Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 190 . mál.


367. Nefndarálit



um till. til þál. um breyt. á þál. um vegáætlun fyrir árið 1992.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur athugað tillöguna og fengið á fund sinn Helga Hallgrímsson vegamálastjóra, Jón Birgi Jónsson aðstoðarvegamálastjóra og Jón Rögnvaldsson, forstöðumann tæknisviðs Vegagerðar ríkisins. Nefndin er samþykk þeirri breytingu sem tillagan greinir, en ítrekar það sem fram kemur í greinargerð hennar að þær fjárhæðir, sem þar koma fram, verða teknar inn í skiptitölur milli kjördæma við reglulega endurskoðun vegáætlunar á þessu þingi. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt. Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna undirrita nefndarálitið með fyrirvara og vísa til fylgiskjals með álitinu.

Alþingi, 26. nóv. 1992.



Pálmi Jónsson,

Stefán Guðmundsson,

Árni Johnsen.


form., frsm.

með fyrirvara.



Jóhann Ársælsson,

Sigbjörn Gunnarsson.

Guðni Ágústsson,


með fyrirvara.

með fyrirvara.



Guðjón Guðmundsson.

Kristín Einarsdóttir,

Árni M. Mathiesen.


með fyrirvara.




Fylgiskjal.


BÓKUN FULLTRÚA STJÓRNARANDSTÖÐUFLOKKANNA


    Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna, sem undirrita nefndarálitið með fyrirvara, óska eftir að því fylgi eftirfarandi bókun:
    Sérstaklega viljum við mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið við undirbúning þess átaks í vegamálum sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir. Með því að ekkert samráð var haft við nefndina eða þingmenn einstakra kjördæma hefur þinghefð og vinnuregla um langt skeið verið brotin. Hér eru m.a. á ferðinni breytingar á framkvæmdaröð sem áður hafði verið gert ráð fyrir í vegáætlun.

Jóhann Ársælsson

.

Stefán Guðmundsson

.

Guðni Ágústsson.


Kristín Einarsdóttir.