Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 285 . mál.
547. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum, og um stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.
Frá minni hluta heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið til fundar við sig Pál Sigurðsson, Þorkel Helgason, Jón Sæmund Sigurjónsson, Guðjón Magnússon, Dögg Pálsdóttur, Magnús R. Gíslason og Einar Magnússon frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Gylfa Arnbjörnsson frá Alþýðusambandi Íslands, Ögmund Jónasson og Ragnhildi Guðmundsdóttur frá BSRB, Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Árna Guðjónsson frá Innheimtustofnun sveitarfélaga, Birnu Hreiðarsdóttur frá Jafnréttisráði, Þuríði Jónsdóttur frá Neytendasamtökunum, Finnboga Rút Hálfdánarson frá Lyfjafræðingafélagi Íslands, Guðmund Reykjalín frá Apótekarafélagi Íslands, Sigmar Ármannsson frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Önnu Ragnarsdóttur frá Félagi einstæðra foreldra, Andra Árnason og Runólf Ólafsson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Ingólf Finnbjörnsson frá Samtökum landflutningamanna, Hilmar Björgvinsson og Kristján Guðjónsson frá Tryggingastofnun ríkisins, Jón Ásgeir Eyjólfsson og Svend Ricther frá Tannlæknafélagi Íslands, Skúla G. Johnsen og Ingimar Sigurðsson frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Guðmund E. Eyjólfsson og Högna Óskarsson frá Læknafélagi Reykjavíkur, Kristján Erlendsson frá Læknafélagi Íslands, Unni Halldórsdóttur frá Heimili og skóla, Sigurbjörn Sveinsson frá Félagi íslenskra heimilislækna, Ólaf F. Magnússon frá Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna og Tómas Jónsson og Víglund Þór Þorsteinsson frá Sérfræðingafélagi íslenskra lækna.
Þá bárust nefndinni einnig gögn og ýmis erindi er frumvarpið snertir frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Félagi skólatannlækna, Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Heimili og skóli, Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna, Félagi íslenskra heimilislækna, héraðslækninum í Reykjavík, skólatannlækningum í Reykjavík, Tryggingastofnun ríkisins, nokkrum félagsmönnum í Læknafélagi Reykjavíkur og Sérfræðingafélagi íslenskra lækna.
Minni hluti nefndarinnar getur hvorki fallist á þær breytingar sem frumvarpið felur í sér á almannatryggingalöggjöfinni né þær breytingartillögur sem fram koma í áliti meiri hluta heilbrigðis- og trygginganefndar. Hér á eftir mun verða gerð grein fyrir mikilvægustu atriðum frumvarpsins en einstakir nefndarmenn munu gera frekari grein fyrir afstöðu sinni í umræðu um málið.
Tillögurnar í frumvarpinu eru handahófskenndar og illa undirbúnar. Í meðförum nefndarinnar hafa þær verið að taka sífelldum breytingum og enn er alveg óljóst hvað einstakir þættir frumvarpsins, svo sem tilvísanakerfið og breytingarnar á tannlæknakostnaðinum, muni hafa í för með sér. Ákvæðum frumvarpsins um slysatryggingar hefur verið frestað um eitt ár vegna ónógs undirbúnings. Öllum II. kafla frumvarpsins, um stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, hefur verið frestað. Tillögur heilbrigðisráðherra um sparnað, sem upphaflega birtust í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1993, hafa á síðustu vikum og dögum verið að taka sífelldum breytingum eins og fylgiskjal, sem fylgir með þessu nefndaráliti, ber glöggan vott um.
Meðlag, barnalífeyrir og mæðra- og feðralaun.
