökumannvirki fyrir skip,
mengunar- og slysavarnir,
vatns-, raf- og holræsalagnir um hafnarmannvirkin,
skipulag hafna og hafnarsvæða,
niðurrif hafnarmannvirkja.
27. gr.
Umsóknir um framlög úr ríkissjóði til hafnarframkvæmda skulu sendar Hafnamálastofnun sem vinnur úr tillögunum og leggur fyrir hafnaráð og samgönguráðuneyti. Ráðherra leggur fyrir Alþingi tillögur sínar að fenginni umsögn hafnaráðs.
Við mat á greiðsluþátttöku ríkissjóðs í einstökum verkefnum skal tekið tillit til fjárhagslegrar getu hafnarsjóðs til að standa undir nauðsynlegum hafnarframkvæmdum, þó með þeim takmörkun
Greiðsluþátttaka ríkissjóðs skal ákveðin um leið og verk eru tekin inn á hafnaáætlun. Greiðslu
Í reglugerð skulu settar nánari reglur um greiðsluþátttöku ríkissjóðs.
28. gr.
Heimilt er að gera sérstakar ráðstafanir til að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða sem ekki hafa nægar tekjur til að standa undir fjárhagslegum skuldbindingum vegna styrkhæfra hafnarfram
IV. KAFLI
Um framkvæmdaáætlanir.
29. gr.
Hafnamálastofnun skal vinna að gerð áætlana um hafnarframkvæmdir til nokkurra ára í senn, en þó aldrei skemur en til fjögurra ára.
Við þessa áætlunargerð ber Hafnamálastofnuninni að hafa samráð og samstarf við viðkomandi hafnarstjórn, Hafnasamband sveitarfélaga og hafnaráð.
Við áætlanagerðina og forgangsröðun framkvæmda skal leggja til grundvallar mat á þörf fyrir framkvæmdir í einstökum höfnum, landshlutum og landinu í heild.
Sérstök fjögurra ára áætlun um hafnargerðir skal gerð á tveggja ára fresti. Áður en gengið er end
Áætlunin skal síðan lögð fyrir Alþingi til samþykktar.
Ráðherra skal árlega leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmdir í hafnamálum árið áður.
V. KAFLI
Um Hafnabótasjóð.
30. gr.
Hafnabótasjóður er eign ríkisins og fer hafnaráð með stjórn sjóðsins í umboði samgönguráð
31. gr.
Tekjur Hafnabótasjóðs eru þessar:
1 . Vörugjald af vörum sem umskipað er, lestaðar eða losaðar utan löggiltra hafnarsvæða, sbr. 5. mgr. 12. gr.
2 . Tekjur af starfsemi sjóðsins.
3 . Sérstakt vörugjald skv. 6. tölul. 1. mgr. 11. gr.
4 . Framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis.
32. gr.
Hafnabótasjóði er heimilt að taka lán til starfsemi sinnar samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni.
33. gr.
Ráðherra ráðstafar fé Hafnabótasjóðs á eftirgreindan hátt að fengnum tillögum Hafnamálastofn
1 . Sjóðurinn veitir hafnarsjóðum lán til framkvæmda með hliðsjón af fjárþörf í hverju tilviki.
2 . Sjóðnum er heimilt að bæta tjón á hafnarmannvirkjum sem skemmst hafa af völdum náttúruhamfara eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum, þar með talið tjón sem ekki fæst að fullu bætt úr Viðlagasjóði eða vegna ákvæða IX. kafla siglingalaga um takmarkaða ábyrgð útgerðar
3 . Sjóðnum er heimilt að veita lán og/eða styrk umfram ríkisframlag til nýrra hafnarframkvæmda sem nemi allt að 30% af heildarframkvæmdakostnaði til staða sem eiga við verulega fjárhags
4 . Sjóðnum er heimilt að veita sérstaka styrki til að greiða fyrir stofnun hafnasamlaga umfram það sem segir í 3. tölul.
5 . Sjóðnum er heimilt að veita hafnarsjóðum lán út á væntanleg ríkisframlög samkvæmt lögum þessum.
Samanlagt mega styrkir og lán úr Hafnabótasjóði að viðbættu ríkisframlagi aldrei fara yfir 90% af styrkhæfum framkvæmdakostnaði.
34. gr.
Hafnamálastofnun ríkisins annast vörslu, daglega afgreiðslu og bókhald Hafnabótasjóðs. Lána
35. gr.
