Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 275 . mál.


375. Tillaga til þingsályktunar



um staðfestingu samninga við Efnahagsbandalag Evrópu um fiskveiðimál og lífríki hafs­ins.

(Lögð fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd:
     1 .      samning í formi erindaskipta milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um fiskveiðimál sem gerður var í Óportó 2. maí 1992;
     2 .      samning um fiskveiðimál og lífríki hafsins milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu sem gerður var í Brussel 27. nóvember 1992.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili staðfestingu samninga þeirra milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um fiskveiðimál og lífríki hafsins sem gerðir voru í Óportó 2. maí 1992 og í Brussel 27. nóvember 1992. Samningarnir eru birtir sem fylgiskjöl með þingsályktunartillögu þessari. Einnig eru hér birtar sem fylgiskjal niður­stöður fiskimálaviðræðna milli Íslands og Efnahagsbandalagsins, sem lauk í Brussel 27. nóvember 1992, um tilhögun veiða á árinu 1993.
    Samkomulagið við EB er skv. framansögðu þrískipt: Í fyrsta lagi erindaskiptin frá 2. maí sem eru ákvarðandi um öll atriði sem þar eru tilgreind, í öðru lagi rammasamningurinn þar sem endurtekin eru sum atriðin úr erindaskiptunum en öðrum þáttum bætt við eins og rakið verður hér á eftir og svo í þriðja lagi árlega samkomulagið þar sem einnig eru endurteknir þættir úr er­indaskiptunum en einkum bætt við nánari ákvæðum um framkvæmd á skiptum umræddra veiðiheimilda loðnu og karfa og eftirlit með veiðunum.

     3.      Um samning í formi erindaskipta, dags. 2. maí 1992.
    Samningaviðræður Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um samstarfssamning um sjávar­útvegsmál hófust eftir lausn landhelgisdeilnanna við Bretland og Þýskaland og gildistöku bók­unar nr. 6 við fríverslunarsamning Íslands og EB árið 1976. Þær stóðu yfir með hléum fram til 1981. Þá lágu fyrir drög að rammasamningi sem voru viðunandi að dómi beggja samninga­nefnda en upp úr samningum slitnaði vegna ágreinings um skiptingarhlutföll sameiginlegra fiskistofna í lögsögu Íslands og Grænlands sem þá var innan EB.
    Þríhliða viðræður um loðnustofninn milli Íslands, Noregs og EB fóru fram árin 1982 – 1983 en samningar tókust ekki heldur. Grænland fór út úr bandalaginu 1985 en umræður um gerð sjávarútvegssamnings Íslands og EB héldu áfram öðru hverju allt til ársins 1990.
    Þegar samningaviðræður um Evrópska efnahagssvæðið voru komnar ve1 á veg á árinu 1991 var ákveðið að hefja að nýju viðræður um rammasamning um sjávarútvegsmál og umhverfi hafsins. Vegna annarra fundarhalda í tengslum við EES-samningana vannst samningamönnum bandalagsins ekki tími til að halda formlega fundi um rammasamninginn þar sem fulltrúar allra aðildarríkja EB væru boðaðir, eins og tilskilið er um gerð slíkra samninga í reglum bandalagsins. Sá kostur var því valinn að framkvæmdastjórn EB og fulltrúar Íslands skyldu freista þess að ná samkomulagi sín á milli um helstu atriði sem skyldu vera í rammasamningi og í árlegum framkvæmdasamningi á grundvelli rammasamningsins. Útlínur þess samnings voru lagðar á ráðherrafundum EB og EFTA í október 1991 og um ýmis nánari atriði var síðan samið við bandalagið á næstu mánuðum. Endanleg gerð lá fyrir þegar samningaviðræðum lauk 14. febrúar 1992 og var hún árituð af samningamönnum 14. apríl 1992.
    Í tengslum við ráðherrafund EF'TA og EB í Óportó 2. maí 1992 þar sem EES-samningurinn var undirritaður var framangreindur samningur síðan einnig undirritaður og er hann ákvarðandi um öll þau atriði sem þar eru tilgreind þegar gengið er formlega frá rammasamningi og árlegum framkvæmdasamningum.
    Í samningnum frá 2. maí eru helstu efnisatriði eftirfarandi:
    Gagnkvæm skipti á fiskveiðiheimildum. Bandalagið fær veiðiheimildir á tilgreindum svæðum í efnahagslögsögu Íslands fyrir 3.000 tonna karfaígildi gegn veiðiheimildum fyrir Ísland á 30.000 tonnum af loðnu sem bandalagið hefur keypt af Grænlandi með samningi þessara aðila um fiskveiðimál.
    Á árinu 1993 skulu aflaheimildir bandalagsins gilda fyrir beinar karfaveiðar en allur aukaafli er innifalinn í tölunni 3.000 tonn af karfaígildum og enginn þorskur verður leyfður í aukaafla. Eftir 1993 geta aðilar komið sér saman um að breyta samsetningu tegunda í þessum 3.000 karfaígildum í ljósi frekari rannsókna á langhalastofnunum við Ísland. Eru úthlutuð svæði m.a. ákvörðuð með þetta í huga.
    Í samningnum frá 2. maí 1992 er ennfremur ákveðið að frekari samningaviðræður um ramma­samninginn skuli byggðar á framangreindum drögum að slíkum samningi frá 1981 og að kveðið skuli á um skilmála fyrir nýtingu fiskveiðiheimildanna. Meða1 skilmálanna skyldi vera að út yrði gefinn takmarkaður fjöldi veiðileyfa til togara, annarra en verksmiðjutogara, á tímabilinu júlí–desember, koma og brottför úr fiskveiðilögsögu tilkynnt og að allir sömu skilmálar varðandi fiskverndarmál gildi og um innlend fiskiskip, m.a. að krefjast megi að skip skuli hafa um borð eftirlitsmann á eigin kostnað þegar það er innan fiskveiðilögsögunnar.