Meðlag og barnalífeyrir hækkar úr 7.551 kr. á mánuði í 10.300 kr. Þessi hækkun kemur þó ekki börnunum til góða heldur er hér um tilflutning að ræða frá ríkissjóði til meðlagsgreiðenda þar sem mæðra- og feðralaun eru lækkuð á móti, með einu barni úr 4.732 kr. í 1.000 kr. á mánuði, með tveimur börnum úr 12.398 kr. í 5.000 kr. á mánuði og með þremur börnum eða fleirum úr 21.991 kr. á mánuði í 10.800 kr. Fyrir einstætt foreldri, sem hefur forsjá barnsins eða barnanna, eru áhrifin af breytingunni þessi:
Eitt barn Lög Frumvarp
Meðlag/barnalífeyrir 7.551 10.300
Mæðra- og feðralaun 4.732 1.000
Samtals 12.283 11.300
Skerðing á mánuði er 983 kr. og á ári 11.796 kr. Þess má geta að mánaðargjald á dagheimili í Reykjavík er með öllu meðtöldu 9.750 kr.
Tvö börn Lög Frumvarp
Meðlag/barnalífeyrir 15.102 20.600
Mæðra- og feðralaun 12.398 5.600
Samtals 27.500 25.600
Skerðing á mánuði er 1.900 kr. og á ári 22.800 kr.
Þrjú börn og fleiri Lög Frumvarp
Meðlag/barnalífeyrir 22.653 30.900
Mæðra- og feðralaun 21.991 10.800
Samtals 44.644 41.700
Skerðing á mánuði 2.944 kr. og á ári 35.328 kr.
Af þessari samantekt er ljóst að hækkun meðlags og lækkun mæðra- og feðralauna mun leiða til umtalsverðrar skerðingar á kjörum þeirra er sjá um framfærslu og hafa forræði barnanna. Þó að upphæðirnar á mánuði eða ári séu ekki ýkja háar er skerðingin tilfinnanleg vegna þess að í flestum tilfellum er hér um að ræða fólk sem eingöngu verður að lifa á dagvinnulaunum og hefur ekki tækifæri til að afla sér viðbótartekna nema þá með miklum tilkostnaði vegna barnagæslu. En það er ekki bara sá sem hefur forræði barnsins og greiðir stærri hluta framfærslunnar sem verður fyrir skerðingu því að framfærendur barns eða barna eru tveir, sá sem forræðið hefur og sá sem meðlagið greiðir. Skerðing á kjörum þess sem meðlagið greiðir er ekki síður tilfinnanleg. Ef skerðing á kjörum framfærenda, þ.e. þess sem meðlagið greiðir og þess sem forræðið hefur, er skoðuð er hún þessi á ári:
Eitt barn
Skerðing forræðisaðila vegna lækkunar mæðra- og feðralauna 11.796
Skerðing meðlagsgreiðanda vegna hækkunar meðlags 32.988
Skerðing framfærenda 44.784
Tvö börn
Skerðing forræðisaðila 22.800
Skerðing meðlagsgreiðanda 65.976
Skerðing framfærenda 88.776
Þrjú börn og fleiri
Skerðing forræðisaðila 35.328
Skerðing meðlagsgreiðanda 98.964
Skerðing framfærenda 134.292
Það kom fram hjá Gylfa Arnbjörnssyni, hagfræðingi Alþýðusambands Íslands, þegar hann mætti til fundar við nefndina, að með hækkun á meðlaginu gæti farið svo að skerðingin hjá þeim aðila, sem sér um framfærsluna og hefur forræði barnsins, gæti í raun orðið mun meiri en að framan er lýst því að við skilnað er stundum gerður samningur milli foreldra um að það foreldrið, sem ekki hefur forræði barnsins, taki þátt í kostnaði við framfærslu barnsins umfram það sem meðlagið gerir ráð fyrir. Þegar meðlagið hækkar er hættan því sú að slíkum samningum verði rift.
Það var mat stjórnar Innheimtustofnunar sveitarfélaga að 50% hækkun meðlagsgreiðslna mundi auka vanskil meðlagsgreiðenda við Innheimtustofnun úr um 265 millj. kr. á ári í tæpar 600 millj. kr.
