Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 96 . mál.


519. Breytingartillaga



við brtt. á þskj. 514 [Fjárlög 1993].

Frá Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni.



Þús. kr.
    Við 2. tölul. (02-210 Háskólinn á Akureyri. 101 Almennur rekstur).
    Fyrir „147.000“ kemur     
151.000


Greinargerð.


     Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri hefur staðið fyrir rannsóknum á lífríki sjávar í Eyjafirði. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1993 er ekki gert ráð fyrir fé til þessa verkefnis. Tillaga þessi, um 4 m.kr. hækkun á rekstrargjöldum skólans, er flutt til þess að tryggja framhald þessara rannsókna.