Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 293 . mál.


425. Frumvarp til laga



um breytingu á vegalögum, nr. 6/1977, með síðari breytingum.

Flm.: Finnur Ingólfsson, Stefán Guðmundsson, Ólafur Þ. Þórðarson,


Páll Pétursson, Valgerður Sverrisdóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.



1. gr.


    40. gr. laganna orðast svo:
     Vegagerð ríkisins skal aðstoða nýbýlastjórn við lagningu nýbýlavega enda sé kostnaður greiddur af sérstakri fjárveitingu í fjárlögum samkvæmt vegáætlun eða á annan hátt.
     Vegagerð ríkisins skal sjá um gerð og viðhald reiðvega samkvæmt sérstakri reiðvegaáætlun sem samgönguráðherra lætur gera í samráði við samtök hestamanna og sveitarfélaga til fjögurra ára í senn. Kostnaður við gerð reiðvega skal greiddur skv. 2. gr. laga um fjáröflun til vegagerðar, nr. 3/1987.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Frumvarp þetta er flutt samhliða frumvarpi um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerðar. Á Alþingi 7. febrúar 1991 var samþykkt þingsályktun um reiðvegaáætlun sem hljóðar svo:
     „Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa nefnd með þátttöku samtaka hestamanna og sveitarfélaga til þess að kanna ástand reiðvega og gera reiðvegaáætlun.“
     Hestamennska nýtur sívaxandi vinsælda. Umferð ríðandi manna er víða orðin mjög mikil, einkum í nágrenni þéttbýlisstaða. Sambýli umferðar ríðandi manna og aukinnar umferðar bifreiða getur verið örðugt. Nauðsynlegt er að taka meira tillit til hestamennsku í umferðinni en gert hefur verið. Það hlýtur nefnd sú að gera er samgönguráðherra mun skipa á grundvelli áðurnefndrar þingsályktunar. Nefndin hlýtur einnig að taka til athugunar hvernig bæta megi aðstöðu hestamanna við þjóðvegi og haga þannig að öryggi þeirra verði sem mest. Því miður hefur þess ekki nægjanlega verið gætt þegar lagðir hafa verið nýir vegir að tillit sé tekið til öryggis hesta og hestamanna. Má í því sambandi minna á að á mörgum fjölförnum vegum þar sem umferð er mikil og reiðvegir liggja við hlið veganna hafa ekki verið gerð göng undir vegina fyrir hesta og hestamenn heldur hefur umferð þeirra legið yfir veginn og skapað þannig mikla slysahættu. Öryggið þarf að sitja í fyrirrúmi en um leið verður að tryggja vernd þeirra svæða og leiða sem gildi hafa vegna náttúrufegurðar. Umferð ríðandi manna má aldrei spilla ræktuðu landi, túnum, görðum eða skógrækt. Því er mikilvægt þegar umferð á hestum er metin að höfð verði hliðsjón af hesthúsahverfum, skeiðvöllum, hrossabúum, hagagöngu, staðsetningu gisti- og ferðamannastaða, svo og veitinga- og útivistarstaða. Þar fyrir utan má ekki gleymast að fornar reiðleiðir eru hluti af sögu lands og þjóðar. Mikilvægt er því að þær verði friðlýstar og merktar, þannig yrði varðveittur ákveðinn þáttur í menningarsögu landsins. Þegar allt þetta er haft í huga er óhjákvæmilegt að gera sérstaka reiðvegaáætlun þar sem forgangsröðun framkvæmda kemur fram. Gerð reiðvega er yfirleitt ekki dýr en framkvæmd þarf að vera með skipulögðum hætti.
     Í maí 1982 var undirritað samkomulag milli Landssambands hestamannafélaga og Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega. Samkomulag þetta er fylgiskjal með frumvarpi þessu. Ágreiningur varð fljótlega um túlkun þessa samkomulags sem hefur leitt til þess að gerð og viðhald reiðvega hefur verið bitbein milli samtaka hestamanna, Vegagerðarinnar og sveitarfélaga.
    Með frumvarpinu er lagt til að við 40. gr. laga nr. 6/1977 bætist ný málsgrein um gerð reiðvega. Samkvæmt henni skal Vegagerð ríkisins sjá um gerð og viðhald reiðvega. Skulu framkvæmdir vera í samræmi við reiðvegaáætlun en hana skal samgönguráðherra láta gera til fjögurra ára í senn. Eðlilegt er að við gerð hennar sé haft samráð við samtök hestamanna og sveitarfélaga.
     Með frumvarpi þessu, sbr. og frumvarp um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerðar, nr. 3/1987, eru tekin af öll tvímæli um að Vegagerð ríkisins skuli annast gerð reiðvega, enda er hún best í stakk búin til að taka að sér slíka framkvæmd. Jafnframt er gert ráð fyrir að kostnaður við reiðvegagerð skuli greiddur af þeim tekjum sem ríkissjóður hefur af innflutningsgjaldi af bensíni, svokölluðu bensíngjaldi, sbr. 1. gr. laga nr. 3/1987.



Fylgiskjal.


Samkomulag milli Landssambands hestamannafélaga og


Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega.


(7. maí 1982.)



1. gr.


    Þegar stofnbrautir eða þjóðbrautir með bundnu slitlagi eru lagðar út frá þéttbýlissvæðum eða annars staðar þar sem búast má við mikilli umferð skal þess gætt að haga framkvæmdum á þann veg að umferð ríðandi manna megi verða sem greiðust, t.d. með gerð reiðvega á vegsvæði meðfram vegum ef þess er kostur, enda hafi komið um það tillaga frá samstarfsnefnd, sbr. 2. og 3. gr.

2. gr.


    Í hverju umdæmi skal starfa samstarfsnefnd skipuð fulltrúa Vegagerðar ríkisins og tveimur fulltrúum frá Landssambandi hestamannafélaga.

3. gr.


    Samstarfsnefndir skulu fylgjast með áætlun um gerð þjóðvega með bundnu slitlagi og semja álitsgerðir um lausn á umferðarmálum ríðandi manna sem lagðar skulu fyrir hönnunaraðila til athugunar og eftirbreytni með hæfilegum fyrirvara.
     Samstarfsnefnd skal jafnan eiga aðgang að upplýsingum hjá hönnunaraðila um reiðvegi sem áformað er að gera.
    Samstarfsnefndir skulu jafnframt, þar sem þörf krefur, gera tillögur um gerð reiðleiða meðfram stofnbrautum og þjóðbrautum sem þegar hafa verið byggðar.
     Þá skal samstarfsnefnd fylgjast með reiðleiðum sem gerðar verða samkvæmt framanskráðu og gera tillögur um viðhald þeirra eftir því sem þörf krefur.

4. gr.


    Ágreiningi, sem upp kann að koma innan samstarfsnefndar, er heimilt að vísa til vegamálastjóra eða fulltrúa hans og stjórnar Landssambands hestamannafélaga sem ber að fjalla sameiginlega um ágreiningsmál og leita lausnar á þeim.