Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 222 . mál.


431. Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og var umfjöllun hennar með svipuðu sniði og á 115. löggjafarþingi. Formaður og einn nefndarmanna fóru yfir allar umsóknir um ríkisborgararétt til að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi.
    Við afgreiðslu á þessu frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar, sem er væntanlega hið fyrra á þessu löggjafarþingi, hefur nefndin haft að leiðarljósi fyrrgreindar reglur á þskj. 910. Umsóknir, sem ekki hljóta afgreiðslu nú, bíða þar til síðara frumvarpið er afgreitt á vorþingi, en þá koma allar óafgreiddar umsóknir aftur til skoðunar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 9. des. 1992.



Sólveig Pétursdóttir,

Jón Helgason.

Ingi Björn Albertsson.


form., frsm.



Sigbjörn Gunnarsson.

Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Kristinn H. Gunnarsson.



Tómas Ingi Olrich.

Ey. Kon. Jónsson.

Ólafur Þ. Þórðarson.