Í breytingartillögum meiri hlutans er hins vegar gert ráð fyrir að lækka meðlagið frá því sem upphaflega var áætlað um 1.000 kr. á mánuði og því má búast við að vanskil við Innheimtustofnun minnki sem því nemur. Innheimtustofnunin sækir þá peninga, sem ekki innheimtast í meðlögum, í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og er það mat Sambands íslenskra sveitarfélaga að sú skerðing á Jöfnunarsjóði muni fyrst og fremst bitna á minni sveitarfélögunum. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið gert samkomulag milli sambandsins og ríkisstjórnar um að greiðsluskylda Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fari ekki yfir 300 millj. kr. á árinu 1993. Það sem umfram er verði greitt úr ríkissjóði en ekki er gert ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1993. Uppsöfnuð vanskil á meðlögum við Innheimtustofnun sveitarfélaga er á fjórða milljarð króna. Gerðir hafa verið samningar um greiðslu vanskila við þúsundir meðlagsgreiðanda. Sú hækkun, sem nú er gert ráð fyrir að verði á meðlagsgreiðslum, mun vafalítið kollvarpa mörgum þessara samninga og þeim fyrirheitum sem þessir aðilar hafa gefið um greiðslu skulda sinna við Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Í lok október 1992 var greitt meðlag með 15.903 börnum. Sú hækkun á meðlaginu, sem meiri hluti heilbrigðis- og trygginganefndar leggur nú til, mun því þýða 525 millj. kr. viðbótarútgjöld fyrir meðlagsgreiðendur. Óskað var eftir að fá fulltrúa úr starfsstjórn nýstofnaðs Félags forsjárlausra foreldra til fundar við nefndina en því var hafnað þar til eftir að meðferð málsins í nefndinni væri lokið. Starfsstjórnin hefur hins vegar komið á framfæri við alþingismenn ályktun sem samþykkt var á stofnfundi félagsins 17. desember sl. og fylgir hún með þessu nefndaráliti sem fylgiskjal.
Ekki má horfa eingöngu á þær breytingar sem verið er að gera á almannatryggingalögunum með þessu frumvarpi. Þær tengjast mjög þeim breytingum sem gerðar eru á barnabótum, barnabótaauka og sköttum. Því óskaði nefndin eftir að reiknað yrði út hvaða áhrif allar þessar breytingar hefðu á einstæð foreldri eftir aldri og fjölda barna.
Slysatryggingar.
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1993 var gert ráð fyrir að færa slysatryggingar almannatrygginganna yfir til vátryggingafélaganna og spara þannig 100 millj. kr. Þegar það frumvarp, sem hér er til umfjöllunar, var lagt fyrir Alþingi var hins vegar gert ráð fyrir að færa einvörðungu slysatryggingu ökumanns yfir til vátryggingafélaganna á árinu 1993 og spara með því 50 millj. kr. Breytingartillögur meiri hlutans gera nú ráð fyrir að þessu skuli frestað á árinu 1993. Þessi hringlandaháttur er dæmigerður fyrir öll þau vinnubrögð er einkennt hafa þetta mál.
Iðgjöld slysatrygginga almannatrygginga eru ákveðin með reglugerð skv. 4. mgr. 36. gr. laga nr. 67/1971, um almannatryggingar, sbr. 5. gr. laga nr. 59/1978. Vátrygging ökumanns er innheimt með bifreiðagjöldum í upphafi hvers árs og var á árinu 1992 1.215 kr. Með tilflutningi á vátryggingu ökumanns yfir til vátryggingafélaganna yrði því að fella niður vátryggingu ökumanns við innheimtu bifreiðagjaldanna nema að því marki að hún stæði undir þeim skuldbindingum sem gerðar hafa verið á þessu ári, en koma til greiðslu á næstu árum. Sparnaður hefði því enginn orðið af þessum tilflutningi nema ef eigendur bifreiða hefðu áfram verið látnir greiða vátryggingu ökumanns inn til Tryggingastofnunar ríkisins en nytu ekki tryggingaverndar. Það er auðvitað ekki hægt og því hefur verið ákveðið að fresta gildistöku þessa ákvæðis um eitt ár. Þar af leiðandi munu ekki sparast þessar 50 millj. kr. sem fyrirhugaðar voru og alveg óljóst með hvaða hætti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur hugsað sér að spara þær en í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir þessum sparnaði.
