Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 316 . mál.
554. Frumvarp til laga
um flutninga á járnbrautum, skipgengum vatnaleiðum o.fl. vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.
(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)
1. gr.
Tilgangur þessara laga er að fullnægja þeim skuldbindingum sem leiðir af ákvæðum 6. kafla III. hluta samnings um Evrópska efnahagssvæðið um flutningastarfsemi og XIII. viðauka við samninginn og eigi verður skipað í önnur lög.2. gr.
Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga á grundvelli 1. gr.3. gr.
Samgönguráðuneytið skal tilkynna eftirlitsstofnun EFTA og fastanefnd EFTA áður en hafin er gerð samgöngumannvirkja samkvæmt þingsályktunum um vegáætlun, flugmálaáætlun og hafnaáætlun sem talið er að hafi umtalsverð áhrif á umferð milli aðildarríkja EES eða til landa utan EES.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
I. Ákvæði EES-samningsins um lögfestingu gerða og aðlögun.
EES-samningurinn, meginmál hans, bókanir við hann og viðaukar, er bindandi að þjóðrétti fyrir samningsaðila. Þær gerðir, sem vísað er til í viðaukunum, eru einnig bindandi að þjóðrétti. Til þess að einstaklingur í EFTA-ríkjunum geti byggt rétt sinn á ákvæðum samningsins, þar á meðal þeim gerðum sem vísað er til í viðaukum hans, verða ákvæðin að vera hluti af landsrétti aðildarríkjanna.A. Ákvæði meginsamningsins.
Í 7. gr. meginsamnings EES er kveðið á um að gerðir sem vísað er til, eða er að finna í viðaukum við samninginn eða ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, bindi samningsaðila og skuli teknar upp í landsrétt.Í áðurnefndri 7. gr. segir einnig að gerð, sem samsvarar reglugerð Evrópubandalagsins, skuli sem slík tekin upp í landsrétt samningsaðila. Gerð, sem samsvarar tilskipun Evrópubandalagsins, skal veita yfirvöldum samningsaðila val um form og aðferð við framkvæmdina. Þetta þýðir með öðrum orðum að þær gerðir, sem í viðaukum eru taldar upp, þarf að binda í íslenskan rétt og birta án tillits til mikilvægis fyrir Íslendinga. Stærstur hluti þeirra gerða, er fjalla um flutninga á járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum, eru reglugerðir og þurfa því að birtast sem slíkar í íslenskum rétti, jafnvel þó flutningar á járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum hafi enga raunhæfa þýðingu hér á landi.
B. Bókanir.
Í bókun 1 með EES-samningnum eru m.a. almenn ákvæði um hvernig hlutaðeigandi gerðir Evrópubandalagsins verði aðlagaðar EES-samningnum.Í gerðum þeim, er frumvarp þetta nær til, eru framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins falin ýmis störf er varða upplýsingaskipti og tilkynningar til aðildarríkjanna. Þessi störf verða að því er varðar EFTA-ríkin í höndum annars vegar fastanefndar EFTA og hins vegar í höndum eftirlitsstofnunar EFTA. Bókun 1 við samning milli EFTA-ríkjanna um eftirlitsstofnun og dómstól og einnig bókun 1 við samning um fastanefnd EFTA-ríkjanna fjallar nánar um hvernig þessi störf falla undir valdsvið hvorrar stofnunar um sig.
Auk hinnar almennu bókunar 1 með EES-samningnum tengjast eftirfarandi bókanir flutningum á sviði járnbrauta og skipgengra vatnaleiða:
* Bókun 20 — um aðgang að skipgengum vatnaleiðum.
* Bókun 37 — um skrá sem getið er í 101. gr. samningsins. Þar er kveðið á um samstarf sérfræðinga EFTA-ríkjanna í sérstakri nefnd um samgöngumannvirki, líkt og Evrópubandalagið kom á fót með sérfræðingum frá aðildarríkjum þess með ákvörðun ráðsins 78/194/EBE frá árinu 1978.
