Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 77 . mál.


327. Nefndarálit



um frv. til l. um gagnkvæma viðurkenningu á menntun ríkisborgara í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og á Norðurlöndum til starfsréttinda á Íslandi.

Frá minni hluta menntamálanefndar.


    Nefndin hefur á þessu hausti haft til umfjöllunar eitt af þeim frumvörpum sem beinlínis tengjast hugsanlegri aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að ríkisborgarar aðildarríkja EES geti komið hingað til lands, lagt fram próf sín eða skírteini um menntun, fengið þau viðurkennd og síðan hafið leit að vinnu. Jafnframt gildir áfram sá samningur sem um árabil hefur tengt saman Norðurlöndin sem einn vinnumarkað. Á móti kemur að Íslendingar hafa sömu möguleika til viðurkenningar á menntun og prófum í þeim ríkjum sem munu gerast aðilar að EES verði samningurinn að veruleika.
    Samvinna í menntamálum þjóða í milli er bæði æskileg og nauðsynleg svo og gagnkvæm viðurkenning á prófum og menntun þannig að þekkingu og reynslu verði miðlað milli þjóða. Slík samvinna á að okkar dómi að vera óháð efnahagsbandalögum og ríkjaheildum. Því væri mun nær að gera ráð fyrir viðurkenningu á prófum og menntun fólks alls staðar að úr heiminum, að því tilskildu að það standist þær kröfur sem gerðar eru hér á landi, sé á annað borð vilji til að opna íslenskan vinnumarkað. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að kröfur verði ekki minnkaðar til samræmis við það sem kann að gerast í ýmsum löndum Evrópu.
    Ljóst má vera að það er flókið mál að átta sig á skólakerfum og þeim mismunandi kröfum sem gerðar eru til hinna ýmsu starfsstétta. Menntakerfi eru mismunandi eftir löndum og álfum og því verður engan veginn einfalt að framfylgja fyrirhuguðum lögum, jafnvel þótt ríki EES verði ein um hituna. Íslendingar hafa þó manna mesta reynslu af því að leita sér menntunar vítt um veröld alla enda hafa menntamálaráðuneytið og Lánasjóður íslenskra námsmanna aflað sér mikilla upplýsinga um skóla víða um heim. Íslendingar ættu því alveg eins að ráða við heiminn allan eins og EES þegar próf og menntun eru annars vegar.
    Minni hluti nefndarinnar er andvígur þeirri úreltu heimssýn sem birtist í EES þótt vissulega megi benda á nokkra kosti sem fylgja mundu aðild Íslands að EES. Minni hlutinn telur hagsmunum og framtíð þjóðarinnar betur borgið utan þessarar efnahagsheildar en innan og vill fremur sjá sem frjálsust viðskipti milli allra þjóða heims en blokkamyndun og einangrunarstefnu af því tagi sem einkennir Evrópubandalagið. Því styður minni hlutinn ekki þau mál sem eru bein afleiðing af samningnum um EES og hefðu annaðhvort ekki komið til umfjöllunar á Alþingi eða verið með allt öðrum hætti hefði Alþingi eitt um vélað. Þá leiðir gildistökuákvæði frumvarpsins einnig af sér að minni hlutinn styður það ekki þótt hann sé efnislega samþykkur því að fólk eigi greiðan aðgang að viðurkenningu á menntun og prófum utan sem innan EES. Minni hluti nefndarinnar mun því sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 23. nóv. 1992.


Kristín Ástgeirsdóttir,

Svavar Gestsson.

frsm.