Tilvísanir.
Frá 1. janúar 1972 og fram til 1. apríl 1985 var tilvísanakerfið svokallaða við lýði með einum eða öðrum hætti. Tilvísun frá heilsugæslu- eða heimilislækni til sérfræðings var þá forsenda fyrir því að sjúklingur fengi reikning sérfræðings endurgreiddan hjá Tryggingastofnun ríkisins. 1. apríl 1985 var tilvísanakerfið afnumið til reynslu í eitt ár. Allt frá þeim tíma hefur það verið samkomulagsatriði í samningum milli sérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins að tilvísanakerfinu skyldi ekki aftur komið á. Kostnaður við sérfræðilæknishjálp á föstu verðlagi miðað við júlí 1990 hefur á árunum 1983 til ársins 1990 þróast þannig í millj. kr.:
1983 466
1984 455
1985 590
1986 690
1987 877
1988 979
1989 831
1990 731
Árið 1990 var áætlað að kostnaður samkvæmt fjárlögum yrði 731 millj. kr. Hann mun þó hafa orðið nokkuð hærri.
Til að sýna þróunina á myndrænan hátt er með nefndaráliti þessu fylgiskjal sem sýnir þessa þróun.
Margir hafa viljað skýra þessa kostnaðarþróun út frá því að sérfræðingskerfið sé svo opið að allir læknar, sem ljúka sérfræðinámi, hafi greiðan aðgang að sjúkratryggingakerfinu. Fjölgun sérfræðinga frá árinu 1983–1989 er með eftirfarandi hætti:
Ár 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
Fjöldi sérfræðinga 250 260 280 300 330 355 370
Á mynd, sem fylgir með nefndaráliti þessu sem fylgiskjal, er sýnt hvernig fjöldi sérfræðinga hefur þróast á hverja 1.000 íbúa árunum 1980–1988. Útgjaldaaukningu sjúkratrygginganna fyrir sérfræðilæknishjálp má einnig skýra að einhverju leyti með því hver kostnaðarþátttaka einstaklinganna er á hverjum tíma. Árin 1983–1989 var kostnaðarþátttaka einstaklinganna í sérfræðilæknishjálpinni sem hér segir:
Ár 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
Kostnaðarþátttaka 10% 30% 20% 17,3% 14% 16,5% 18,6%
Komum til sérfræðinga á árunum 1986–1991 hefur farið sífellt fjölgandi:
Ár 1986 1987 1988 1989 1990 1991
Komur til sérfræðinga 306.298 358.179 396.227 401.693 386.547 408.513
Ekki er nokkur vafi á að kostnaðarhlutdeild einstaklinganna, hvort sem er í sérfræðilæknishjálpinni eða heimilislæknishjálpinni, hefur mikil áhrif á það með hvaða hætti og hvert einstaklingarnir sækja sér læknishjálp. Í janúar 1990 voru 38.308 komur til heilsugæslu- og heimilislækna. Með reglugerð sem gefin var út 15. febrúar 1990 var kostnaðarhlutdeild einstaklinganna breytt þannig að gjaldið til sérfræðings var hækkað en um leið var komugjald til heilsugæslu- og heimilislækna lagt niður. Í maí 1990 voru því komur til heilsugæslu- og heimilislækna 42.462. Í apríl 1991 voru þær komnar upp í 49.946. Með reglugerð, sem var gefin út 15. janúar 1992, var kostnaðarþátttökunni aftur breytt, en gjaldið til sérfræðinganna var hækkað úr 900 kr. í 1.500 kr. og 600 kr. gjald var sett á heimsóknir til heilsugæslu- og heimilislækna.