* Bókanir 43 og 44 sem kveða á um sérstaka samninga Evrópubandalagsins við Austurríki annars vegar og Sviss hins vegar.
C. XIII. viðauki.
Hvað varðar aðlögun þeirra gerða, er falla undir þetta lagafrumvarp, eru eftirfarandi ákvæði í upphafi XIII. viðauka um flutningastarfsemi:. 55. gr. EBE = 32. gr. EES
. 56. gr. EBE = 33. gr. EES
. 57. gr. EBE = 30. gr. EES
. 58. gr. EBE = 34. gr. EES
. 77. gr. EBE = 49. gr. EES
. 79. gr. EBE = 50. gr. EES
. 85. gr. EBE = 53. gr. EES
. 86. gr. EBE = 54. gr. EES
. 92. gr. EBE = 61. gr. EES
. 93. gr. EBE = 62. gr. EES
.214. gr. EBE = 122. gr. EES
. 75. gr. EBE
. 83. gr. EBE
. 94. gr. EBE
. 95. gr. EBE
. 99. gr. EBE
.172. gr. EBE
.192. gr. EBE
.207. gr. EBE
.209. gr. EBE
Í 6. kafla, III. hluta samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eru almenn ákvæði um flutningastarfsemi (47.–52. gr.) og í XIII. viðauka hans eru taldar allar þær gerðir eða samþykktir Evrópubandalagsins er lúta beint að flutningastarfsemi og lögfesta þarf hér á landi með beinum eða óbeinum hætti samkvæmt samningnum, sbr. hér að framan.
Þetta lagafrumvarp nær einkum til I., III. og IV. hluta XIII. viðauka. Flestar gerðir hans fjalla um flutninga á landi og vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum. Íslensk flutningafyrirtæki starfa takmarkað á sumum þeim sviðum og hefur því gildistaka þeirra ekki mikla raunhæfa þýðingu hér á landi.
Þeim gerðum XIII. viðauka, er fjalla um flutninga á járnbrautum og skipgengum, vatnaleiðum, var í upphafi öllum skipað undir samgönguráðuneytið. Við framkvæmd var hins vegar ákveðið að verðandi Samkeppnisstofnun, arftaki Verðlagsstofnunnar, hafi umsjón með nokkrum gerðum er lúta nær eingöngu að almennum samkeppnisreglum.
II. Hvaða gerðir XIII. viðauka er ætlað að setja í lög með þessu lagafrumvarpi?
Hér á eftir eru taldar tæmandi gerðir EES sem falla undir þetta frumvarp og vísað í viðeigandi tölulið XIII. viðauka. Auk þess er greint frá meginefni hverrar gerðar og aðlögun að ákvæðum EES-samningsins.Ásamt breytingum:
— 172B: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 373D0101(01): Ákvörðun ráðsins frá 1. janúar 1973 um aðlögun á skjölum varðandi aðild nýrra aðildarríkja að Evrópubandalaginu.
— 379R1384: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1384/79 frá 25 júní 1979.
— 381R3021: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3021/81 frá 19. október 1981.
— Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Fjallar um að koma á stöðluðu bókhaldsyfirliti yfir útgjöld vegna samgöngumannvirkja til flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum. Kostnaðaráætlanir vegna framkvæmda í vegamálum yrði að færa til samræmis við þær aðferðir sem hér eru lögfestar. Þetta felur í sér kvaðir um að taka upp reikningskerfi þar sem skráður er kostnaður við samgöngukerfi. Kveðið er á um aðferð til að meta þann kostnað sem samgöngukerfið ber af umferð á vegum, vatnaleiðum og járnbrautum. Eyðublöð fylgja.
Aðlögun EES-samningsins: Samkvæmt II. viðauka við reglugerðina skal bæta við heiti ríkisjárnbrautarfyrirtækja í EFTA-ríkjunum og leiðarkerfi þeirra sem opin eru almennri umferð og tengd eru aðaleiðakerfi.
