Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 97 . mál.


558. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 82/1989, með síðari breytingu.

(Eftir 2. umr., 22. des.)


1. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 12. gr. laganna eins og henni var breytt með lögum nr. 12/1991:
    3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Að styðja sveitarfélög og heilsugæslustöðvar til að koma á fót og reka heimaþjónustu fyrir aldraða.
    Á eftir 3. tölul. 1. mgr. kemur nýr töluliður er orðast svo: Að veita rekstrarfé á árunum 1993, 1994 og 1995 til stofnana fyrir aldraða í samræmi við ákvæði fjárlaga, þó aldrei meira en 55% af heildarúthlutun sjóðsins á árinu.
    2. mgr. fellur niður.

2. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993.