Við þessa breytingu varð verulegur samdráttur í heimsóknum til heilsugæslu- og heimilislækna. Í febrúar 1992 var samdrátturinn 10,6% miðað við sama tíma árið á undan. Í mars 1992 var 8% samdráttur miðað við sama tíma árið áður og í apríl 1992 um 23,5% miðað við sama tíma árið áður. Yfirlýstur tilgangur heilbrigðisráðherra með því að taka upp tilvísanakerfi aftur, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, er sá að ná fram sparnaði í sérfræðilæknishjálpinni. Fullvíst má telja að einhver fækkun verði á komum til sérfræðinga verði tilvísanakerfið tekið upp og þar af leiðandi mun eitthvað draga úr kostnaði sjúkratrygginganna. Aftur á móti má búast við að aukning verði á heimsóknum til heilsugæslu- og heimilislækna. Fari allir, sem þurfa að sækja þjónustu sérfræðinga til heilsugæslulækna eða heimilislækna til að ná sér í tilvísun og komufjöldinn til sérfræðinga verði svipaður á árinu 1993 og hann var 1991 og allir sem koma til sérfræðinga verði með tilvísun, þýðir það útgjaldaauka fyrir þá sem leita til lækna upp á 245 millj. kr. á ári.
Um þetta atriði og um tilvísanakerfið í heild eru verulega skiptar skoðanir meðal lækna. Sérfræðingar leggja áherslu á að tilvísanakerfið muni ekkert spara sjúkratryggingunum heldur auka útgjöld og óhagræði einstaklinga. Heilsugæslulæknar telja hins vegar að með tilvísanakerfinu megi spara. Þessi ágreiningur endurspeglast í þeim bréfum og ályktunum sem fylgja með þessu nefndaráliti. Báðar stéttirnar eru þó sammála um að tilvísanakerfið geti verið mikilvægur liður í að tryggja fagleg samskipti milli heimilislækna og heilsugæslulækna annars vegar og sérfræðinga hins vegar. En vilji ríkisvaldið ná því fram þá eigi ekki að gera það í tengslum við sparnaðaráform ríkisstjórnarinnar.
Hjá sérfræðingum eru uppi miklar efasemdir um að heilsugæslulæknar og heimilislæknar geti sinnt því viðbótarálagi sem af tilvísanakerfinu hlýst en Félag íslenskra heimilislækna er þeirrar skoðunar að heilsugæslan í Reykjavík, heilsugæslustöðvarnar og heimilislæknarnir geti sinnt þessari auknu þjónustu.
Lyfjakostnaður.
Frumvarpið gerir ráð fyrir þeirri breytingu á greiðslu sjúkratrygginga fyrir lyf að einungis lífsnauðsynleg lyf verði ókeypis. Vegna allra annarra lyfja þurfi sjúklingar að greiða hlutdeild í kostnaði í samræmi við reglur sem í gildi eru á hverjum tíma. Þá er gert ráð fyrir að skilja á milli skráningar lyfja og greiðsluþátttöku ríkisins þannig að í hvert sinn sem nýtt lyf er skráð hér á landi þurfi að ákveða sérstaklega hvort og með hvaða hætti sjúkratryggingar taki þátt í greiðslu kostnaðar viðkomandi lyfs.
Með þeirri lagaheimild, sem hér er óskað eftir, á að færa heilbrigðisráðherra enn víðtækara reglugerðarvald til að ákveða að hve miklu leyti lyfjakostnaði verði velt yfir á sjúklingana. Í áætlun ríkisstjórnarinnar um sparnað í lyfjakostnaði á árinu 1993 er gert ráð fyrir 440 millj. kr. sem skiptist þannig: Halli á árinu 1992 er um 200 millj. kr. sem velt er yfir á næsta ár. Síðan er gert ráð fyrir að ná niður venjubundinni aukningu í lyfjakostnaði upp á 240 millj. kr.
