Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 311 . mál.


498. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 55 11. maí 1978, um búnaðarfræðslu o.fl.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



I. KAFLI


Lög nr. 55/1978, um búnaðarfræðslu.


1. gr.


    Við 32. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 2. mgr., svohljóðandi:
    Skólanefnd og skólastjórar skólanna ákveða upphæð gjalda er nemendum er gert að greiða við innritun í námsáfanga, svo sem innritunargjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og nemendasjóðsgjöld. Upphæð gjalda er háð samþykki ráðherra.

II. KAFLI


Lög um Garðyrkjuskóla ríkisins, nr. 91 23. júní 1936.


2. gr.


    Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 2. mgr., svohljóðandi:
    Skólanefnd og skólastjóri ákveða upphæð gjalda er nemendum er gert að greiða við innritun í námsáfanga, svo sem innritunargjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og nemendasjóðsgjöld. Upphæð gjalda er háð samþykki landbúnaðarráðherra.

III. KAFLI


Lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna,


nr. 64 21. maí 1965, með síðari breytingum.


3. gr.


    Við V. kafla laganna bætist ný grein er verður 38. gr., svohljóðandi:
    Til að standa straum af kostnaði við vinnu- og verktæknirannsóknir og tilraunir með búvélar og prófanir á þeim er landbúnaðarráðherra heimilt að láta innheimta sérstakt gjald af öllum seldum búvélum og má gjaldið vera tiltekin krónutala á hverja þyngdareiningu, hlutfall af tollverði vélanna eða söluverði innan lands, þó að hámarki 2%. Gjald þetta er aðfararhæft. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um gjaldskyldu, innheimtu, gjalddaga og annað er lýtur að framkvæmd á innheimtu gjaldsins.

4. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta, sem samið er í landbúnaðarráðuneytinu, er lagt fram til að afla nauðsynlegra heimilda til handa búnaðarskólunum til að innheimta skráningargjöld af nemendum og jafnframt gjaldtöku af seldum búvélum til að standa undir kostnaði við vinnu- og verktæknirannsóknir og tilraunir og prófanir bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Tilgangur frumvarpsins er að styrkja fjárhagslega stöðu viðkomandi stofnana miðað við núverandi fjárframlög ríkissjóðs. Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að bætt verði nýrri málsgrein við 32. gr. laga nr. 55/1978, um búnaðarfræðslu. Eftir þeim lögum starfa Bændaskólarnir á Hvanneyri og á Hólum í Hjaltadal. Ekki er óeðlilegt að nemendur skólanna taki einhvern þátt í fjármögnun á beinum kostnaði vegna náms við skólana, en rekstur þeirra er kostnaðarsamur og fjárveitingar þröngar. Í 2. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir sambærilegri heimild fyrir Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi sem starfar eftir lögum nr. 91/1936. Í báðum tilvikum er gert ráð fyrir að upphæð skráningargjalda sé háð samþykki landbúnaðarráðherra.
    Í III. kafla frumvarpsins er lagt til að bætt verði nýrri grein við V. kafla laganna um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, nr. 64 21. maí 1965, en hann fjallar um Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Sérstök deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins hefur á hendi vinnu- og verktæknirannsóknir á búvélum, sbr. 6. tölul. 36. gr. laga 64/1965, með síðari breytingum. Gert er ráð fyrir að landbúnaðarráðherra fái heimild til að láta innheimta sérstakt gjald af öllum seldum búvélum sem ætlað er að standa undir kostnaði við prófanir, vinnu- og verktæknirannsóknir o.fl. Telja verður eðlilegt að söluaðilar búvéla standi að mestu straum af kostnaði vegna rannsókna og tilrauna með búvélar og prófanir á þeim. Geta má þess að þeir söluaðilar, sem hafa látið vélar til prófunar hjá bútæknideild, hafa þurft að greiða fyrir þá þjónustu sérstaklega. Því er um að ræða nánari útfærslu á núverandi kerfi. Er það í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að atvinnuvegirnir kosti sjálfir hluta af þeirri þjónustu sem þeir njóta.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/1978,


um búnaðarfræðslu, o.fl.



    Með frumvarpinu er leitað sérstakrar heimildar fyrir nokkrar stofnanir landbúnaðarráðuneytisins til öflunar sértekna. Annars vegar er heimild fyrir búnaðarskóla að innheimta skráningargjöld líkt og gildir um framhaldsskóla almennt. Í frumvarpi til fjárlaga 1993 er gert ráð fyrir að Bændaskólinn á Hvanneyri afli 800 þús. kr. með skráningargjöldum á næsta ári, Bændaskólinn á Hólum 600 þús. kr. og Garðyrkjuskóli ríkisins 600 þús. kr. Hins vegar er heimild til að leggja á sérstakt bútæknigjald sem renni til bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Í frumvarpi til fjárlaga er gert ráð fyrir að slíkt gjald afli stofnuninni 8 m.kr. á árinu 1993.