Ferill 255. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 255 . mál.


332. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34 25. mars 1991.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



1. gr.


    3. gr. laganna orðast svo:
     Erlendum aðilum er heimilt að fjárfesta í atvinnurekstri hér á landi með þeim takmörkunum sem í þessum lögum eða sérlögum greinir og að uppfylltum öðrum skilyrðum og að fengnum tilskildum leyfum lögum samkvæmt.

2. gr.


    4. gr. laganna orðast svo:
     Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi er háð eftirfarandi takmörkunum:
    Íslenskir ríkisborgarar sem eiga lögheimili hérlendis og lögaðilar sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eign íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hérlendis mega einir stunda fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands samkvæmt nánari ákvæðum í lögum um rétt til fiskveiða í efnahagslögsögu Íslands.
                  Viðskiptaráðherra getur með úrskurði skuldbundið fyrirtæki sem hafa að hluta eða öllu leyti verið keypt af erlendum aðilum eða íslenskum ríkisborgurum sem ekki eiga lögheimili á Íslandi til að losa sig við fjárfestingu í fiskiskipum. Úrskurður ráðherra er aðfararhæfur.
    Íslenskir ríkisborgarar, sem eiga lögheimili hérlendis og lögaðilar sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hérlendis, mega einir eiga og reka fyrirtæki til vinnslu sjávarafurða hér á landi, en með vinnslu sjávarafurða er hér átt við frystingu, söltun, herslu, reykingu, súrsun, niðursuðu, niðurlagningu og hverja aðra þá verkun sem ver fisk og aðrar sjávarafurðir skemmdum, þar með taldar bræðsla og mjölvinnsla. Til vinnslu í þessu sambandi telst hins vegar ekki umpökkun afurða í neytendaumbúðir eða frekari vinnsla afurða til að gera þær hæfari til dreifingar, neyslu eða matreiðslu.
                  Viðskiptaráðherra getur með úrskurði skuldbundið fyrirtæki sem hafa að hluta eða öllu leyti verið keypt af erlendum aðilum eða íslenskum ríkisborgurum sem ekki eru með lögheimili á Íslandi til að losa sig við fjárfestingu í vinnslu sjávarafurða. Úrskurður ráðherra er aðfararhæfur.
    Íslenska ríkið, sveitarfélög, íslenskir ríkisborgarar sem eiga lögheimili hérlendis og lögaðilar, sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hérlendis, mega einir eiga virkjunarréttindi vatnsfalla og jarðhita önnur en til heimilisnota. Sama á við um fyrirtæki sem stunda orkuvinnslu og orkudreifingu.
                  Frá og með 1. janúar 1996 skulu ríkisborgarar aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins og lögaðilar með heimili á svæðinu hafa sama rétt til fjárfestingar á þessu sviði og íslenskir ríkisborgarar og lögaðilar.
    Erlendir aðilar mega eiga 25% hlutafjár í íslenskum viðskiptabanka. Frá og með 1. janúar 1996 fellur ákvæði þessa töluliðar úr gildi.
    Fjárfesting erlends ríkis, sveitarfélags eða annars erlends stjórnvalds í atvinnurekstri hér á landi er óheimil, nema með leyfi viðskiptaráðherra.
    Erlendum aðila er heimilt að öðlast eignarrétt og afnotarétt yfir fasteign til beinnar notkunar í atvinnustarfsemi sinni samkvæmt ákvæðum laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.
                  Ef erlendur aðili sem veðhafi eignast fasteign hér á landi við útgáfu uppboðsafsals eða með samningum til lúkningar veðskuldar og veðhafinn hefur eigi eignarhaldsrétt samkvæmt lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna skal hann selja eignina svo fljótt sem verða má og eigi síðar en tólf mánuðum eftir að eignin komst í hans eigu. Sama gildir um erlendan veðhafa sem eignast á sama hátt eignarréttindi sem honum er óheimilt samkvæmt þessari grein.

3. gr.