Lyf skiptast í grófum dráttum í fjóra flokka eftir greiðsluskiptingu sjúklinga og almannatrygginga. Lyf sem eru greidd að fullu af almannatryggingum, lyf sem eru greidd að fullu af almannatryggingum gegn framvísun lyfjaskírteinis, lyf þar sem sjúklingar greiða núna 25% hlutfall almennra greiðanda allt upp að 3.000 kr. greiðsluhámarki. Hjá elli- og örorkulífeyrisþegum er hlutfallið 10% og greiðsluhámarkið 700 kr.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem nefndin hefur fengið frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, er fyrirhugað að setja nýja reglugerð um hlut sjúklinga í lyfjakostnaði um nk. áramót þar sem hlutur sjúklings á að hækka úr 26% í 32% eða um 210 millj. kr. og er þá miðað við sölu ársins 1992. Ætlunin er að gera þetta með því að dreifa greiðslum jafnt milli sjúklinga með því að færa lyf á milli greiðsluflokka. Gert er ráð fyrir að hætt verði að nota lyfjaskírteini.
Samkvæmt upplýsingum úr heilbrigðisráðuneytinu er einnig gert ráð fyrir því að í þessari reglugerð verði sett föst lágmarksupphæð, svokallað gólf í greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir hverja lyfjaávísun, en síðan taki við greiðsluhlutfall upp að ákveðnu hámarki svo sem verið hefur. Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum Apótekarafélags Íslands og Félags íslenskra lyfjafræðinga þá hefur að undanförnu náðst nokkur árangur í að fá lækna til að ávísa á ódýrasta lyf. Þegar búið er að setja fasta lágmarksupphæð fyrir hverja lyfjaávísun er viss hætta á að dragi úr verðsamkeppni á ódýrustu lyfjunum.
Önnur sparnaðaráform heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins til að draga úr lyfjakostnaði er að lækka álagningu lyfja í heildsölu og smásölu og að auka afslátt apóteka til Tryggingastofnunar ríkisins. Áætlað er að það gefi 120 millj. kr.; draga á úr kostnaðarþátttöku Tryggingastofnunar vegna nýrra lyfja og spara þannig 50 millj. kr.; hætta á greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar vegna lyfjakaupa dvalarheimila sem þýðir 50 millj. kr. sparnað á lyfjakaupalið Tryggingastofnunar en mun auka á útgjöld dvalarheimilanna. Ljóst er að sjúkratryggingarnar verða að standa undir þessum viðbótarútgjöldum dvalarheimilanna með hærri daggjöldum.
Það kom fram hjá fulltrúum Apótekarafélags Íslands og Lyfjafræðingafélagi Íslands, að sú breyting, sem nú stæði til að gera á reglugerð um greiðslu almannatrygginga á lyfjakostnaði, nr. 300/1991, um næstu áramót, væri fimmta breytingin á reglugerðinni á rúmu einu ári. Fulltrúar þessara félaga fullyrtu báðir að aldrei hefði í raun og veru verið gefinn tími til að láta á það reyna hvaða afleiðingar breytingarnar hver um sig hefðu haft á þróun lyfjakostnaðar.
Tannlækningakostnaður.
Um sl. áramót var gerð sú breyting á endurgreiðslum hins opinbera vegna tannlækningaþjónustu að þátttaka foreldra í tannlæknakostnaði skólabarna var aukin úr 0 í 15%. Um leið var lækkuð kostnaðarþátttakan fyrir börn á aldrinum 0–5 ára úr 25% niður í 15%. Samkomulag náðist þá um að allir forvarnaliðir tannlækninganna, svo sem skoðun, flúorpenslun, flúorskolun og skorufyllur, væru foreldrum að kostnaðarlausu. Gert var ráð fyrir að þessar breytingar spöruðu á árinu 1992 um 280 millj. kr. Sá sparnaður hefur ekki náðst því að nú stefnir í að útgjöldin aukist á árinu 1992 um 100 millj. kr. frá fyrra ári.
Þessi útgjaldaaukning Tryggingastofnunar ríkisins er fyrst og fremst skýrð með því að aukning hafi orðið á ýmsum liðum gjaldskrárinnar er snúa að forvörnum. Aukning hafi orðið á skoðunum um 15%, röntgen um 21%, flúormeðferð um 17% og skorufyllur hafi aukist um 43% og er sá samanburður miðaður við tímabilið ágúst til október 1991–1992. Hér er eingöngu miðað við þá aukningu sem orðið hefur hjá einkatannlækningum vegna barna og unglinga í Reykjavík og Kópavogi. Þær upplýsingar, sem borist hafa frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, benda til þess að þessi aukning hafi orðið bæði hjá einkatannlæknum og skólatannlæknum.
