Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 310 . mál.
486. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, sbr. lög nr. 86/1991.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 1. tölul. bráðabirgðaákvæðis laganna:
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, var gert ráð fyrir að frá og með 1. janúar 1991 yrði heilsugæslustarfi í Reykjavík og starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur þannig háttað að lög nr. 44/1955, heilsuverndarlög, sbr. lög nr. 28/1957, yrðu óþörf og féllu því úr gildi. Hins vegar vannst ekki tími til að ganga frá nauðsynlegum breytingum á heilbrigðisþjónustulögunum varðandi starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir árslok 1991 og var því með lögum nr. 86/1991 veittur eins árs frestur til viðbótar því sem upphaflega var ákveðið í lögunum. Nýlega hefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra látið semja frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu þar sem gerðar eru tillögur um hlutverk Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Í frumvarpinu er lagt til að heilsuverndarstarf færist til Heilsuverndarstöðvarinnar og að stofnuninni verði skipuð sérstök stjórn. Ljóst er þó að ekki er nægur tími til að afgreiða það frumvarp fyrir áramót og er því með þessu frumvarpi lagt til að bráðabirgðaákvæði laganna um heilbrigðisþjónustu verði breytt á þann veg að veittur verði eins árs frestur til viðbótar til að ganga frá lögum um framtíðarhlutverk Heilsuverndarstöðvarinnar.