Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 30 . mál.


302. Nefndarálit



um frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33 17. júní 1944.

Frá minni hluta stjórnarskrárnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarp þetta er lýtur að því að bæta við stjórnarskrána nýrri grein um þjóðaratkvæðagreiðslur. Nefndin fjallaði um frumvarpið samhliða 29. máli þingsins er felur í sér tillögu um breytingu á 21. gr. stjórnarskrárinnar um samninga við önnur ríki.
    Nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Minni hluti nefndarinnar mælir hins vegar með samþykkt frumvarpsins með tiltekinni breytingu.
    Með frumvarpinu er minni hluta á Alþingi, sem nemur minnst þriðjungi alþingismanna, veittur réttur til að krefjast þjóðaratkvæðis:
     um samning sem háður er samþykki Alþingis, sbr. 2. málsl. 21. gr. stjórnarskrárinnar, og er þá niðurstaðan bindandi, sbr. 2. mgr. frumvarpsins;
     um frumvarp eða þingsályktun áður en fullnaðarafgreiðsla máls fer fram og er þá niðurstaðan ráðgefandi.
    Í löggjöf margra ríkja er ráð fyrir því gert að bera megi mikilvæg mál undir dóm þjóðarinnar. Sem dæmi má nefna ítarleg ákvæði dönsku stjórnarskrárinnar sem veita þriðjungi þingmanna rétt til að krefjast þess að samþykkt lagafrumvarp sé lagt fyrir kjósendur til samþykktar eða synjunar. Þó eru ýmsar tegundir lagafrumvarpa undanþegnar, t.d. fjárlög, launa- og eftirlaunalög og skattalög. Frumvarp verður ekki fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu nema 30% kjósenda taki þátt í henni en að öðru leyti eru úrslitin bindandi fyrir löggjafann.
    Minni hluta nefndarinnar þykir rétt að gefa þjóðinni kost á að segja álit sitt á umdeildum þjóðmálum, sem lögð eru fyrir Alþingi, áður en þau eru afgreidd. Þó verður að stuðla að því að þessi réttur sé ekki ofnotaður heldur einungis nýttur þegar sérstök ástæða þykir til.
    Í tillögum stjórnarskrárnefndar, sem fram voru lagðar í ársbyrjun 1983 og fluttar voru í frumvarpsformi af formanni nefndarinnar, dr. Gunnari Thoroddsen, á Alþingi í mars 1983, var gert ráð fyrir að fjórðungur kjósenda gæti krafist þjóðaratkvæðis um tiltekið mál. Minni hluta nefndarinnar þykir rétt að taka nú upp þessa tillögu í greinina og leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem tillaga er gerð um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 17. nóv. 1992.



Ragnar Arnalds,

Steingrímur Hermannsson.

Kristín Einarsdóttir.


frsm.



Páll Pétursson.