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir því að hækka kostnaðarhlutdeild foreldranna í tannlæknaþjónustu barnanna úr 15% í 25% og halda ekki lengur forvörnum, nema einni skoðun, utan kostnaðarþátttökunnar. Með þessu er verið að auka útgjöld foreldra vegna tannlækninga skólabarna um 190 millj. kr. Af fagmönnum hefur verið varað mjög við þessari leið því hún geti haft óheillavænleg áhrif á tannheilsuna. Væri það mikill skaði því á þessu sviði hafa Íslendingar náð verulegum árangri á undanförnum árum eins og sú mynd sýnir sem fylgir með áliti þessu sem fylgiskjal, en þar er breytingum á tíðni tannátu 12 ára barna árunum 1970–1990 lýst. Vorið 1970 voru tæplega níu skemmdar tennur í hverju 12 ára barni, en vorið 1992 er þessi fjöldi kominn niður í 2,7 skemmdar tennur að meðaltali í hverju 12 ára barni.
Þessi árangur byggir á öflugu starfi heilbrigðisyfirvalda og tannlækna á þessu sviði á undanförnum árum. Með fyrirhugaðri breytingu er veruleg hætta á að við fórnum þeim árangri sem náðst hefur. Hitt er svo aftur annað mál að það er margt sem bendir til þess að nauðsynlegt sé að taka á skipulagi og framkvæmd skólatannlækninganna, bæði hvað varðar einkatannlækna og skólatannlækna. Það ætti því að vera forgangsverkefni og leita þannig leiða til sparnaðar, en ekki að velta útgjaldavandanum yfir á foreldrana og fórna tannverndarárangrinum.
Útboð á þjónustu.
Í 8. gr. frumvarpsins er leitað eftir heimild fyrir sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins til að gera samning um einstaka þætti þeirrar þjónustu sem deildinni ber að veita, t.d. með útboðum á þjónustunni. Vel kemur til greina að láta slík útboð fara fram séu þau vel skilgreind og inni á ákveðnu sviði þjónustunnar, svo sem í rannsóknarlækningunum. Vel mætti hugsa sér að láta fara fram útboð meðal þeirra fjölda rannsóknastofa sem stofnaðar hafa verið á undanförnum árum og leita þannig leiða til þess að draga úr kostnaði við rannsóknarþjónustuna. Slík útboð, sem eru á vel skilgreindu og afmörkuðu sviði heilbrigðisþjónustunnar, gætu leitt til kostnaðarlækkunar.
Með tilliti til ofanritaðs leggur minni hluti nefndarinnar til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 21. des. 1992.
Finnur Ingólfsson, Svavar Gestsson. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
frsm.
Sigurður Þórólfsson.
Fylgiskjal I.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:
Sparnaðartillögur heilbrigðisráðherra.
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Útreikningar á meðlagi, mæðralaunum, barnabótum, barnabótaauka
og sköttum einstæðs foreldris miðað við fjölda barna.
(Línurit myndað. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal II.
Bréf Innheimtustofnunar sveitarfélaga til stjórnar
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
(11. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal III.
Bréf starfsstjórnar Félags forsjárlausra foreldra
til heilbrigðis- og trygginganefndar.
(19. desember 1992.)
Starfsstjórn Félags forsjárlausra foreldra krefst þess að umsagnar sé leitað hjá félaginu vegna nýboðaðra breytinga á meðlögum og barnabótum áður en þær breytingar ná fram að ganga.
Meðfylgjandi er ályktun stofnfundar félagsins frá því 17. desember sl.
Félagið er málsvari forsjárlausra foreldra og er þar með fullgildur umsagnaraðili um framantaldar boðaðar breytingar.
