Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 206 . mál.
247. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 73 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
1. gr.
Í 1. mgr. 4. gr. laganna falla orðin „iðnaðarráðuneyti“ og „viðskiptaráðuneyti“ brott, en á eftir orðunum „heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti“ kemur: iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp sama efnis var lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi, en varð ekki útrætt.
Með reglugerð nr. 64 8. júlí 1987 um breyting á reglugerð nr. 96 31. desember 1969, um Stjórnarráð Íslands, voru málefni utanríkisviðskipta flutt frá viðskiptaráðuneyti til utanríkisráðuneytis, en áður höfðu þau verið verulegur þáttur verkefna viðskiptaráðuneytis. Enn fremur hefur afgreiðsla einkaleyfa- og vörumerkjamála verið flutt úr iðnaðarráðuneyti til sérstakrar stofnunar, en þar er um að ræða allmikla afgreiðslustarfsemi. Afgreiðslum í báðum ráðuneytum hefur því fækkað að undanförnu og verksvið þeirra breyst. Í ráðuneytunum eru nú tæplega 25 stöðugildi samtals.
Á sl. kjörtímabili var samið frumvarp til nýrra stjórnarráðslaga og var um það fjallað af sérstakri milliþinganefnd í nokkrum útgáfum. Þar var gert ráð fyrir sameiningu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytanna og var um þann þáttinn góð samstaða.
Þegar fyrrverandi ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis fékk lausn og fór á eftirlaun haustið 1990 var stjórn ráðuneytanna sameinuð á þann hátt að ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis var samhliða starfi sínu settur ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyti, enda þótti ekki rétt að skipa nýjan ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneyti með æviráðningu við þær aðstæður.
Síðan hefur verið unnið að skipulagi sameinaðs ráðuneytis og þykir það starf hafa staðfest augljóst hagræði af sameiningunni þar sem aðstaða, búnaður og starfsmenn nýtast betur við lausn þeirra verkefna sem bæði ráðuneytin fara með. Til að ná fram þeirri hagræðingu, sem hlýst af sameiginlegum rekstri þessara ráðuneyta, ákvað forsætisráðherra að nota til þess heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 73/1969 og fól ráðuneytisstjóra iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta það með bréfi dags. 2. júní 1992 að hafa, eftir því sem við verður komið, sameiginlegt starfslið og húsnæði.
Þess skal loks getið að í nágrannaríkjunum hefur þegar átt sér stað sameining iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta eins og hér er lagt til.
Í fskj. II er kynnt tillaga að reglugerð um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 96 31. desember 1969, sem lögð verður fyrir forseta Íslands til staðfestingar verði frumvarp þetta að lögum.
Fylgiskjal I.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Kostnaðarumsögn.
Svo sem getið er í athugasemdum við frumvarpið hefur afgreiðsluverkefnum iðnaðarráðuneytis og viðskiptaráðuneytis fækkað og verksvið þeirra breyst. Beinn sparnaður við sameininguna felst í tvennu. Laun eins ráðuneytisstjóra falla brott, um 3 milljónir króna, og til viðbótar má gera ráð fyrir almennri hagræðingu við sameiningu tveggja ráðuneyta. Á þessu ári er búið að verja um 15 milljónum króna í innréttingar og breytingar á húsnæði iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta, en aðeins hluti af þeim kostnaði getur talist til kominn vegna sameiningar ráðuneytanna.
Gert er ráð fyrir að samnýting starfsliðs hinna tveggja fyrri ráðuneyta verði til að nokkur kostnaður sparist við sameininguna. Einnig má ætla að einhver fækkun í starfsliði geti náðst fram á fjárlögum næsta árs.
Fylgiskjal II.
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 96 31. desember 1969,
um Stjórnarráð Íslands, með áorðnum breytingum.
1. gr.
8. gr. orðast svo:
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti fer með mál er varða:
2. gr.
15. gr. fellur brott og töluröð síðari greina breytist eftir því.
3. gr.
Í stað „2.–15. gr.“ í 16. gr., er verður 15. gr., kemur: 2.–14. gr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 8. gr. laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi.