Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 245 . mál.


314. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um stjórnarnefndir vinnumiðlunar.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Í hvaða sveitarfélögum, fjölmennari en 500 manns, hefur verið skipuð stjórnarnefnd vinnumiðlunar samkvæmt ákvæðum laga nr. 18/1985 og hvenær var það gert?
    Í hvaða sveitarfélögum, fjölmennari en 500 manns, hefur ekki verið skipuð stjórnarnefnd vinnumiðlunar?
    Hvernig hefur eftirliti ráðuneytisins verið háttað með framkvæmd laganna?


Skriflegt svar óskast.