Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 195 . mál.
232. Tillaga til þingsályktunar
um eftirlit Landhelgisgæslunnar innan 200 sjómílna efnahagslögsögunnar.
Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Eyjólfur Konráð Jónsson.
Alþingi ályktar að skora á dómsmálaráðherra að hann láti fara fram ítarlega athugun á því hve mörg tæki (skip og loftför) Landhelgisgæslan þurfi til að halda uppi fullu eftirliti innan 200 sjómílna efnahagslögsögunnar samkvæmt lögum nr. 41/1979 og 200 sjómílna fiskveiðilandhelgi samkvæmt reglugerð nr. 299/1975. Einnig skal kanna hver viðbótin þurfi að vera verði efnahagslögsagan færð út allt að 350 sjómílum á þeim svæðum sem Ísland á rétt á samkvæmt alþjóðalögum.
Greinargerð.
Eins og bersýnilega hefur komið í ljós að undanförnu má þjóðarbúið ekki við neinum skakkaföllum í efnahagslögsögunni. Efnahagslögsagan er mjög víðfeðm, um 758 þúsund ferkílómetrar, eða 7,5 sinnum stærri en landið sjálft. Ekki er úr vegi að líta á þann viðbúnað sem nágrannaþjóðir okkar hafa vegna eftirlits í sínum efnahagslögsögum. Þar má nefna Norðmenn, Englendinga og Dani vegna Grænlands og Færeyja.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvað samkeppnin um fiskinn í höfunum hefur aukist á síðustu árum. Ásókn fiskiskipa við 200 sjómílna mörkin og/eða miðlínur hefur aukist að undanförnu og má þar nefna svæði á Færeyjahrygg, á Reykjaneshrygg, á Dohrnbanka og norðaustur af landinu. Einnig má benda á áhuga Spánverja, Portúgala, Frakka og fleiri þjóða á fiskveiðum í Norðaustur-Atlantshafi. Skip frá öðrum heimsálfum hafa sótt til veiða við mörk efnahagslögsögunnar á undanförnum árum og má þar t.d. nefna skip frá Asíu.
Eftir að breyting varð á lögum hvað varðar heimildir erlendra fiskiskipa til löndunar á afla í íslenskum höfnum má búast við aukningu á umferð þeirra um efnahagslögsöguna. Einnig er talsverð umferð þeirra fiskiskipa um efnahagslögsöguna sem sækja á Dohrn-banka. Ekki má gleyma hversu mikilvægt er að halda uppi öflugu eftirliti vegna mengunar sjávar. Ef upp kæmi mengunarslys innan efnahagslögsögunnar og/eða frétt um slíkt gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir markaði á sjávarafurðum okkar erlendis. Stærð efnahagslögsögunnar við Ísland og þýðing hennar fyrir þjóðarbúið er svo mikil að ekki má hætta á neitt er dregið gæti úr strangri gæslu á auðlindinni.