4. Samningurinn um fiskveiðimál og lífríki hafsins (rammasamningurinn), sem gerður var í Brussel 27. nóvember 1992:
    Í samskiptum Evrópubandalagsins við ríki utan þess hefur það tíðkast um langt árabil að gera rammasamninga um einstaka málaflokka til að skapa bandalaginu lagalegan grundvöll fyrir samstarfið og fylla síðan inn efnisatriðin með reglulegu, t.d. árlegu, samráði. Þessi tilhögun er m.a. gerð af hagkvæmnisástæðum og nær til ýmissa sviða. Þar má m.a. nefna rammasamninga um vísinda- og tæknisamstarf og hefur Ísland þegar gert slíkan samning við bandalagið. Rammasamningar á sviði sjávarútvegs eru ein tegund þessa og hefur Evrópubandalagið gert slíka samninga við fjölda ríkja. Textar þessara rammasamninga eru að mestu í stöðluðu formi, þótt einstökum atriðum sé svo bætt við eða þeim breytt eitthvað. Svo er einnig um þann rammasamning sem nú liggur fyrir milli Íslands og EB.
    Samningurinn er að mestu í stöðluðu formi en þó eru nokkur frávik og ákvæðin um lífríki hafsins eru sérstök fyrir þennan samning.
    Þegar gengið var frá erindaskiptunum 2. maí í Óportó var samkomulag um að drög aðila að rammasamningi frá 1981 skyldu notuð sem grunnur að nýjum rammasamningi. Þetta var síðan gert en nokkrum atriðum þurfti þó að breyta vegna þess að síðar hafði verið gengið frá hafréttarsáttmálanum og Græn1and hafði farið úr EB, auk þess sem Ísland vildi leggja meiri áherslu á samstarf um lífríki hafsins.
    Rammasamningur Íslands og EB á fyrst og fremst við um sameiginlega stofna og þar á meðal hagkvæma nýtingu þeirra með skiptum á veiðiheimildum. Svo dæmi sé tekið er kolmunninn flökkustofn sem fer um lögsögu aðila á mismunandi tímum árs. Til þess að unnt sé að stunda hagkvæmar veiðar á sérbúnum skipum er æskilegt að geta fylgt stofninum eftir úr einni lögsögu í aðra og gæti þá samstarfið t.d. falist í því að veita hvor öðrum veiðiheimildir úr sama stofni þann tíma sem hann er í lögsögu hlutaðeigandi aðila eða annar aðilinn stundi kolmunnaveiðar en hinn fái veiðiheimildir úr öðrum stofnum.
    Sé skipst á veiðiheimildum úr stofnum sem ekki eru sameiginlegir, eins og gert er í erindaskiptunum frá 2. maí 1992, gilda síðan ákvæði rammasamningsins eins og við á, m.a. um tilhögun við úthlutun leyfa, skyldu til að virða verndarráðstafanir o.s.frv.
    Hér á eftir verður rakið efni upphafsorða og einstakra greina rammasamningsins:

Um upphafsorð.