Ráðherra ákveður vexti og önnur kjör þeirra lána er sjóðurinn veitir með tilliti til þess að sjóður
36. gr.
Hafnabótasjóður er undanþeginn öllum sköttum til ríkis og sveitarfélaga, svo og stimpilgjöldum af eigin lántökum.
37. gr.
Umsóknir um lán og styrki úr Hafnabótasjóði skulu sendar til Hafnamálastofnunar ríkisins.
Umsóknum skulu fylgja ítarleg gögn og rökstuðningur, þar á meðal reikningar hafnarinnar síð
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
38. gr.
Hvers konar bótakröfum fyrir tjón, sem skip kunna að valda á eignum hafnarsjóða, fylgir lög
39. gr.
Með mál út af brotum gegn lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru samkvæmt þeim, skal farið að hætti opinberra mála og varða brot sektum.
Til tryggingar greiðslum sektar og vangoldinna gjalda samkvæmt lögum þessum er kyrrsetning heimil.
40. gr.
Ráðherra skal fyrir árslok 1992 setja reglugerð um framkvæmd þessara laga.
41. gr.
Með lögum þessum eru úr gildi felld hafnalög, nr. 69 28. maí 1984, svo og 68. og 69. gr. laga nr. 108/1988 og 29.–32. gr. laga nr. 1/1992.
42. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði um greiðsluþátttöku ríkissjóðs koma þó ekki til fram
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp það, sem hér liggur fyrir til nýrra hafnalaga, er endurskoðuð útgáfa af gildandi hafna
Nefnd til þessarar endurskoðunar var skipuð með bréfi samgönguráðherra, Halldórs Blöndals, dags. 28. ágúst 1991. Í nefndinni áttu sæti Árni M. Mathiesen alþingismaður, Guðmundur Einars
Aðalbreytingarnar í því frumvarpi, sem hér liggur fyrir frá gildandi hafnalögum, eru sem hér segir:
1 . Í 8. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að eigendur hafna geti auk sveitarfélaga einnig verið hlutafélög. Jafnframt er gert ráð fyrir því að hafnir geti orðið hluthafar í fyrirtækjum sem tengj
2 . Í 8. gr. er einnig gert ráð fyrir því að mynduð verði hafnasamlög um rekstur hafna þar sem landfræðileg skilyrði eru fyrir hendi. Í fylgiskjali með frumvarpinu eru hugmyndir nefndarinn
3 . Ákvæði um kostnaðarþátttöku ríkissjóðs er nú breytt á þann hátt að ýmis ytri mannvirki hljóta 90% ríkisframlag. Ber þar aðallega að nefna hafnargarða (öldubrjóta) og dýpkanir hafna og innsiglinga auk siglingamerkja og sérbúnaðar fyrir ekjuskip og ferjur, en þessar framkvæmdir njóta nú 75% ríkisframlags. Í þessum styrkflokki var áður aðeins dýpkun aðalsiglingaleiðar að höfn. Allar aðrar styrkhæfar hafnarframkvæmdir hljóta 60% ríkisstyrk en 40% styrkflokk
Nefndin telur að þegar á heildina er litið taki ríkissjóður svipaðan þátt í hafnargerðum og verið hefur þrátt fyrir þessar breytingar.
4 . Í frumvarpinu eru ákvæði um 25% álag á vörugjald er renni í Hafnabótasjóð. Þetta er í samræmi við 29.–32. gr. laga nr. 1/1992. Sú breyting er gerð að álagið er látið renna til lán- og styrkveitinga úr sjóðnum en ekki sem framlag ríkisins til almennra hafnarframkvæmda eins og þau lög gerðu ráð fyrir. Miðað við núgildandi gjaldskrá má ætla að tekjur af sérstöku álagi á vörugjald nemi um 125 m.kr. á ári og með hliðsjón af því er framlag ríkisins nú gert háð ákvörðun Alþingis hverju sinni.
Aðrar breytingar, sem nefndin hefur gert á gildandi hafnalögum, hafa minni áhrif og oft er aðeins um að ræða að sniðnir hafa verið agnúar af gildandi lögum. Fyrir þessum breytingum verður gerð nánari grein í athugasemdum með einstökum greinum frumvarpsins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samhljóða 1. gr. gildandi laga.
Um 2. gr.