    Ný grein bætist við og verður 5. gr. Númer annarra greina breytist samkvæmt því. Greinin orðast svo:
     Nú vill erlendur aðili reka atvinnustarfsemi hér á landi í eigin nafni og skal þá svo með fara:
    Sé um að ræða einstakling sem búsettur er erlendis skal honum óheimilt að vinna sjálfstætt eða starfrækja eigið atvinnufyrirtæki eða taka þátt í fyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð hér á landi, nema með leyfi viðskiptaráðherra, enda sé lögheimili hér á landi ekki óundanþægt skilyrði samkvæmt lögum um viðkomandi atvinnugrein eða veiting undanþágu frá lögheimilisskilyrði falin öðrum. Ríkisborgarar aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins eru undanþegnir ákvæðum þessa liðar.
    Um rétt hlutafélags, sem á heimili erlendis, til að starfa hér á landi fer samkvæmt ákvæðum laga um hlutafélög.
    Viðskiptaráðherra getur veitt öðrum lögaðilum, sem heimili eiga erlendis, leyfi til að starfa hér á landi, enda sé þá, að því er varðar slíka lögaðila og starfsemi þeirra hér á landi, fullnægt sömu skilyrðum og fylgt sömu meginreglum og að því er varðar erlend hlutafélög, sbr. b-lið þessarar greinar. Útibú slíks lögaðila skal skráð í firmaskrá á heimilisvarnarþingi útibúsins. Lögaðilar með heimili í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eru undanþegnir ákvæðum þessa liðar.

4. gr.


    Í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr., sem verður 6. gr., fellur niður „gjaldeyriseftirliti“ á eftir „Seðlabanka Íslands“.
     Í 4. málsl. 1. mgr. 5. gr., sem verður 6. gr., kemur: bankanum í stað „gjaldeyriseftirlitinu“.
     Í 3. mgr. 5. gr., sem verður 6. gr., fellur niður „Gjaldeyriseftirlit“ á undan „Seðlabanka Íslands“.
     Í 1. málsl. 6. gr., sem verður 7. gr., fellur niður „gjaldeyriseftirliti“ á undan „Seðlabanka Íslands“.

5. gr.


    8. gr., sem verður 9. gr., orðast svo:
     Í innlendum atvinnufyrirtækjum skulu framkvæmdastjórar og meiri hluti stjórnarmanna vera búsettir hér á landi óháð eignarhlut, atkvæðisrétti eða öðrum yfirráðum erlendra aðila. Þetta gildir þó ekki um ríkisborgara aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Viðskiptaráðherra getur veitt ríkisborgurum annarra ríkja undanþágu frá þessu ákvæði.

6. gr.


    10. gr., sem verður 11. gr., orðast svo:
     Nú telur viðskiptaráðherra að tiltekin erlend fjárfesting ógni öryggi landsins eða gangi gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði og getur hann þá stöðvað viðkomandi fjárfestingu enda kunngjöri hann þá slíka ákvörðun innan átta vikna frá því að Seðlabankanum berst tilkynning um hlutaðeigandi fjárfestingu, sbr. 6. gr.
     Sérstök fimm manna nefnd, nefnd um erlenda fjárfestingu, skal vera viðskiptaráðherra til ráðuneytis um beitingu öryggisákvæðis skv. 1. mgr. og skal hún kölluð saman þegar ráðherra hyggst beita þessu ákvæði. Jafnframt skal nefndin fylgjast með að ákvæðum 4. gr. um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sé framfylgt.
     Viðskiptaráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Einn nefndarmanna skipar ráðherra án tilnefningar, einn samkvæmt tilnefningu forsætisráðherra, einn samkvæmt tilnefningu dómsmálaráðherra, einn samkvæmt tilnefningu sjávarútvegsráðherra og einn samkvæmt tilnefningu utanríkisráðherra. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Viðskiptaráðherra skipar formann og varaformann úr hópi nefndarmanna.

7. gr.


    Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.

8. gr.


    Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34 25. mars 1991, og gefa þau út svo breytt.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er flutt til að laga reglur um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi að ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði. Jafnframt eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar á lögunum í átt til aukins frjálsræðis á þessu sviði.
     Samkvæmt ákvæðum EES-samningsins skal aðilum í einu ríki innan EES vera heimilt án takmarkana að fjárfesta í atvinnurekstri í öðru ríki á svæðinu. Í XII. viðauka með samningnum er Íslandi veitt heimild til að viðhalda ótímabundið gildandi banni við fjárfestingu erlendra aðila í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. Jafnframt er stjórnvöldum samkvæmt samningnum heimilt að krefjast þess að fyrirtæki losi sig við fjárfestingu í fiskveiðum eða fiskvinnslu ef þau komast að öllu leyti eða að hluta til í eigu erlendra aðila. Þá er Íslandi veittur frestur til 1. janúar 1996 til að laga gildandi reglur um fjárfestingu erlendra aðila í öðrum atvinnugreinum að ákvæðum samningsins.
     Um breytingar á einstökum ákvæðum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri vísast til athugasemda við einstakar greinar frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Lagt er til að gagnkvæmnisskilyrðið í niðurlagi 3. gr. laganna, „ . . . enda njóti íslenskir aðilar ekki lakari réttar til fjárfestingar í heimaríki hlutaðeigandi aðila“, verði fellt brott. Ólíklegt verður að telja að fjárfesting erlends aðila á Íslandi verði nokkru sinni svo mikið hagsmunamál í heimaríki hans að stjórnvöld þar breyti eigin reglum um fjárfestingu erlendra aðila til að veita Íslendingum sama rétt þar í landi og þegnar viðkomandi ríkis njóta á Íslandi. Af þeim sökum leiðir gagnkvæmnisskilyrði af þessu tagi ekki til annars en að útiloka erlenda aðila frá ríkjum þar sem Íslendingar njóta lakari réttar en viðkomandi aðilar hér á landi frá því að fjárfesta í atvinnurekstri hér á landi. Vandséð er að slíkt þjóni hagsmunum íslensks atvinnulífs sem lengstum hefur átt við að glíma skort á áhættufjármagni.

Um 2. gr.


