Ferill 254. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 254 . mál.
331. Frumvarp til laga
um gjald af umboðsþóknun í gjaldeyrisviðskiptum.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
1. gr.
Lánastofnanir og aðrir aðilar, sem versla með erlendan gjaldeyri, skulu frá og með 1. janúar 1993 greiða ríkissjóði 45% af þóknun þeirri er þeir taka af viðskiptamönnum sínum fyrir þjónustu við yfirfærslu fjár til útlanda eða aðrar greiðslur erlendis. Þetta gildir jafnt um hvers konar ábyrgðarlaun, innheimtulaun og allar aðrar greiðslur, hverju nafni sem nefnast, fyrir þjónustu þá er hér um ræðir.2. gr.
Frá og með 1. janúar 1994 skal gjald skv. 1. gr. vera 30% og frá og með 1. janúar 1995 skal gjaldið vera 15%.3. gr.
Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að gjaldskyldir aðilar skv. 1. gr. inni gjaldið af hendi svo sem fyrir er mælt í lögum þessum.Fjármálaráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi frá og með 1. janúar 1993 og gilda til 31. desember 1995. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 52/1984, um gjald af umboðsþóknun og gengismun vegna gjaldeyrisviðskipta, með síðari breytingum.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir því að fellt verði niður í þrepum gjald það sem innheimt hefur verið af tekjum banka og innlánsstofnana af umboðsþóknun og gengismun vegna gjaldeyrisviðskipta samkvæmt lögum nr. 52/1984, um gjald af umboðsþóknun og gengismun vegna gjaldeyrisviðskipta. Frumvarp þetta er ekki flutt sem breytingarfrumvarp við lög nr. 52/1984, heldur er gert ráð fyrir að þau lög falli úr gildi. Þetta byggist fyrst og fremst á því að lögunum er ætlaður stuttur líftími eða þrjú ár, en skv. 4. gr. frumvarpsins verður gjald þetta ekki lagt á eftir árslok 1995. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að heiti laganna verði lög um gjald af umboðsþóknun í gjaldeyrisviðskiptum. Heiti gömlu laganna á ekki lengur við. Bæði gerir frumvarpið ráð fyrir því að gjaldið sé ekki innheimt af tekjum af gengismun og einnig það að með því að gjaldeyrismarkaðir eru að opnast geta fleiri farið út í verslun með gjaldeyri en bankar og aðrar lánastofnanir. Gjald þetta á sér orðið nokkuð langa sögu í íslenskri löggjöf, en það var fyrst innheimt á grundvelli laga nr. 86/1956, um útflutningssjóð o.fl. Gjaldið var í upphafi hugsað sem nokkurs konar hlutdeild ríkissjóðs í tekjum banka og innlánsstofnana af gjaldeyrisviðskiptum. Var í því sambandi haft í huga að bankar og innlánsstofnanir voru ekki skattskyldar. Þegar bankar urðu skattskyldir með lögum nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, var gert ráð fyrir því að gjald þetta legðist af. Horfið var frá þeim áformum og byggðist sú ákvörðun fyrst og fremst á tekjuþörf ríkissjóðs. Enda þótt tekjuþörf ríkissjóðs sé síst minni í dag en hún var fyrir 10 árum síðan standa óbreytt þau rök sem bjuggu að baki þeim áformum að fella niður gjaldið þegar bankar urðu skattskyldir. Fleira kemur þó til því fyrr á árinu var lögum um Seðlabanka Íslands breytt á þann veg að gert er ráð fyrir að komið verði á fót gjaldeyrismarkaði hér á landi. Í því felst að Seðlabanki Íslands mun ekki lengur skrá sérstakt kaup- og sölugengi einstakra gjaldmiðla, heldur mun ákvörðunin færast til innlánsstofnana sjálfra. Það er mat manna að þetta geri það að verkum að nánast verði óframkvæmanlegt að halda utan um stofn gjaldsins. Hefur í því sambandi verið nefnt að líklega muni í bókhaldi banka renna saman gengismunur og hagnaður af kaupum og sölum á erlendum gjaldeyri á gjaldeyrismarkaði.
Í lögum nr. 52/1984 er í 2. gr. kveðið á um að bankar og innlánsstofnanir skuli endurgreiða olíufélögum 45% af heildartekjum sínum vegna mismunar sölugengis og kaupgengis gjaldeyris vegna kaupa á gasolíu og svartolíu en ríkissjóður felli jafnframt niður 45% gjaldtöku af mismun sölu- og kaupgengis gjaldeyris og þóknunum. Þetta ákvæði kom inn í lögin á árinu 1985 og mun ástæðan hafa verið mildunaraðgerðir vegna óvenjumikilla hækkana á olíuverði. Í þessu frumvarpi er ekki gert ráð fyrir sambærilegu ákvæði enda þær forsendur, sem bjuggu að baki þessu ákvæði, ekki lengur fyrir hendi.
Í ljósi þess að ríkissjóður má vart við missi þeirra tekna sem gjald þetta hefur skilað árlega er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir því að það verði fellt niður í þrepum. Þannig verði frá 1. janúar 1993 ekki innheimt neitt gjald af gengismuninum, heldur einungis 45% af þóknunum. Frá 1. janúar 1994 lækki hlutfallið síðan í 30% og frá 1. janúar 1995 lækki hlutfallið síðan í 15%. Síðan er gert ráð fyrir að lögin falli niður frá og með 1. janúar 1996 og gjald þetta heyri þar með sögunni til.
Það er forsenda frumvarpsins að gjaldskrá banka og sparisjóða verði með svipuðu sniði og verið hefur, þannig að tekjuforsendur fjárlaga komi til með að standast.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samkvæmt þessu ákvæði er gert ráð fyrir að lánastofnanir eða aðrir aðilar, sem versla með gjaldeyri, skili ríkissjóði 45% af þeim þóknunum sem teknar eru af viðskiptamönnum fyrir þjónustu við yfirfærslu fjár til útlanda eða aðrar greiðslur erlendis. Gjaldskyldur aðili er þannig hver sá sem verslar með erlendan gjaldeyri, en samkvæmt þeim breytingum, sem gerðar voru fyrr á þessu ári á lögum nr. 14/1992, um Seðlabanka Íslands, og skv. 8. gr. laga um gjaldeyrismál, sem nýlega voru afgreidd frá Alþingi, er ekkert því til fyrirstöðu að fleiri aðilar versli með gjaldeyri en bankar og innlánsstofnanir. Með þóknunum er átt við hvers konar gjald sem innheimt er af viðskiptamönnum fyrir þá þjónustu sem veitt er í tengslum við gjaldeyrisviðskiptin. Að öðru leyti vísast um skýringar til almennra athugasemda.
Um 2. gr.
Um skýringar á þessu ákvæði vísast til skýringa í almennum athugasemdum.
Um 3. gr.
Í þessu ákvæði er að finna almenna reglugerðarheimild til handa ráðherra til að setja nánari reglur um framkvæmd laganna, t.d. um skil gjaldsins o.fl. Gert er ráð fyrir að skil séu gerð mánaðarlega og berist Seðlabanka Íslands fyrir 15. hvers mánaðar fyrir næstliðinn mánuð.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.