Ásamt breytingum:
— 378R2116: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBE) nr. 2116/78 frá 7. september 1978 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 2598/70 um hvaða atriði skuli talin fram undir einstökum liðum á eyðublöðum bókhaldsyfirlitsins í I. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1108/70 frá 4. júní 1970.
Innihald gerðar: Þessi reglugerð er til fyllingar 1108/70: Í reglugerðinni eru taldir upp kostnaðarliðir sem telja á fram á eyðublöðunum sem fylgja í I. viðauka reglugerðar 1108/70 frá 4. júní 1970. Reglugerðin er til fyllingar reglugerð nr. 1108/70 og byggir á þeirri aðferð við útreikninga á kostnaði við samgöngukerfið.
Ásamt breytingum:
— 172B: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
Innihald gerðar: Þessi reglugerð er til fyllingar 1108/70 sem skilgreinir aðferð til að reikna kostnað sem samgöngukerfið ber af umferð m.a. á ám og vötnum. Fjallar um samsetningu skrár yfir skipgengar vatnaleiðir sem liggja að sjó eins og kveðið er á um í e-lið 3. gr. reglugerðar 1108/70. Í þessari reglugerð eru taldar upp samgönguæðar á ákveðnum ám og vötnum í Belgíu, Frakklandi, Hollandi og Þýskalandi sem tengjast sjó.
Aðlögun EES-samningsins: Inn á samsetta skrá yfir skipgengar vatnaleiðir skal bæta við skipgengum vatnaleiðum í Finnlandi og Svíþjóð.
Ásamt breytingum:
— 172B: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 373D0101(01): Ákvörðun ráðsins frá 1. janúar 1973 um aðlögun á skjölum varðandi aðild nýrra aðildarríkja að Evrópubandalaginu.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands, á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
— 391R1893: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1893/91 frá 20. júní 1991 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 1191/69 um aðgerðir aðildarríkjanna vegna skyldna sem felast í hugtakinu opinber þjónusta í flutningum á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Vísað er til þess markmiðs að eyða beri misræmi sem fram kemur þegar aðildarríkin leggja á flutningafyrirtæki skyldur sem geta valdið verulegri röskun á samkeppnisskilyrðum. Það er kallað skylda til að veita opinbera þjónustu þegar þjónusta byggist á öðrum forsendum en ef hún væri rekin með arðsemissjónarmið að leiðarljósi. Á tilteknum sviðum flutninga ber að afnema allar skyldur til almannaþjónustu á sviði flutninga nema sýnt sé fram á að þjónustan sé nauðsynleg til að tryggja fullnægjandi samgöngur. Samgöngufyrirtæki, sem veita opinbera þjónustu, geta fengið bætur fyrir fjárútlát sem þau verða fyrir. Engin lagaákvæði eru til hérlendis um skyldu til að halda uppi slíkum samgöngum sem hér um ræðir á járnbrautum, á vegum, ám og vötnum og á þetta því eingöngu við um flutning á vegum.
Innihald gerðar: Markmið þessarar ákvörðunar er að samræma uppbyggingu flutningaleiða innan svæðisins með því að veita upplýsingar um áform og áætlanir um samgöngumannvirki og verkefni sem eru þýðingamikil fyrir svæðið. Hér er fyrst og fremst um tilkynningar að ræða. Samkvæmt ákvörðuninni skal aðildarríki tilkynna ráðinu um ákveðnar, þar til greindar framkvæmdir á sviði samgöngumála sem líklegt er að hafi áhrif á samgöngur utan landamæra ríkisins. Ráðið skal fjalla um tiltekna framkvæmd ef um slíkt er beðið eða ef ráðið sjálft telur slíka umfjöllun nauðsynlega. Nefndin, sem skipuð er samkvæmt reglugerðinni, skal enn fremur vinna að samræmdri þróun samgöngumála innan bandalagsins. Gerð samgöngumannvirkja hér á landi hefur almennt mjög lítil áhrif utan landamæra Íslands og því hefur ákvörðunin væntanlega ekki mikil áhrif hér á landi. Þó er gert ráð fyrir samráði samkvæmt ákvörðuninni ef um er að ræða framkvæmdir sem hafa umtalsverð áhrif á flutninga milli ríkja og við ríki utan EB.