Skipun hafnaráðs er nú breytt á þann veg að fjölgað er í hafnaráði um tvo fulltrúa, en tveir varamenn eiga hins vegar ekki lengur rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögu
Um 3. gr.
Minni háttar orðalagsbreytingar hafa verið gerðar á þessari grein.
Um 4.–5. gr.
Núverandi 4. gr. hafnalaganna hefur í þessu frumvarpi verið skipt upp þannig að hér er gerð tillaga um að einungis 1. mgr. hennar sé í 4. gr., en hinn hlutinn tilheyri 5. gr., enda er svo mikill eðlismunur á efni þessara málsgreina að eðlilegt þykir að skipta þeim milli lagagreina.
Breytingar á greininni að öðru leyti eru fyrst og fremst þær að ekki þykir ástæða til að ráð
Um 6. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 7. gr.
Tekin eru út orðin „samkvæmt staðfestu deiliskipulagi“.
Um 8. gr.
Eins og getið er um í athugasemdunum hér að framan eru veigamiklar breytingar frá gild
Í þessari grein er einnig gert ráð fyrir því að samgönguráðherra ákveði með reglugerð að höfðu samráði við eigendur viðkomandi hafna að mynduð verði hafnasamlög um rekstur þeirra þar sem landfræðileg skilyrði eru fyrir hendi. Um þetta atriði er nánar fjallað í al
Um 9. gr.
Á þessari grein eru gerðar smávægilegar orðalagsbreytingar sem ekki er ástæða til að skýra nánar.
Um 10. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 11. gr.
Við 1. tölul. í þessari grein er hér bætt vigtargjöldum af öllum sjávarafla og gjöldum af ferjum. Í 5. tölul. er bætt lóðarleigu og teknir eru upp nýir liðir, 6. og 7. tölul., þar sem annars vegar er um að ræða sérstakt vörugjald til Hafnabótasjóðs, sbr. lög nr. 1/1992, og ýmis þjónustugjöld.
Um 12. gr.
Í þessa grein eru tekin inn ákvæði um innheimtu sérstaks vörugjalds í samræmi við ákvæði í áðurgreindum lögum, nr. 1/1992. Skal gjaldið vera sem svarar 25% álagi á vöru
Um 13. gr.
Greinin er óbreytt frá 13. gr. gildandi laga að öðru leyti en því að skotið er inn setningunni „önnur gjöld hafnarinnar ákveður viðkomandi hafnarstjórn“.
Um 14.–17. gr.
Orðalagsbreytingar sem þarfnast ekki skýringa.
Um 18. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 19. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 20. gr.
Orðalagsbreytingar sem þarfnast ekki skýringa.
Um 21. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 22. gr.
Meiri áhersla er lögð á það í þessari grein en í gildandi lögum að hafnarframkvæmdir, sem njóta ríkisstyrks, skuli unnar samkvæmt tilboði á grundvelli útboðs. Sé hins vegar talið að að
Um 23. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 24. gr.
Hér er felldur niður 7. tölul. úr gildandi lögum sem er stofnkostnaður við hafnarvogir og fasta krana til löndunar úr smábátum. Enn fremur er tekið fram að landgerð njóti ekki frekar en landa- og lóðakaup hafna ríkisstyrks. Með landgerð er átt við uppfyllingar sem gætu m.a. nýst sem byggingarlóðir. Aðrar breytingar þurfa ekki skýringa við.
Um 25. gr.
Úr 25. gr. gildandi laga er hér felldur niður síðari hluti 1. tölul. sem nefndin lítur svo á að sé óþarfur.
Um 26. gr.
Hér er um veigamiklar breytingar að ræða og vísast um þær til almennu greinargerðar
Um 27. gr.
Hér er um að ræða nokkrar breytingar frá gildandi lögum, þar sem gert er ráð fyrir að fjárlaganefnd Alþingis geti skert fjárframlög til hafna að fenginni umsögn hafnamálastjóra og hafnaráðs. Til að tryggja betur framkvæmd skerðingarákvæða er gert ráð fyrir í frum
Í núgildandi lögum eru ákvæði um að mismunur framlaga úr ríkissjóði sem þannig mynd
Um 28. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 29. gr.
Í greinina er bætt nýrri málsgrein svohljóðandi: „Við áætlanagerðina og forgangsröðun framkvæmda skal leggja til grundvallar mat á þörf fyrir framkvæmdir í einstökum höfnum, landshlutum og landinu í heild.“
Nefndin leggur ríka áherslu á að Alþingi afgreiði fjögurra ára hafnaáætlun á formlegan hátt sem ályktun Alþingis.