    Í 4. gr. laganna koma fram takmarkanir sem gilda um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Þær eru nú þessar: Bann við fjárfestingu í félögum sem stunda fiskveiðar, frumvinnslu sjávarafurða, orkuvinnslu og orkudreifingu, 49% hámark á eignarhlut erlendra aðila í félagi sem stundar flugrekstur, 25% hámark á eignarhlut erlendra aðila í hlutafélagsbanka, bann við fjárfestingu erlends ríkis eða fyrirtækis í eigu erlends ríkis, 200 milljóna króna hámark á árlegri fjárfestingu eins erlends aðila eða fjárhagslega tengdra erlendra aðila og 25% hámark á heildarfjárfestingu erlendra aðila af áætlaðri fjárfestingu í tilteknum atvinnugreinum.
     Í 1. og 2. tölul. er lagt til að áfram gildi algert bann við fjárfestingu erlendra aðila í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. Orðalag er óbreytt frá gildandi lagaákvæðum. Þó er ekki lengur vísað til númers laga um rétt til fiskveiða í efnahagslögsögu Íslands, nr. 13/1992, heldur einungis heitis þeirra. Lagt er til að tveir nýir málsliðir bætist bæði við 1. og 2. tölul. Er það í samræmi við ákvæði í XII. viðauka við EES-samninginn. Í þessum nýju málsliðum er kveðið á um að viðskiptaráðherra geti kveðið upp úrskurð um að lögaðili, sem að hluta til eða öllu leyti hefur verið keyptur af erlendum aðila, skuli losa sig við fjárfestingu á sviði fiskveiða eða fiskvinnslu. Jafnframt er kveðið á um að úrskurðurinn sé aðfararhæfur. Þar með er stjórnvöldum gert auðveldara að framfylgja fjárfestingarbanninu en samkvæmt gildandi lagaákvæðum. Slíkur úrskurður yrði kveðinn upp ef viðkomandi aðili færi ekki að áskorun um að losa sig við óheimilan hlut í fiskveiðum eða vinnslu sjávarafurða.
     Í 3. tölul. koma fram sömu hömlur á möguleikum erlendra aðila til að eiga virkjunarréttindi vatnsfalla og jarðhita og hlut í fyrirtækjum á sviði orkuvinnslu og orkudreifingu og í núgildandi lagaákvæðum. Samkvæmt ákvæðum í XII. viðauka við EES-samninginn gildir engin undanþága fyrir Ísland um fjárfestingu á þessum sviðum. Því er lagt til að nýr málsliður bætist við þennan tölulið. Í honum er kveðið á um að frá og með 1. janúar 1996 njóti ríkisborgarar og lögaðilar frá hinum EES-ríkjunum sama réttar til fjárfestingar á þessu sviði og íslenskir ríkisborgarar og lögaðilar.
     Í 4. tölul. kemur fram sama takmörkun á eignarhlut erlendra aðila í innlendum viðskiptabönkum og í núgildandi lagaákvæði. Samkvæmt ákvæðum í XII. viðauka við EES-samninginn gildir engin undanþága fyrir Ísland um fjárfestingu á þessu sviði. Því er lagt til að ákvæði þessa töluliðar falli úr gildi 1. janúar 1996. Það leiðir til þess að ríkisborgarar og lögaðilar frá ríkjum utan EES munu í framtíðinni njóta sama réttar til fjárfestingar á þessu sviði og aðilar í EES-ríkjum. Það er gert vegna þess að engin sérstök rök mæla með því að sérreglur gildi á þessu sviði fyrir aðila í EES-ríkjum. Þá er lagt til að fellt verði brott núgildandi ákvæði um að frá og með 1. janúar 1992 geti erlendir hlutafélagsbankar opnað útibú hér á landi enda ákvæðið óþarft eftir að lögum um viðskiptabanka og lögum um Seðlabanka Íslands var breytt í þá veru á 115. löggjafarþingi 1991–92.
     Í 5. tölul. kemur fram svipað bann við fjárfestingum erlends stjórnvalds hér á landi og í núgildandi lagaákvæði. Þó er lagt til að reglur hér á landi verði samræmdar reglum í flestum öðrum iðnríkjum þannig að ákvæðið taki aðeins til fjárfestingar erlends stjórnvalds en ekki einnig fjárfestingar fyrirtækis í eigu erlends stjórnvalds. Einnig er lagt til að ákvæðið verði víðtækara en nú er og nái ekki aðeins til fjárfestingar erlends ríkis heldur einnig til fjárfestingar erlends sveitarfélags eða annars erlends stjórnvalds.
     Síðasti töluliður 1. mgr. er nánast óbreyttur frá gildandi lagaákvæði. Lagt er til að orðalagi verði breytt þannig að ekki verði vísað til númers laganna um eignarrétt og afnotarétt fasteigna heldur einungis heitis þeirra.
     Í þeirri breytingu, sem hér er lögð til á 4. gr. laganna um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, felst að fellt verður brott skilyrði 7. tölul. núgildandi 4. gr. laganna um leyfisveitingu ráðherra fari erlend fjárfesting fram úr 200 milljóna króna fjárhæðarmarki eða sé umfram 25% af heildarfjárfestingu í tilgreindum atvinnugreinum. Í ljósi reynslunnar verður ekki séð að ástæða sé að lögbinda ákvæði af þessu tagi. Fjárfesting erlendra aðila hér á landi hefur yfirleitt verið langt undir þessum mörkum. Þá gegna almennt öryggisákvæði og ákvæði samkeppnislaga svipuðu hlutverki og ákvæði af þessu tagi er ætlað að gegna. Jafnframt fellur úr gildi takmörkun í 4. tölul. núgildandi 4. gr. um að samanlagður eignarhluti erlendra aðila í íslensku atvinnufyrirtæki, sem stundar flugrekstur hér á landi, megi á hverjum tíma ekki vera meiri en 49%.

Um 3. gr.


    Hér er lagt til að núgildandi 8. tölul. 4. gr. laganna verði gerður að sérstakri grein enda er í honum ekki fjallað um takmarkanir á fjárfestingu heldur hvernig með skuli farið þegar erlendur aðili vill reka atvinnustarfsemi hér á landi í eigin nafni.
     Í samræmi við ákvæði EES-samningsins um frelsi til að stunda starfsemi hvar sem er innan EES er tekið fram að ríkisborgarar í aðildarríkjum á svæðinu og lögaðilar, sem heimili eiga þar, séu undanþegnir ákvæðum greinarinnar.