Aðlögun EES-samningsins: a. Í 2. mgr. 1. og 5. gr. ákvörðunarinnar komi orðin „þýðingarmikið fyrir samningsaðila EES-samningsins“ í stað orðanna „þýðingarmikið fyrir bandalagið“ og í 1. mgr. 2. gr. komi orðin „þýðingarmikil fyrir samningsaðila EES-samningsins“ í stað orðanna „þýðingarmikil fyrir bandalagið“. b. Ákvæði c-liðar 2. mgr. 1. gr. gilda ekki. c. Tilhögun samstarfs EFTA-ríkjanna skal vera í samræmi við 101. gr. samningsins. d. Sérfræðingi frá hverju EFTA-ríkjanna er heimilt að taka þátt í verkefnum nefndarinnar um samgöngumannvirki sem lýst er í ákvörðuninni. e. Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins skal, þegar þar að kemur, láta þátttökuaðila vita um fundardag nefndarinnar og senda viðeigandi gögn. — Aðildarríki EFTA skulu senda eftirlitsstofnun EFTA og fastanefnd EFTA tilkynningar sem um er rætt í ákvörðuninni.
Ásamt breytingum:
— 172B Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 375R1473: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1473/75 frá 20. maí 1975.
— 382R1658: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1658/82 frá 10. júní 1982.
— 389R1100: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 110/89 frá 27. apríl 1989.
Innihald gerðar: Reglugerðin gildir um aðstoð sem veitt er til flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum að svo miklu leyti sem slík aðstoð tengist starfsemi á þessu sviði. Samkvæmt henni skulu slíkir styrkir veittir í samræmi við 61. gr. EES-samningsins. Meginregla þessara greina sáttmálans er bann við opinberum styrkjum sem raska samkeppnisstöðu fyrirtækja. Þó er heimilt að veita styrki í ákveðnum tilvikum. Í þessari reglugerð eru talin upp þau tilvik eða verkefni sem réttlætt geta styrkveitingu. Eftirlit með framkvæmd styrkjanna er bæði í höndum framkvæmdastjórnarinnar og sérstakrar ráðgjafarnefndar sem skipuð er henni til stuðnings.
Aðlögun EES-samningsins: Í 5. gr. reglugerðarinnar komi „lögbæru yfirvaldi eins og það er skilgreint í 62. gr. EES-samningsins“ í stað „framkvæmdastjórninni“.
Innihald gerðar: Fjallar, eins og að ofan greinir, um afnám eftirlits sem framkvæmt er á landamærum vegna flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum með farartækjum sem eru skráð eða viðurkennd í viðkomandi aðildarríki.
Aðlögun EES-samningsins: Sérákvæði um landamæraeftirlit er varða lýðveldið Austurríki. Vísað er til 17. gr. samnings milli Evrópubandalagsins og lýðveldisins Austurríkis.
Ásamt breytingum:
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 379L0005: Tilskipun ráðsins 79/5/EBE frá 19. desember 1978.
— 382L0003: Tilskipun ráðsins 82/3/EBE frá 21. desember 1981.
— 382L0603: Tilskipun ráðsins 82/603/EBE frá 28. júlí 1982.
— 386L0544: Tilskipun ráðsins 86/544/EBE frá 10. nóvember 1986.
— 391L0224: Tilskipun ráðsins 91/224/EBE frá 27. mars 1991.
Innihald gerðar: Fjallar um afnám kvóta og leyfisveitinga í þeim samsettu vega- og járnbrautarflutningum sem kveðið er á um í tilskipuninni.
Aðlögun EES-samningsins: Heitum á austurrískum, sænskum og finnskum umferðargjöldum er bætt inn í reglugerðina.
Ásamt breytingum:
— 172B: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 372L0426: Tilskipun ráðsins 72/426/EBE frá 19. desember 1972.
