Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
234
. mál.
297. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra og menntamálaráðherra um eflingu Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins sem miðstöðvar fræðslu- og rannsókna á sviði sjávarútvegs.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst í framhaldi af ályktun Alþingis frá 20. maí sl. um eflingu Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins sem miðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs?
Munu ráðherrar beita sér fyrir því að veitt verði nægjanlegt fé á fjárlögum næsta árs til að tryggja þessari ályktun og þeirri stefnumörkun sem í henni felst brautargengi?