Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 20 . mál.


266. Nefndarálit



um frv. til l. um hópuppsagnir.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Fékk hún á fund sinn Berglindi Ásgeirsdóttur, Gylfa Kristinsson og Gunnar Sigurðsson frá félagsmálaráðuneytinu. Enn fremur komu á fund nefndarinnar Hrafnhildur Stefánsdóttir frá VSÍ, Hjörtur Eiríksson frá VMSS, Björn Arnórsson frá BSRB, Páll Halldórsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Eggert Lárusson frá BHMR, Ari Skúlason frá ASÍ, Ragnhildur Hjaltadóttir frá samgönguráðuneytinu, Guðjón A. Kristjánsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Jónas Haraldsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þá studdist nefndin við umsagnir er bárust á 115. löggjafarþingi frá VMSS, VSÍ, Kennarasambandi Íslands, Stéttarsambandi bænda, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, BHMR, ASÍ, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Fjórðungssambandi Norðlendinga, Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, Sambandi byggingamanna og Landssambandi vörubifreiðastjóra.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    7. gr. orðist svo:
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993. Frá sama tíma fellur úr gildi 55. gr. laga nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o.fl.

    Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja breytingartillögur eða fylgja þeim sem fram kunna að koma.

Alþingi, 10. nóv. 1992.



Guðjón Guðmundsson,

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,

Ingibjörg Pálmadóttir.


varaform., frsm.

með fyrirvara.



Drífa Hjartardóttir.

Kristinn H. Gunnarsson.

Jón Kristjánsson.



Össur Skarphéðinsson.

Eggert Haukdal.

Pétur Sigurðsson.