Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 77 . mál.


317. Nefndarálit


um frv. til l. um gagnkvæma viðurkenningu á menntun ríkisborgara í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og á Norðurlöndum til starfsréttinda á Íslandi.

Frá meiri hluta menntamálanefndar.


    Nefndin hefur rætt frumvarpið á fundum sínum og fengið til viðtals Hörð Lárusson, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu, og Berglindi Ásgeirsdóttur, ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingarnar eru eftirfarandi:
    1. Lagt er til að orðin „vegna menntunar er veitir starfsréttindi“ í 1. mgr. 1. gr. falli brott og í þeirra stað komi orðin: vegna starfsmenntunar. Með þessari breytingu er verið að orða gildissvið frumvarpsins skýrara þannig að það nái einungis til viðurkenningar á þeirri menntun og prófskírteinum sem aðili hefur hlotið. Jafnframt eru gerðar aðrar smávægilegar orðalagsbreytingar á 1. gr.
    2. Lagðar eru til breytingar á fyrri málsgrein 1. gr., 2. gr., fyrri málsgrein 4. gr. og 5. gr. sem þrengja gildissvið frumvarpsins þannig að það nái einungis yfir eina tilskipun, þ.e. tilskipun 89/48EBE sem tengist samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, auk þeirra samninga sem ríkisstjórnir Norðurlanda gera og öðlast hafa gildi að því er Ísland varðar.
    3. Lagt er til að felld séu brott ákvæði í 5. gr. er lúta að framkvæmd laganna og eiga að mati nefndarmanna betur heima í reglugerð.
    4. Lagt er til að heiti frumvarpsins verði breytt til að fyrirbyggja mistúlkun á gildissviði þess.
    Í umræðum í nefndinni komu fram efasemdir um hvort nauðsynlegt væri að hafa undanþáguákvæði 1. mgr. 4. gr. inni í texta frumvarpsins. Niðurstaða nefndarmanna var sú að ákvæðið væri nauðsynlegt vegna þeirra skuldbindinga sem felast í Norðurlanda- samningnum.
    Árni Johnsen var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. nóv. 1992.


Sigríður A. Þórðardóttir,

Björn Bjarnason.

Tómas Ingi Olrich.

form., frsm.



Rannveig Guðmundsdóttir.

Valgerður Sverrisdóttir,

með fyrirvara.