Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 224 . mál.


272. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um aðstoð við íbúa fyrrum ríkja Júgóslavíu.

Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.



    Með hvaða hætti hafa íslensk stjórnvöld liðsinnt stríðshrjáðum íbúum í fyrrum ríkjum Júgóslavíu?
    Hvaða fyrirætlanir eru uppi meðal íslenskra stjórnvalda um að koma til hjálpar þeim tugþúsundum barna sem búa við stríðsátök, næringarskort og ónóga aðhlynningu á helstu átakasvæðum þessara ríkja, svo sem í Bosníu-Hersegovínu?