Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 78 . mál.


481. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 53 16. maí 1978, um eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum, áburði og sáðvörum og verslun með þær vörur.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Við 2. gr. Efnismálsgreinin orðist svo:
                  Landbúnaðarráðherra ákveður með reglugerð, að höfðu samráði við sérfræðinga Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og ráðunauta Búnaðarfélags Íslands, hvaða upplýsingar skylt er að láta fylgja vörum sem lög þessi ná yfir. Enn fremur skal kveðið á um merkingar eða staðla yfir einstaka vöruflokka sem henti einstökum búfjártegundum.
    Á eftir 4. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
         
    
    (5. gr.)
                            Í stað orðsins „Áburðarverksmiðjan“ í 19. gr. laganna kemur: seljandi áburðar.
         
    
    (6. gr.)
                            Við 24. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                            Við setningu reglugerðar skv. 1. mgr. skal tekið tillit til raunverulegs kostnaðar af framkvæmd eftirlits með söluaðila og hverri vörutegund fyrir sig.
Við 5. gr. (er verði 7. gr.).
         
    
    Í stað orðsins „eftirlitsaðili“ í fyrri málsgrein komi: (í viðeigandi beygingarfalli) eftirlitsaðili.
         
    
    Síðari málsgrein orðist svo:
                            Í stað orðsins „eftirlitsdeildar“ í 1. málsl. 6. gr. laganna kemur: eftirlitsaðila, og í stað orðanna „eftirlitsdeild“ og „eftirlitsdeildinni“ í 10. gr. laganna kemur (í viðeigandi beygingarfalli): eftirlitsaðili.
Við 6. gr. (er verði 8. gr.). Greinin orðist svo:
                  Lög þessi öðlast þegar gildi.