Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 236 . mál.


299. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um viðskipti Stofnlánadeildar og loðdýrabænda.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



    Hyggst landbúnaðarráðherra beita sér fyrir viðræðum við Stofnlánadeild landbúnaðarins til að móta vinnureglur um skuldaskil loðdýrabænda?
    Mun landbúnaðarráðherra beita sér fyrir því að Stofnlánadeild landbúnaðarins stöðvi innheimtu hjá loðdýrabændum uns vinnureglurnar liggja fyrir?