Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 1 . mál.


586. Frávísunartillaga



í málinu: Frv. til l. um Evrópska efnahagssvæðið.

Frá Jóni Helgasyni, Ragnari Arnalds og Kristínu Einarsdóttur.



    Eftir að samningurinn, sem gerður hefur verið um Evrópska efnahagssvæðið, var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss er ljóst að endanlegur texti að slíkum samningi liggur ekki fyrir.
    Þegar af þeirri ástæðu telur Alþingi ekki rétt að afgreiða þetta frumvarp og samþykkir að vísa því til ríkisstjórnarinnar.