Um 30. gr.
Hér er gerð sú breyting frá gildandi lögum að gert er ráð fyrir að hafnaráð fari með stjórn sjóðsins í umboði samgönguráðherra. Jafnframt er hlutverk sjóðsins tilgreint.
Um 31. gr.
Í 3. tölul. er bætt ákvæðum um sérstakt vörugjald sem tekjulið fyrir Hafnabótasjóð. Fram
Um 32. gr.
Í stað þess að veita Hafnabótasjóði heimild til lántöku miðað við ákveðna upphæð er lán
Um 33. gr.
Hér er skilgreint frekar en í gildandi lögum hverjar lán- og styrkveitingar geti orðið til ein
Um 34. gr.
Í 35. gr. gildandi laga er gert ráð fyrir að Seðlabanki Íslands annist „í umboði ráðherra vörslu, daglega afgreiðslu og bókhald Hafnabótasjóðs“, jafnframt því sem hann veitir sjóðnum aðstoð við öflun lánsfjár. Hér er gert ráð fyrir því að þessi starfsemi færist að hluta yfir til Hafnamálastofnunar og er það m.a. gert vegna innheimtu á sérstaka vörugjaldinu. Þá er gert ráð fyrir að Lánasýsla ríkisins veiti sjóðnum aðstoð við öflun lánsfjár.
Um 35. gr.
Greinin er samhljóða 34. gr. gildandi laga.
Um 36. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum.
Um 37. gr.
Hér er gert ráð fyrir þeirri breytingu að umsóknir um lán og styrki úr Hafnabótasjóði séu sendar beint til Hafnamálastofnunar ríkisins í stað þess að senda þær til samgönguráðuneyt
Um 38. gr.–39. gr.
Greinar þessar eru óbreyttar frá gildandi lögum.
Um 40.–42. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal I.
Hugmynd að hafnasamlögum og aðrar hafnir,
tekjur þeirra og gjöld árið 1990.
(Tafla mynduð.)
Fylgiskjal II.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til hafnalaga.
Með frumvarpinu er sett ný heildarlöggjöf um hafnamál. Aðalkostnaðarþáttur þess er styrkveitingar ríkissjóðs til hafnarmannvirkjagerðar sveitarfélaga. Samkvæmt frumvarpinu breytist styrkhlutfall ríkissjóðs til einstakra framkvæmda eins og hér segir:
(Tafla mynduð.)
Aukin þátttaka ríkissjóðs í framkvæmdum, sem mótast af náttúruumhverfi hafna, svo sem gerð hafnargarða og dýpkanir, er rökstudd í greinargerð frumvarpsins með því að verið sé að jafna aðstöðumun einstakra sveitarfélaga til hafnargerða. Engu að síður verður að hafa hugfast að 90% þátttaka ríkissjóðs í framkvæmdum sem þessum mun auka þrýsting á að far
Í athugasemdum með frumvarpinu kemur fram að heildarframlag ríkissjóðs til hafnar
(Tafla mynduð.)
Á heildina litið má sjá að útgjöld samkvæmt frumvarpinu eru ívið lægri en samkvæmt gildandi lögum. Hins vegar ber að hafa í huga að hin breytta kostnaðarhlutdeild í einstökum framkvæmdum gæti vel haft áhrif á val þeirra framkvæmda sem ráðist verður í á næstu árum.
Í frumvarpinu er það nýmæli að heimilt er að stofna hafnasamlög til að koma á virkri verkaskiptingu milli hafna innan ákveðins svæðis. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að slík hafnasamlög geti leitt til mikillar hagræðingar. Tekið er undir það sjónarmið. Hins vegar er erfitt að sjá hvað muni hvetja einstök sveitarfélög til að sameinast um slík sam
Þá er vakin athygli á að ríkissjóði er ætlað að greiða 60% í kostnaði vegna upptökumann
Ákvæðum um starfsemi Hafnabótasjóðs er einnig breytt. Hið sérstaka vörugjaldsálag er lækkað úr 25% í 20% og rennur nú til starfsemi Hafnabótasjóðs, sem ætlað er að létta kostn
Þá er gert ráð fyrir að sjóðnum sé sjálfkrafa heimilt að taka lán að fjárhæð helmings al