— 374L0149: Tilskipun ráðsins 74/149/EBE frá 4. mars 1974.
— 377L0158: Tilskipun ráðsins 77/158/EBE frá 14. febrúar 1977.
— 378L0175: Tilskipun ráðsins 78/175/EBE frá 20. febrúar 1979.
— 380L0049: Tilskipun ráðsins 80/49/EBE frá 20. desember 1978.
— 382L0050: Tilskipun ráðsins 82/502/EBE frá 19. janúar 1982.
— 383L0572: Tilskipun ráðsins 83/572/EBE frá 26. október 1983.
— 384L0647: Tilskipun ráðsins 84/647/EBE frá 19. desember 1984 um notkun ökutækja sem leigð eru án ökumanns til vöruflutninga á vegum.
Innihald gerðar: Í tilskipuninni er aðildarríkjunum gert skylt að afnema höft í flutningum á tilteknum farmi í alþjóðlegum flutningum á landi samkvæmt nánar tilgreindum reglum. Í viðauka eru taldar upp þær tegundir farms sem tilskipunin gildir um.
Aðlögun EES-samningsins: a. Ákvæði tilskipunarinnar skulu eingöngu gilda um flutninga fyrir eigin reikning. b. Hvað varðar samning milli lýðveldisins Austurríkis og Evrópubandalagsins skal beiting tilskipunarinnar ekki hafa áhrif á gagnkvæman markaðsaðgang sem um getur í 16. gr. þess samnings. Svipað gildir um tvíhliða samninga Austurríkis annars vegar og Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hins vegar, nema samningsaðilar komi sér saman um annað.
Ásamt breytingum:
— 388R1841: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 184/88 frá 21. júní 1988.
Innihald gerðar: Reglugerðin mælir fyrir um ákveðinn kvóta fyrir vöruflutninga á vegum gegn gjaldi milli aðildarlanda. Frá og með 1. janúar 1993 falla allir kvótar til vöruflutninga milli aðildarríkjanna niður. Reglugerðin fjallar einungis um flutninga á vegum milli landa og á því ekki við hér á landi.
Aðlögun EES-samningsins: a. Eingöngu 4. gr. a. í reglugerðinni skal gilda, sbr. þó framkvæmdaráðstafanir sem kveðið er á um í 4. gr. b. og samþykktir í samræmi við ákvæði samningsins. b. Sérákvæði vegna samnings milli lýðveldisins Austurríkis og Evrópubandalagsins sem kveður á um að beiting reglugerðar hafi ekki áhrif á gagnkvæman markaðsaðgang sem um getur í 16. gr. þess samnings. Svipað gildir um tvíhliða samninga Austurríkis annars vegar og Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hins vegar, nema samningsaðilar komi sér saman um annað.
Innihald gerðar: Reglugerðin gildir um vöruflutninga á vegum gegn gjaldi milli aðildarríkja, jafnvel þótt farið sé gegnum land utan bandalagsins, eða að farartækið sé flutt á annan hátt, t.d. með járnbrautarlest. Samkvæmt reglugerðinni eru flutningsgjöld ákveðin í frjálsum samningum milli aðila.
Innihald gerðar: Heiti gerðar skýrir efni hennar.
Ásamt breytingum:
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Fjallar um flutninga á járnbrautum og stefnu í skipulagsmálum.
Aðlögun EES-samningsins: a. Ákvæði 8. gr. gilda ekki. b. Austurríki hefur aðlögunarfrest til ársins 1995.
Ásamt breytingum:
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu, vegna sameiningar Þýskalands, á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Skýrist í heiti ákvörðunarinnar.
Ásamt breytingum:
— 172B: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Danmerkur, Írlands og hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands að Evrópubandalaginu.
