Ferill 272. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 272 . mál.


368. Tillaga til þingsályktunar



um afnám tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum.

Flm.: Guðmundur H. Garðarsson, Sólveig Pétursdóttir, Þuríður Pálsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sem leiði til afnáms tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum og jafnræðis í skattalegri meðferð vaxtahluta lífeyrisins.

Greinargerð.


     Á 113. löggjafarþingi var samþykkt tillaga til þingsályktunar svipaðs efnis og hér er fram lögð. Af hálfu fjármálaráðherra var ekki orðið við þeim tilmælum sem þingsályktunin felur í sér. Á 115. löggjafarþingi var samhljóða þingsályktunartillaga lögð fram af Hrafnkatli E. Jónssyni og Guðmundi Hallvarðssyni. Ekki var mælt með tillögunni og fékk hún þar af leiðandi ekki viðeigandi afgreiðslu.
    Þar sem hér er um að ræða mikið mannréttinda- og réttlætismál gagnvart þúsundum aldraðra, sem með ráðdeild og sparsemi hafa á starfsævinni lagt til hliðar mikið fé af takmörkuðum tekjum til að mæta ellinni, er þetta mál endurflutt í trausti þess að eftirlaunafólk fái að njóta þessa sparnaðar, lífeyrisgreiðslnanna, með sama hætti og aðrir sparifjáreigendur.
    Í upprunalegri greinargerð þessa máls á 113. löggjafarþingi segir svo:
    „Afar brýnt er að afnema það ranglæti sem viðgengst í skattalegri meðferð iðgjalda til lífeyrissjóðanna ásamt því hvernig lífeyrisgreiðslur frá sjóðunum valda lækkun greiðslu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun. Þannig má í raun segja að iðgjald sjóðfélaganna til lífeyrissjóðanna sé skattlagt í þrígang, fyrst iðgjaldið, síðan greiðslur frá sjóðunum og hvernig þær valda skerðingu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun sem auðvitað er líka skattlagning.
    Í flestum löndum Evrópubandalagsins eru iðgjöld, bæði launþega og atvinnurekenda, skattfrjáls, en lífeyrir frá lífeyrissjóðum í þessum löndum er aftur á móti skattskyldur eins og hér á landi. Nú kann einhver að halda því fram að 4% iðgjald sjóðfélagans sé innifalið í persónuafslættinum í staðgreiðslunni. Um það má deila. En nauðsynlegt er að taka af öll tvímæli þannig að launþeginn sjái greinilega að iðgjald hans til lífeyrissjóðs sé ekki skattstofn.
    Margoft hefur komið fram hversu mikið ranglæti felst í því að þeim einstaklingum, sem innt hafa af hendi greiðslur til lífeyrissjóðanna, skuli refsað þegar að töku ellilífeyris kemur með því að greiðslur frá sjóðunum valdi lækkun á greiðslum Tryggingastofnunar. Í kjarasamningunum í febrúar 1990 var samið um að greiðslur frá lífeyrissjóðum valdi minni lækkun á tekjutryggingu en aðrar tekjur. Frá því þetta var ákveðið hefur aftur sigið á ógæfuhliðina svo að ekki verður lengur við unað.
    Í eftirfarandi greinargerð Jónasar Bjarnasonar verkfræðings um ofangreint efni, sem hann tók saman fyrir Landssamband lífeyrissjóða, má sjá að jaðarskattur einstaklings, sem býr einn, getur orðið 76% á tilteknu tekjubili, þ.e. af hverjum 1.000 kr. sem ellilífeyrir hans frá lífeyrissjóði hækkar um heldur hann einungis eftir 239 kr.
    Ofangreint ástand þessara mála er Alþingi og ríkisstjórn til hreinnar skammar. Því er mikilvægt að þessi þingsályktunartillaga verði afgreidd þegar á þessu þingi þannig að fjármálaráðherra fari ekki í grafgötur um vilja Alþingis og leggi þegar fram lagafrumvörp til lausnar málinu.“
    Í greinargerð með tillögu til þingsályktunar, sem lögð var fram á 115. löggjafarþingi, eru framangreind sjónarmið áréttuð með svohljóðandi hætti:
    „Þegar staðgreiðslu skatta var komið á var um leið tekin upp tvísköttun lífeyrisgreiðslna. Þær höfðu áður verið undanþegnar tekjuskatti. Eftir breytinguna var tekjuskattur lagður á þær tekjur sem launþegi greiddi sem iðgjald í lífeyissjóð (4%) og síðan er lífeyririnn skattlagður á nýjan leik þegar hann er greiddur út. Eins kom upp skattaleg mismunun hvað varðar ávöxtun launþegahluta lífeyrisiðgjaldsins þar sem tekinn er tekjuskattur af lífeyrisgreiðslunum á sama tíma og ávöxtun annars sparifjár er skattfrjáls. Hér er um óviðunandi ástand að ræða. Tvísköttun tekna af þessu tagi er óþolandi og sömuleiðis mismunun í skattlagningu fjármagnstekna með þeim hætti sem hér er bent á.
    Það skal áréttað að hér er eingöngu farið fram á breytta skattalega meðferð iðgjaldshluta launþega í lífeyrissjóði.“

    Um samhljóða fylgiskjal vísast til þskj. 651 bls. 3482–3490 í A-deild Alþt. 1990–91.