Um 4. gr.


    Hér er lagt til að tilvísanir til ákveðinnar deildar Seðlabankans, þ.e. gjaldeyriseftirlitsins, verði felldar brott og eftir standi tilvísanir til bankans. Eftir því sem gjaldeyrisreglur eru rýmkaðar fækkar hefðbundnum störfum þessarar deildar. Víða erlendis hefur frjálsræðisþróun í gjaldeyrismálum leitt til þess að hliðstæðar deildar hafa verið lagðar niður eða sameinaðar öðrum. Svo kann einnig að fara hér á landi og því er lagt til að ekki verði vísað til deildarinnar í lögum.

Um 5. gr.


    Lagt er til að síðasti málsliður núgildandi 8. gr. laganna verði felldur brott og í staðinn komi tveir nýir málsliðir. Í þeim fyrri eru ríkisborgarar í ríkjum innan EES undanþegnir búsetuskilyrði greinarinnar. Er það í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Í þeim síðari er viðskiptaráðherra heimilað að undanþiggja ríkisborga í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins búsetuskilyrðinu. Er það í samræmi við núgildandi lagaákvæði.

Um 6. gr.


    Hér er lagt til að nokkrar breytingar verði gerðar á núgildandi 10. gr. laganna. Í fyrsta lagi er lagt til að öryggisákvæðinu verði breytt þannig að frumkvæði að beitingu þess verði í höndum viðskiptaráðherra en ekki nefndar um erlenda fjárfestingu eins og nú gildir. Jafnframt er lagt til að orðalagi öryggisákvæðisins verði breytt á þann veg að felld verði brott heimild til að stöðva tiltekna erlenda fjárfestingu ef talið er að hún skerði verulega samkeppni fyrirtækja í viðkomandi atvinnugrein. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til samkeppnislaga. Í því er að finna almennar lagaheimildir um hvernig skuli bregðast við skertri samkeppni vegna yfirtöku eða samruna fyrirtækja hvort sem um er að ræða innlenda eða erlenda aðila. Orðalag öryggisákvæðisins tekur mið af orðalagi í 33. gr. EES-samningsins og orðalagi í samþykkt OECD um afnám hafta á fjármagnshreyfingum.
     Í 2. mgr. er kveðið á um nefnd um erlenda fjárfestingu. Samkvæmt núgildandi ákvæðum 1. mgr. 10. gr. laganna skal sérstök þingkjörin fimm manna nefnd vera viðskiptaráðherra til ráðuneytis um leyfisveitingar samkvæmt lögunum og hafa ákveðið frumkvæði við beitingu öryggisákvæðis greinarinnar. Í frumvarpi þessu er lagt til að reglur um fjárfestingu erlendra aðila verði gerðar frjálslegri en áður með því að fella niður fjárhæðarmörk og hlutfallslegt hámark á erlendri fjárfestingu án þess að til komi leyfi viðskiptaráðherra. Verði frumvarpið að lögum verður ekki um leyfisveitingar að ræða á sviði erlendrar fjárfestingar í atvinnurekstri. Því er sjálfgefið að hlutverki nefndarinnar á því sviði ljúki. Hins vegar er lagt til að nefnd um erlenda fjárfestingu verði viðskiptaráðherra til ráðuneytis um beitingu öryggisákvæðisins og að hún fylgist með því að ákvæði laganna um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri séu virt. Jafnframt er lagt til að sú breyting verði gerð á skipan nefndarinnar að hún verði ekki kosin á Alþingi heldur skipuð af viðskiptaráðherra. Fjórir nefndarmanna skulu tilnefndir af forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, sjávarútvegsráðherra og utanríkisráðherra en einn skipaður án tilnefningar.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 8. gr.


    Þar sem mikilvægt er að innlendir og erlendir aðilar geti með auðveldum hætti gert sér grein fyrir þeim lagaákvæðum sem gilda um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri er lagt til að lögin verði gefin út að nýju eftir að þeim hefur verið breytt eins og lagt er til í frumvarpi þessu.