    Vikið er að nánu sambandi samningsaðila, áhuga beggja á að stuðla að hagkvæmri nýtingu auðæfa hafsins, verndun lífríkis hafsins, vísað í hafréttarsáttmálann sem báðir aðilar hafa undirritað, vísað í 200 mílna lögsögu aðila, vísað í að hluti sjávarauðlinda aðila séu sameiginlegir eða skyldir stofnar sem báðir hafi áhuga á að nýta og varðveita og vísað m.a. til samvinnu innan Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar.
    Um það sem að framan er rakið er rétt að víkja hér að einu atriði, þ.e. sameiginlegum eða skyldum stofnum. Fyrir liggur að kolmunnastofninn er sameiginlegur Íslandi, EB og fleiri ríkjum. Aðrir stofnar eru ekki sannanlega sameiginlegir eins og mál standa en með hliðsjón af óvissu um dreifingu ýmissa lítt þekktra fiskistofna þótti rétt að hafa tilvísunina í fleirtölu.
    Í upphafsorðunum er síðan vísað til samnings aðila í formi erindaskipta sem undirritaður var í Óportó 2. maí 1992, viðurkennt er mikilvægi fiskveiða fyrir Ísland (en sambærilegt orðalag er ekki að finna í öðrum rammasamningum EB) og loks sagt að aðilar vilji setja almenna skilmála varðandi þau fiskveiðimál sem eru gagnkvæm hagsmunamál þeirra.

Um 1. gr.


    Fjallar um þá stofna sem eru sameiginlegir Íslandi, EB og fleirum. Eins og áður sagði er hér fyrst og fremst átt við kolmunnastofninn en fleiri stofnar vannýttra tegunda kunna að falla hér undir þegar frekari rannsóknir hafa farið fram. Samvinna ska1 höfð um þessa stofna, verndun og nýtingu þeirra, ákvörðun hámarksafla og úthlutun veiðiheimilda.

Um 2. gr.


    Fjallar um vísindarannsóknir, einkum á sameiginlegum stofnum.

  Um 3. gr.


    Kveður á um samvinnu varðandi lífríki, hafsins þar sem við á.

Um 4. gr.


    Segir að aðilar skuli árlega hafa samráð um úthlutanir á veiðiheimildum og leyfisveitingar. Samkvæmt upphafsorðum samningsins og efni 1.-3. gr. á þessi grein við um sameiginlega stofna en því til viðbótar koma síðan undir þessa grein og aðrar viðeigandi greinar samningsins þau 3.000 tonn af karfaígildum og 30 þúsund tonn af loðnu sem samið var um í erindaskiptunum og falla utan hugtaksins sameiginlegir stofnar. M.a. kemur aukning langhala í karfaígildakvótanum til umræðu í þessum árlegu viðræðum.

Um 5. gr.


    Fjallar almennt um tilhögun leyfisveitinga.

Um 6. gr.


    Fjallar um verndunaraðgerðir og eftirlit með að reglum um þær sé fylgt.

Um 7. gr.


    Kveður á um samráð um góða framkvæmd samningsins og skýrslugjöf um afla.

Um 8. gr.


    Segir að ekkert í þessum samningi hafi áhrif á afstöðu aðila til málefna sem falla undir hafréttarsáttmálann. Þar gæti m.a. verið um að ræða víðáttu lögsögu og önnur skyld atriði.

Um 9. gr.


    Fjallar um aðra samninga og segir í reynd að þessi rammasamningur hafi engin áhrif á tvíhliða samning Íslands og Belgíu um fiskveiðar.

Um 10. gr.


    Segir á hvaða landsvæðum samningurinn gildi.

Um 11. gr.


    Fjallar um gildistökudag samningsins.

Um 12. gr.


    Fjallar í 1. tölul. um gildistíma rammasamningsins sem slíks og í 2. tölul. um gerð annars svipaðs samnings í hans stað ef þessi samningur er ekki framlengdur. Væri sá samningur þá til þess að gefa bandalaginu nauðsynlegan lagalegan ramma til að framkvæma ákvæði erindaskiptanna frá 2. maí 1992 og er að sjálfsögðu háður því að erindaskiptin sjálf verði þá enn í gildi þegar þar að kemur.

Fylgiskjöl:
Fylgiskjal l: Samningur í formi erindaskipta milli Efnahagsbandalags Evrópu og lýðveldisins Íslands um fiskveiðimál, dags. 2. maí 1992.
Fylgiskjal 2: Samningur um fiskveiðimál og lífríki hafsins, eins og hann var endanlega frágenginn af hálfu samninganefndanna 27. nóvember1992.
Fylgiskjal 3: Niðurstöður viðræðna milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um tilhögun veiða og eftirlit á árinu 1993, dags. 27. nóvember 1992.