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 373D010(01): Ákvörðun ráðsins frá 1. janúar 1973 um aðlögun á skjölum varðandi aðild nýrra aðildarríkja að Evrópubandalaginu.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Fjallar um flutninga á járnbrautum og stefnu í skipulagsmálum. Eins og nafnið bendir til þá er tilgangur reglugerðarinnar að jafna samkeppnisskilyrðri járnbrauta gagnvart öðrum samgöngutækjum með því að endurgreiða þeim kostnað eða krefja þau um tekjur sem falla til í rekstri þeirra — en ekki í rekstri annarra samgöngufyrirtækja — vegna ákvæða í lögum, reglugerðum eða öðrum stjórnvaldsákvörðunum. Þegar reikningar járnbrauta eru jafnaðir með hliðsjón af samkeppnisstöðu skal í fyrsta lagi meta fjárhagslegar byrðar í rekstri fyrirtækjanna vegna stjórnvaldsákvarðana með samanburði við rekstrarskilyrði einkafyrirtækja í öðrum samgöngugreinum. Í öðru lagi skal þannig metinn kostnaður endurgoldinn fyrirtækinu.
Ásamt breytingum:
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Í reglugerðinni eru ákvæði sem ætlað er að samræma efnahags- og rekstrarreikninga járnbrautarfyrirtækja þannig að þeir verði sambærilegir. Járnbrautarfyrirtækjum ber á hverju ári að snúa ársreikningum sínum yfir í staðlaða framsetningu sem tilgreind er í fylgiskjölum og skila gögnunum til framkvæmdanefndarinnar.
Ásamt breytingum:
— 179H: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild lýðveldisins Grikklands að Evrópubandalögunum.
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Með reglugerðinni skuldbinda aðildarríkin sig til að beita samræmdum meginreglum í útreikningum á kostnaði við milliríkjaflutninga í fullfermdum lestarvögnum. Skylt er að meta kostnað sem jaðarkostnað eða jaðarsparnað sem hlýst af nýrri umferð, aukningu eða samdrætti í núverandi umferð eða af niðurfellingu á flutningaþjónustu. Kostnaður skal reiknaður með hliðsjón af staðlaðri sundurliðun og leiðbeinandi viðmiðunarreglum sem tilgreindar eru í fylgiskjölum. Járnbrautarfyrirtækjum, sem þjóna sömu leiðum, ber að miðla slíkum upplýsingum hverju til annars.
Ásamt breytingum:
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Porútgals að Evrópubandalögunum.
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum.
Innihald gerðar: Fjallar um flutningsgjöld vegna flutninga á járnbrautum.
Innihald gerðar: Reglugerðin fjallar um aðgang að markaði skipgengra vatnaleiða og setur skilmála um aðild að samkomulagi samkvæmt endurskoð uðum samningi um siglingar á Rín að því er tekur til skipa Rínarsiglingasambandsins.
Aðlögun EES-samningsins: a. EFTA-ríki skulu einnig veita framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins, í samræmi við ákvæði 2. gr., þær upplýsingar sem um getur í þeirri grein og EFTA-ríkin geta sent til miðstjórnar Rínarsiglingasambandsins (CCR). b. Ákvæði 3. gr. gilda ekki.
Ásamt breytingum:
— 390R3572: Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3572/90 frá 4. desember 1990 um breytingu vegna sameiningar Þýskalands á tilteknum tilskipunum, ákvörðunum og reglugerðum er varða flutninga á vegum, járnbrautum og skipgengum vatnaleiðum
Innihald gerðar: Reglugerðin fjallar um uppbyggingu vatnaleiðakerfisins, þ.e. skipulagsumbætur í flutningum á skipgengum vatnaleiðum. Tilgangur reglugerðarinnar er að draga úr umframflutningagetu samgönguflotans á fljótum og skipaskurðum í bandalagsríkjunum. Ríkin skuldbinda sig til að grípa til tvenns konar ráðstafana í þessu skyni: Í fyrsta lagi að koma á úreldingarsjóðum með álögum á flutningaskip og báta í því skyni að kaupa til niðurrifs; í öðru lagi að grípa til viðeigandi ráðstafana til að hindra frekari stækkun flutningaflotans, svo sem að heimila ekki endurnýjun skipa ef flutningsgeta eykst. Aðildarríkjunum ber jafnframt að veita vaxtalaus lán eða ríkisábyrgðir á lánum til úreldingarsjóðanna til þess að flýta fyrir samdrætti í flutningsgetu.