Birgir Ragnarsson,
Eiríkur Hermannsson,
Birgir Símonarson,
Jón Pálmi Pálmason,
Úlfar Þór Marinósson,
Þórður Erik Hilmarsson,
Erling Ellingsen.
Ályktun stofnfundar Félags forsjárlausra foreldra.
Fundurinn samþykkir að skora á ríkisstjórnina að hún fresti hækkun meðlagsgreiðslna þar til ríkisvaldið hefur lagt fram fullmótaða stefnu í málefnum meðlagsgreiðenda.
Fylgiskjal IV.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
og Tryggingastofnun ríkisins:
Kostnaður við komu sjúklinga til sérfræðinga
og sjálfstætt starfandi heimilislækna.
(Súlurit og töflur myndað.)
Fylgiskjal V.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:
Fjöldi sérfræðinga á 1000 íbúa 1980–1988.
(Línurit myndað. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal VI.
Bréf Læknafélags Reykjavíkur til
heilbrigðis- og trygginganefndar, 16. desember 1992
ásamt greinargerð með ályktunartillögu á fundi LR 15. desember 1992;
einnig bréf til Læknafélags Reykjavíkur, 18. desember 1992,
og bréf til Læknafélags Reykjavíkur, 17. desember 1992.
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal VII.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:
Minnisblað um greiðslur á lyfjum.
(16. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal VIII.
Bréf Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
(11. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal IX.
Bréf Öryrkjabandalags Íslands til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
(16. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal X.
Bréf til heilbrigðis- og trygginganefndar
frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
(17. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal XI.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:
Könnun á notkun á gjaldliðum vegna fyrirbyggjandi
meðferðar/skoðunar samkvæmt taxta TFÍ og TR
í Reykjavík og Kópavogi.
(10. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal XII.
Bréf Félags skólatannlækna í Reykjavík til
heilbrigðis- og trygginganefndar.
(12. desember 1992.)
Félag skólatannlækna í Reykjavík varar við ákvæðum sem fram koma í 7. gr. frumvarps til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, þar sem kveðið er á um að hætt verði að greiða að fullu fyrir tannverndaraðgerðir hjá grunnskólabörnum.
Nái þessi breyting fram að ganga er stefnt í voða þeim góða árangri sem náðst hefur á undanförnum árum til lækkunar tíðni tannskemmda í grunnskólabörnum.
Virðingarfyllst,
f.h. Félags skólatannlækna í Reykjavík,
Jónína Pálsdóttir, formaður.
Fylgiskjal XIII.
Bréf frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur til
heilbrigðis- og trygginganefndar.
(11. desember 1992.)
Á fundi stjórnar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, sem haldinn var í gær, var samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Stjórnin samþykkir að vara alvarlega við ákvæðum sem koma fram í 7. gr. frumvarps til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum o.fl., þar sem kveðið er á um að hætt verði að greiða að fullu fyrir tannverndaraðgerðir grunnskólabarna. Það er álit stjórnarinnar að komi slík ákvæði til framkvæmda sé stefnt í voða þeim árangri sem náðst hefur til lækkunar á tíðni tannskemmda á undanförnum árum.“
Um leið og ofangreindu er komið á framfæri skal á það bent að Heilsuverndarstöð Reykjavíkur annast framkvæmd skólatannlækninga og að engin samráð voru höfð við stöðina um þær breytingar sem fram koma í frumvarpinu.
Virðingarfyllst,
Ingimar Sigurðsson, forstjóri.
Fylgiskjal XIV.
Bréf Landssamtakanna Heimilis og skóla
til heilbrigðis- og trygginganefndar.
(17. desember 1992.)
(Tölvutækur texti ekki til. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal XV.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:
Línurit yfir breytingar á tíðni tannátu 12 ára barna 1970–1990
og tafla og línurit yfir meðaltal skemmdra, úrdreginna og fylltra fullorðinstanna
6–15 ára barna í skólum Reykjavíkur 1983–1991.
(Línurit og töflur mynduð.)