Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 194 . mál.
231. Frumvarp til laga
um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987.
Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Kristín Ástgeirsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir.
1. gr.
Í stað 1.–2. mgr. 51. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar er orðast svo:
Ökuskírteini eru þrenns konar: Reynsluskírteini, bráðabirgðaskírteini og fullnaðarskírteini.
Reynsluskírteini er gefið út til byrjenda og gildir í sex mánuði. Brjóti handhafi reynsluskírteinis af sér á reynslutímanum er heimilt að framlengja gildistíma skírteinis hans um allt að sex mánuði í senn. Handhafa reynsluskírteinis er óheimilt að stjórna bifreið nema í fylgd með honum sé einstak
Bráðabirgðaskírteini er gefið út að loknum gildistíma reynsluskírteinis og gildir í tvö ár.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta gengur út á að gera eina einfalda breytingu á þeim kafla umferðarlaga sem fjallar um ökupróf og ökuskírteini, breytingu sem felur það í sér að við upphaf ökumannsferils ungmenna, sem lokið hafa prófi til að stjórna bifreið eða bifhjóli, komi sérstakt reynslutímabil, sex mánuðir, þar sem þeir skuli njóta fylgdar reyndari ökumanns eða stjórnanda. Sambærilegt fyrirkomulag eða svipað er þekkt frá mörgum löndum og hér á landi hefur oft komið til umræðu að innleiða reynslu- eða æfingatímabil sem hluta af þjálfun ungra ökumanna.
Horfast verður í augu við þá staðreynd að tíðni óhappa og slysa er óheyrilega mikil meðal yngstu ökumannanna og þar af verða sorglega mörg alvarleg slys á fyrstu vikum og mánuðum sem menn stjórna ökutækjum. Eins og reglur eru í dag eru því engin sérstök takmörk sett hvar, hvenær eða hverjum nýir og óreyndir stjórnendur ökutækja geta ekið. Slíkt er þó vel þekkt af öðrum sviðum og nægir að nefna áfanga á réttindabraut flugmanna og aðgreiningu í sólópróf (án farþega) og einka
Hér er valin sú leið að gera það að skilyrði á reynslutíma (gildistíma reynsluskírteinis) ökumanns að í fylgd með honum sé a.m.k. einn reyndari stjórnandi.
Eins og hörmuleg dæmi sanna er ekkert því til fyrirstöðu í dag að nýútskrifaður stjórnandi öku
Með viðveru reyndari stjórnenda og reynsluskírteini byrjandans vinnst a.m.k. tvennt, til staðar er meiri reynsla og þjálfun í mati á aðstæðum og akstri sem þeim hæfir og með reynslutímabili og reynsluskírteini er byrjandinn minntur á stöðu sína.
Með tillögu þessari er á engan hátt verið að varpa rýrð á ökukennslu í landinu eða þær kröfur sem gerðar eru til nemenda á ökuprófi og niðurstaða flutningsmanna var að gera ekki að svo stöddu nein
Upplýsingar úr gagnabanka Umferðarráðs, sem fylgja tillögunni og taka til áranna 1986–1991 að báðum árum meðtöldum, sýna ekki aðeins að tíðni óhappa og slysa er mest í hópi yngstu öku
Ef árið 1991 er skoðað sérstaklega og tekið fyrir aldursbilið 17–64 ára, flokkað eins og gert er á skráningarblöðum Umferðarráðs, kemur eftirfarandi í ljós:
Fjöldi slasaðra og látinna.
Bifreiðar: 17–20 ára 133 = 33 að meðaltali úr árgangi
21–24 ára 58 = 15 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára 229 = 6 að meðaltali úr árgangi
Bifhjól: 17–20 ára 26 = 7 að meðaltali úr árgangi
21–24 ára 10 = 3 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára 11 = >1 að meðaltali úr árgangi
Ef aldur ökumanna, sem áttu aðild að slysum, er skoðaður nánar kemur í ljós að á árinu 1991 voru
17 ára ökumenn 136
18 ára ökumenn 96
19–24 ára ökumenn 244 eða 41 að meðaltali úr árgangi
25–64 ára ökumenn 563 eða 16 að meðaltali úr árgangi
(Meðaltöl hækkuð eða lækkuð í næstu heila tölu.)
Önnur ár segja svipaða sögu. Ef tekið er meðaltal yfir árabilið 1986–1991 að báðum árum meðtöldum er útkoman eins og sjá má í meðfylgjandi töflu, sjá fskj. I. Rétt er að hafa í huga að hér eru einungis skoðaðir aldurshóparnir 17–64 ára og ekki er leiðrétt fyrir mismunandi fjölda í árgangi eða því um líku. Engu að síður segja þessar tölur mikið um hina háu slysatíðni í hópi yngstu öku
Fylgiskjal I.
Fjöldi slasaðra og látinna.
1986 Meðalt. 1987 Meðalt. 1988 Meðalt. 1989 Meðalt. 1990 Meðalt. 1991 Meðalt. Samtals Meðalt. Meðalt. í árgangi
í árg. í árg. í árg. í árg. í árg. í árg. á tímab. yfir allt tímab.
Bifreiðar:
17–20 ára 98 24.5 107 26.8 104 26.0 82 20.5 102 25.5 133 33.3 626 104.3 26.1
21–24 ára 44 11.0 65 16.3 48 12.0 34 8.5 48 12.0 58 14.5 297 49.5 12.4
25–64 ára 168 4.2 196 4.9 175 4.4 174 4.4 179 4.5 229 5.7 1121 186.8 4.7
Bifhjól:
17–20 ára 15 3.8 4 1.0 7 1.8 19 4.8 19 4.8 26 6.5 90 15.0 3.8
21–24 ára 8 2.0 2 0.5 7 1.8 9 2.3 5 1.3 10 2.5 41 6.8 1.7
25–64 ára 3 0.1 2 0.1 4 0.1 8 0.2 5 0.1 11 0.3 33 5.5 1.4
Aldur ökumanna sem átt hafa aðild að slysum.
17 ára 70 70.0 76 76.0 91 91.0 76 76.0 83 83.0 136 136.0 532 88.7 88.7
18 ára 62 62.0 61 61.0 78 78.0 64 64.0 63 63.0 96 96.0 424 70.7 70.7
19–24 ára 231 38.5 250 41.7 220 36.7 172 28.7 206 34.3 244 41.0 1323 220.5 36.8
25–60 ára 386 10.7 435 12.6 447 12.4 394 10.9 442 12.3 563 16.0 2685 447.5 12.4
Fylgiskjal II.
Umferðarráð:
BRÁÐABIRGÐASKRÁNING UMFERÐARSLYSA 1986–1991
(Töflur myndaðar.)