Aðlögun EES-samningsins: Þegar framkvæmdastjórnin tekur ákvarðanir sínar í samræmi við 7. mgr. 6. gr., c-lið 1. mgr. 8. gr. og c-lið 3. mgr. 8. gr. skal hún taka tilhlýðlegt tillit til skoðana sem EFTA-ríkin láta í ljós á sama hátt og hún tekur tillit til skoðana aðildarríkja Evrópubandalagsins.
Ásamt breytingum:
— 389R3685: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBE) nr. 3685/89 frá 8. desember 1989.
— 391R0317: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBE) nr. 317/91 frá 8. febrúar 1991.
Innihald gerðar: Þessi reglugerð er til fyllingar ofangreindri reglugerð nr. 1101/89.
Aðlögun EES-samningsins: Ef framkvæmdastjórnin breytir þessari reglugerð, svo sem um getur í 1. mgr. 12. gr., skal hún taka tilhlýðilegt tillit til skoðana sem EFTA-ríkin láta í ljós á sama hátt og hún tekur tillit til skoðana aðildarríkja Evrópubandalagsins.
Innihald gerðar: Fjallar um aðgang að starfsgrein farmflytjenda á vatnaleiðum í innanlands- og millilandaflutningum og gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum, vottorðum og öðrum vitnisburði um formlega menntun og hæfi vegna þessarar starfsgreinar. Tilskipun setur samræmd skilyrði fyrir því að öðlast réttindi til að starfa við vöruflutninga á vatnaleiðum. Samkvæmt henni er aðildarríkjunum skylt að krefjast þess að einstaklingar eða fyrirtæki, sem starfa að vöruflutningum á vatnaleiðum í atvinnuskyni, sýni fram á fullnægjandi faglega þekkingu og hæfi á þessu sviði. Bandalagsríkin skulu viðurkenna hæfisskírteini eða starfsleyfi hvert hjá öðru.
Aðlögun EES-samningsins: Sérstakur aðlögunarfrestur fyrir Austurríki.
Innihald gerðar: Fjallar um tækniskilmála og tæknilegar kröfur um útbúnað skipa og báta sem flytja vörur á vatnaleiðum til þess að efla öryggiskröfur og jafna samkeppnisskilyrði í bandalagsríkjunum. Vatnaleiðum aðildarríkjanna er skipt í fjögur svæði sem afmörkuð eru í fylgiskjali og ákveðnum gerðum af flutningaskipum, sem sigla á þeim svæðum, er skylt að hafa samræmt skoðunarvottorð sem lýst er í fylgiskjali. Skipum á siglingaleiðum Rínarfljóts ber að hafa sérstakt skírteini fyrir það svæði sem jafnframt gildir á meginsvæðunum fjórum. Skip, sem einvörðungu sigla innan svæðis, geta fengið aukaskírteini sem uppfyllir staðbundnar kröfur á því svæði.
Aðlögun EES-samningsins: Inn í skrá I. viðauka með tilskipuninni bætast við heiti skipgengra vatnaleiða í Svíþjóð og Austurríki samkvæmt sérstöku svæðakerfi þar að lútandi.
Innihald gerðar: Samkvæmt tilskipuninni skal bandalagsríki gefa út haffærisskírteini fyrir tilteknar gerðir af vöru- og farþegaflutningaskipum sem sigla á vatnaleiðum og hafa heimahöfn í því ríki. Upplýsingar á haffærisskírteinum eiga að vera samræmdar eins og tilgreint er í fylgiskjali. Aðildarríki skal viðurkenna haffærisskírteini annarra bandalagsríkja til notkunar á sínum vatnaleiðum.
Ásamt breytingum:
— 185I: Lögum um aðildarskilmála og aðlögun að sáttmálunum — aðild konungsríkisins Spánar og lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum.
