Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 263 . mál.


352. Frumvarp til laga



um breytingu á vaxtalögum, nr. 25 27. mars 1987.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



1. gr.


    1. mgr. 10. gr. laganna orðast svo:
     Dráttarvextir af peningakröfum í íslenskum gjaldmiðli skulu ákveðnir af Seðlabanka Íslands sem ársvextir með þeim hætti að hlutfallið milli dráttarvaxta, að viðbættri tölunni 100, og ávöxtunar nýrra almennra útlána skv. 2. mgr. þessarar greinar, að viðbættri tölunni 100, sé á bilinu 1,02 til 1,06.

2. gr.


    1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
     Dráttarvextir af löglegum peningakröfum í erlendum gjaldmiðli skulu ákveðnir af Seðlabanka Íslands sem ársvextir með þeim hætti að hlutfallið milli dráttarvaxta, að viðbættri tölunni 100, og meðalvaxta viðkomandi gjaldmiðils á innlendum gjaldeyrisreikningum í viðskiptabönkum og sparisjóðum, að viðbættri tölunni 100, sé á bilinu 1,02 til 1,06.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarpið gefur færi á að ákveða dráttarvexti lægri en unnt er samkvæmt gildandi lögum. Hlutverk dráttarvaxta er m.a. það að stuðla að því að lánþegar standi skil á endurgreiðslum á réttum tíma. Líklegt þykir að dráttarvextir geti gegnt umræddu hlutverki þótt þeir væru lægri en nú, enda eru útlánsvextir, sem mynda grundvöll dráttarvaxta, mun lægri nú en þeir voru þegar vaxtalög voru sett.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í 10. gr. laga nr. 25/1987, vaxtalaga, er kveðið á um útreikning og birtingu Seðlabanka Íslands á dráttarvöxtum af peningakröfum í íslenskum gjaldmiðli. Þar er tekið fram að dráttarvextir af peningakröfum í íslenskum gjaldmiðli skuli vera á bilinu 5–10% umfram ávöxtun nýrra almennra útlána viðskiptabanka og sparisjóða, en það hugtak var nánar skilgreint í athugasemdum með frumvarpi til vaxtalaga. Í þessu frumvarpi er lagt til að hámarkið verði 6% í stað 10% og að lágmarkið verði 2% í stað 5%.
     Meðfylgjandi yfirlit sýnir meðaltöl ávöxtunar nýrra almennra útlána, dráttarvaxta og þess hlutfalls sem lýst er í 10. gr. vaxtalaga. Þar má sjá að Seðlabankinn hefur haldið dráttarvöxtum eins lágum og lögin leyfa nú um nokkurt skeið. Nú í nóvember er meðalávöxtun nýrra almennra útlána 12,6%, umrætt álag 5,24% og dráttarvextir 18,5%.

Nokkur meðaltöl frá gildistöku vaxtalaga.


(Vextir í prósentum á ári.)



Ávöxtun nýrra


almennra útlána

Dráttarvextir

Hlutfall 1)


[a]

[b]

[c]



1987 2)
         
30,56
40,05 1,0726
1988          
35,41
43,90 1,0625
1989          
28,08
35,90 1,0613
1990          
14,31
22,25 1,0694
1991          
18,29
25,00 1,0567
1992 3)
         
13,73
19,71 1,0525

1) Hlutfallið (b+100)/(a+100).
2) Meðaltöl árið 1987 eru hér miðuð við mánuðina maí til desember, þ.e. frá gildistöku vaxtalaga.
3) Dráttarvextir í desember 1992 eru hér áætlaðir hinir sömu og í nóvember.

Um 2. gr.


    Í 11. gr. er fjallað um ákvörðun dráttarvaxta af peningakröfum í erlendum gjaldmiðli á hliðstæðan hátt og gert er í 10. gr. varðandi kröfur í íslenskum gjaldmiðli. Til að áfram verði samræmi á þessu tvennu er hér lagt til að hliðstæð breyting verði á 11. gr. eins og 10. gr.