Innihald gerðar: Fjallar um gerð skipaskrár yfir siglingaleiðir sem liggja að sjó vegna beitingar tilskipunar ráðsins nr. 76/135. Tilgreindar eru í fylgiskjali vatnaleiðir með vísan til framkvæmdar 3. gr. ákvörðunar nr. 76/135EEC.
Aðlögun EES-samningsins: Inn í skrá viðauka með tilskipunni bætast við heiti skipgengra vatnaleiða í Svíþjóð og Finnlandi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er skilgreindur tilgangur laganna sem er að fullnægja þeim skuldbindingum sem leiðir af ákvæðum 6. kafla III. hluta samnings um Evrópska efnahagssvæðið og XIII. viðauka við samninginn og eigi verður skipað í önnur lög.Um 2. gr.
Hér er lagt til að lögfest verði heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð þær gerðir EES-samningsins á grundvelli 1. gr. sem um er getið í XIII. viðauka EES samningsins. Eins og fram kemur í almennum athugasemdum við frumvarpið hafa þessar gerðir mjög takmarkað gildi hér á landi. Um efni þeirra vísast til upptalningar gerðrar hér að framan.Um 3. gr.
Með EES-samningnum er komið á fót margvíslegu samstarfi sérfræðinga EFTA og EB. Í VII. hluta samningsins eru ákvæði um stofnanir og 2. kafli hans (97.–104. gr.) fjallar um tilhögun ákvarðanatöku og samráð milli EFTA og Evrópubandalagsins. Sérfræðingar EFTA-ríkjanna taka almennt þátt í þeim nefndum sem starfa við rammaáætlanir Evrópubandalagsins á hinum ýmsu sviðum fjórfrelsisins. Um þær nefndir er fjallað í 81. gr.Aðrar nefndir, þar sem mikilvægt er vegna góðrar framkvæmdar á samningnum að sérfræðingar aðildarríkja Evrópubandalagsins og EFTA-ríkjanna taki þátt, eru taldar upp í bókun 37 með samningnum skv. 101. gr. EES-samningsins. Ein þessara átta nefnda, sem taldar eru upp í bókuninni, er nefnd um samgöngumannvirki.
Í 3. gr. lagafrumvarpsins er lagt til að samgönguráðuneytið tilkynni eftirlitsstofnun EFTA og fastanefnd EFTA áður en hafin er gerð samgöngumannvirkja samkvæmt þingsályktunum um vegáætlun, flugmálaáætlun og hafnaáætlun sem talið er að hafi umtalsverð áhrif á umferð milli aðildarríkja EES eða til landa utan EES.
Eins og að ofan greinir fjallar ein þeirra gerða sem lagt til að lögfest verði með heimild fyrir samgönguráðherra til þess að setja í reglugerð um tilhögun samráðs og skipan nefndar er fjalli um samgöngumannvirki. Hér er um að ræða ákvörðun ráðherraráðs Evrópubandalagsins nr. 78/174/EBE frá 20. febrúar 1978, nr. 5 í XIII. viðauka. Eftirlitsstofnun EFTA mun senda sameiginlegu EES-nefndinni, að minnsta kosti þriðja hvert ár, skýrslu um þær upplýsingar sem henni hafa borist um gerð samgöngumannvirkja og starfsemi samgöngumannvirkjanefndarinnar. Gerð samgöngumannvirkja hér á landi hefur almennt mjög lítil áhrif utan landamæra Íslands og því hefur ákvörðunin væntanlega ekki mikil áhrif hér á landi. Þó er gert ráð fyrir samráði sérfræðinga ef um er að ræða framkvæmdir sem gætu haft umtalsverð áhrif á flutninga milli ríkja og við ríki utan EB.
Þess ber þó að geta að samgöngumannvirkjanefndinni er ekki veitt vald til ákvörðunar um hvort ríki ákveða að ráðast í framkvæmdir.
Um 4. gr.
Ákvæðið um gildistöku þarfnast ekki skýringar.